Fréttablaðið - 22.02.2008, Blaðsíða 55
Um er að ræða 78 glæsilegar fullbúnar 90-140 fm íbúðir í lyftuhúsi.
Ekkert hefur verið til sparað við hönnun íbúðanna sem eru bjartar og
rúmgóðar. Íbúðirnar snúa mót suðri. Lofthæð í íbúðunum er 2,70 m
sem er meira en gengur og gerist í nýbyggingum og aukin hljóðeinangrun
er í íbúðunum. Gæði og þægindi eru einkennisorð íbúðanna
sem verða afhentar með gólfefnum, innréttingum og tækjum. Bílastæði
í bílageymslu fylgir hverri íbúð.
Fyrstu íbúðirnar verða afhentar í mars 2008.
Húsin eru á mörkum þjónustu- og verslunarkjarna og í nágrenni við
nokkur af vinsælustu útivistarsvæðum borgarbúa. Göngustígar tengja
íbúðabyggðina í Mörkinni við aðra hluta borgarinnar. Örstutt í Elliðaárdalinn.
Í Mörkinni verður þjónustumiðstöð, Heilsusetrið, þar sem skipulögð dagskrá
verður í gangi. Innangengt verður úr íbúðunum í þjónustumiðstöðina. Þangað
kemur fólk til að fá góða og heilbrigða hreyfingu, fræðslu, skemmtun, aðh-
lynningu, þjálfun, félagsskap, góðan og hollan mat og ekki síst til að láta
dekra við sig. Stefnt er að því að geta boðið íbúum við Suðurlandsbraut 58-
62 uppá þjónustu eftir óskum og þörfum hvers og eins. Um verður að ræða
heilsusetur í hæsta gæðaflokki. Við Heilsusetrið verður auk þess púttvöllur.
Hjúkrunarheimili verður í næsta nágrenni við íbúðirnar og íbúum í Mörkinni
verður boðið uppá heimahjúkrun.
Þá verður boðið uppá sjúkraþjálfun í Heilsusetrinu.
Sjá nánar inná www.thjonustuibudir.is
Fr
u
m
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
Sölusýning í Mörkinni laugardag og sunnudag frá kl. 13.00-16.00
Nýjar þjónustuíbúðir
við Suðurlandsbraut 58-62.
Tvær glæsilegar sýningaríbúðir í húsi nr. 62
Sýningaríbúð með húsgögnum frá Saltfélaginu