Fréttablaðið - 22.02.2008, Blaðsíða 10
10 22. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
Verð
Fjölbreytni
Gæði veitinga
Þjónusta
Verð
Fjölbreytni
Gæði veitinga
Þjónusta
Landsbyggðin
H
öfuðborgarsvæ
ðið
0% 20% 40% 60% 80% 100%
8-10 0-7
VEITINGASTAÐIR
RV
U
N
IQ
U
E
02
08
02
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Hreinar hendur
- örugg samskipti
Á tilboðií febrúar 2008DAX Handspritt, krem og sápur
DAX Sótthreinsiservíettur 20 stk. 393 kr.
DAX Hand & húðkrem 600 ml með dælu 496 kr.
DAX Handáburður 250 ml 259 kr.
DAX Handspritt 60 5 ltr. 1.492 kr.
DAX Handspritt 60 600 ml með dælu 296 kr.
DAX Handspritt 70 600 ml með dælu 296 kr.
DAX Handsápa mild 600 ml með dælu 198 kr.
A
ug
lý
si
ng
as
ím
i
– Mest lesið
ATVINNUMÁL Erlendir ferðamenn
sem hingað koma til lands gefa
ferð sinni ágætiseinkunn í rúm-
lega áttatíu prósentum tilvika,
sautján prósent segja dvölina hafa
verið sæmilega og aðeins tvö pró-
sent gesta gefa henni falleinkunn.
Jákvæðastir eru ferðamennirnir
fyrir afþreyingu en neikvæðastir
gagnvart skyndibitastöðum,
einkum hvað varðar fjölbreytni og
gæði. Sem fyrr er verðlagið einnig
sá þáttur sem fær almennt lægstu
einkunn.
Þetta er meðal þess sem ný
könnun Ferðamálastofu birti í
gær. Úrtakið var 3.208 manns en
af þeim fjölda svöruðu tæplega
sextíu prósent. Capacent Gallup
sá um framkvæmd og úrvinnslu.
Sem fyrr er náttúra landsins það
sem helst dregur ferðamenn hing-
að til lands en rúmlega sjötíu pró-
sent svarenda segja hana helstu
ástæðu fyrir komunni til landsins.
Að sögn Ólafar Ýrar Atladóttur
ferðamálastjóra vekur það þó eftir-
tekt að um fjörutíu prósent ferða-
manna nefna svo íslenska menn-
ingu og sögu sem helstu ástæðu
fyrir ferðinni. Það sé þáttur sem
meira megi líta til og hlúa að.
Ólöf segir að þó niðurstöðurnar
séu á heildina litið jákvæðar bendi
margt til þess að betur megi huga
að bættum gæðamálum. Ferða-
þjónustuþættirnir fá mismunandi
einkunn hjá svarendum en af þeim
130 þáttum sem lagðir voru til
grundvallar í könnuninni var með-
aleinkunnin 7,3 á kvarðanum 0 til
10. „Við eigum að stefna á ein-
kunnina átta eða yfir,“ segir Ólöf
um þær niðurstöður. Ljóst er að
langt er í land með að ná því mark-
miði þegar litið er á einkunnir sem
ferðamenn gáfu skyndibitastöð-
um á höfuðborgarsvæðinu. Þeir
fengu 6,4 í einkunn en á lands-
byggðinni 5,5.
Össur Skarphéðinsson iðnaðar-
ráðherra tilkynnti á fundi í gær að
á næstum þremur árum yrði 100
milljónum ráðstafað til þriggja þró-
unarverkefna í ferðaþjónustu.
Verkefnin eru í fyrsta lagi menn-
ingartengd ferðaþjónusta, í öðru
lagi aukin gæði og vöruþróun í
ferðaþjónustu og í þriðja lagi verð-
ur lögð áhersla á verkefni sem
nefnist Matur úr héraði sem byggt
verður á áframhaldandi þróun
verkefnisins Beint frá býli. En það
eru þeir þættir sem Ólöf telur helst
þurfa að huga að í ljósi niðurstaðna
könnunarinnar. karen@frettabladid.is
Ekki hrifnir
af skyndibita
Erlendir ferðamenn sem heimsækja Ísland eru al-
mennt ánægðir með dvölina. Veitingahús og skyndi-
bitastaðir eru þó slök að mati ferðamanna. Þá þykir
skorta á gæði og fjölbreytni og verðlag of hátt.
VILJA ENN BETRI NIÐURSTÖÐUR Svanhildur Konráðsdóttir, formaður ferðamálaráðs,
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri vilja
meðal annars styrkja við menningartengda ferðaþjónustu, eflingu vöruþróunar og
bætta matarmenningu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
BRETLAND, AP David Miliband,
utanríkisráðherra Bretlands,
skýrði frá því í gær að banda-
ríska leyniþjónustan CIA hefði
tvisvar með leynd flutt fanga
með viðkomu á breskri grund til
að taka eldsneyti.
Hann baðst afsökunar á því að
bresk stjórnvöld hefðu áður neit-
að þessu gegn betri vitund.
Michael Hayden, yfirmaður
CIA, staðfesti í gær að tvær flug-
vélar hefðu lent með fanga inn-
anborðs á Diega Garcia, sem er
bresk eyja á Indlandshafi.
Bæði bresk og bandarísk
stjórnvöld hafa hingað til neitað
því að leyniflug með grunaða
hryðjuverkamenn hafi nokkurn
tímann tengst Bretlandi.
- gb
Utanaríkisráðherra Breta staðfestir leyniflug CIA:
Biðjast afsökunar
DAVID MILIBAND OG GORDON BROWN
Utanríkisráðherra og forsætisráðherra
Bretlands. FRÉTTABLAÐIÐ/AP