Fréttablaðið - 22.02.2008, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 22. febrúar 2008 13
hafa ekki fallið í dóp og rugl aftur,“
segir Sigríður. „Að veita þeim
ástúð og festu,“ segir hún vera
galdurinn á bakvið þetta hjá þeim
Þorsteini og segir hún börnin verð-
launa slíkt margfalt.
Hinn 31. janúar síðastliðinn var birt í helstu
dagblöðum landsins auglýsing þar sem hundr-
að konur lýstu sig reiðubúnar til stjórnarsetu í
stærstu fyrirtækjum landsins. Það voru Félag
kvenna í atvinnurekstri (FKA) og Leiðtoga-
auður, sem er félag kvenna í stjórnunarstöð-
um stærri fyrirtækja, sem stóðu að henni.
Í mati dómnefndar segir að auglýsingin
hafi hrist upp í karlasamfélaginu í viðskipta-
lífinu og að „þetta sé einn liður í hugarfars-
breytingu til að jafna hlut kynjanna í við-
skiptalífinu“.
„Það kemur gjarnan upp þegar kynjahlut-
fall í stjórnum fyrirtækja er til umræðu að
konur séu ekki reiðubúnar, skorti reynslu,
áhuga eða hæfni og þar fram eftir götunum,“
segir Þóranna Jónsdóttir. „Ástæðan fyrir því
að við birtum þessa auglýsingu er sú að við
vildum vekja athygli á því að það er til fullt af
konum sem hafa getu og áhuga á því að taka
þátt í viðskiptalífinu með þessum hætti. Við
erum ekki að tala um það að fyrirtæki fái til
sín konur aðeins vegna þess að þær eru konur
heldur það að fyrirtækin og viðskiptalífið er
ekki að nýta mikinn fjölda af þeim hæfu
konum sem eru til staðar og hafa mjög víð-
tæka og mikla reynslu. Við viljum þannig
áhrif í viðskiptalífinu að dætur okkar eigi
greiðari götu til að nýta hæfileika sína, efna-
hagslífinu til framdráttar.“
Þóranna Jónsdóttir í stjórn Leiðtogauðar sem er tilnefnd ásamt FKA:
Svo dæturnar fari greiðari götu
fyrir Félagsmálastofnun:
festu
SIGRÍÐUR OG ÞORSTEINN BJARNI Lang-
aði að hjálpa börnum sem áttu erfitt.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÞÓRANNA JÓNSDÓTTIR Vel hæfar konur með víðtæka
reynslu eru reiðubúnar að láta til sín taka eins og aug-
lýsing FKA og Leiðtogaauðar sýndi fram á.
ríkidæmi
eigið innra ríkidæmi og það er
nokkuð mikils virði því það er
hægt að stela hjólinu þínu og
gemsanum en það hrifsar enginn
upp úr þér þetta innra ríkidæmi.
Ég held líka að sá sem býr svo vel
að eiga það þurfi kannski ekki að
eltast við allar þessar veraldlegu
eigur sem spila of stórt hlutverk í
þessu neyslusamfélagi.“
Pétur leggur áherslu á það að
þeir sem síst geti tjáð sig vegna
tungumálaörðugleika fái tæki-
færi til að láta andans fákinn
geysa en þó innan þess ramma
sem tónlistin setur þeim. „Það er
hægt að tjá sig öðruvísi en með
tungumálinu og það er alveg sjálf-
sagt að gera annars konar tján-
ingu hærra undir höfði þegar það
á við. Tónlistin hentar vel til
þess.“
Rúnar Þór Njálsson, fimmtán ára
strákur frá Blöndósi, hefur verið
tilnefndur til Samfélagsverðlauna
Fréttablaðsins í flokki Hvunn-
dagshetja, eins og lesa mátti í
Fréttablaðinu í gær. Röng mynd
birtist með viðtalinu við Rúnar og
eru hlutaðeigandi beðnir velvirð-
ingar á mistökunum.
Rúnar Þór, sem er í hjólastól,
eða rafmagnsbíl, náði að draga
sykursjúkan vin sinn upp á
rafmagnsbílinn og fara með hann
að næstu bensínstöð, en vinur
hans hafði hnigið niður. Á
bensínstöðinni fékk hann svo
aðstoð við að hringja á sjúkrabíl.
Rúnar Þór segir það ekki hafa
komið til greina að skilja vin sinn
eftir.
Rúnar Þór Njálsson:
Tilnefndur
hvunndags-
hetja
RÚNAR ÞÓR NJÁLSSON Tilnefndur
hvunndagshetja Samfélagsverðlauna
Fréttablaðsins.
Miðasala í Borgarleikhúsinu, sími 568 8000 og á midi.is
EAGLES