Fréttablaðið - 22.02.2008, Blaðsíða 38
22. FEBRÚAR 2008 FÖSTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● suðurland
Guðmundur Annas Árna-
son hefur breytt Kaffi Krús á
Selfossi úr snotru kaffihúsi í
eftirsóttan bistro-stað.
Alþjóðleg stemning ræður nú
ríkjum á Kaffi Krús á Selfossi. En
þar hefur eigandinn, Guðmund-
ur Annas Árnason, unnið að því
að innleiða ósvikna bistro-mats-
eld til að færa heimamenn nær al-
þjóðlegri veitinga- og kaffihúsa-
menningu. Er ekki annað að heyra
en uppátækinu hafi verið vel tekið
þar sem yfirleitt er þröng á þingi.
„Það hefur verið þvílík gleði
með þetta. Sumir hafa gengið svo
langt að segja að ég hafi bjarg-
að Selfossi,“ segir Guðmundur og
hlær. „Kannski er eitthvað til í því.
Ég er náttúrlega að bjóða upp á mat
sem hefur ekki sést áður hérna.
Mér fannst líka vanta alvöru góðan
kaffibolla þegar ég flutti á Selfoss,
en það gengur náttúrlega ekki upp
í þjóðfélaginu í dag. Svo ég ákvað
að bæta úr því.“
Kaffi Krús hefur þó ekki að-
eins breyst úr kaffihúsi í veitinga-
stað frá því að Guðmundur tók við
rekstrinum fyrir tveimur árum,
heldur er nú jafnframt orðin að
vinsælum bar og skemmtistað.
„Upphaflega átti barstemningin
að vera róleg en vegna vöntunar á
skemmtistöðum á Selfossi þróaðist
þetta út í skemmtistað innan gæsa-
lappa. Hér er nú lifandi tónlist
fimmtu-, föstu- og laugardaga, en
þá planta trúbadorar sér í horn-
ið og búa til stemningu,“ útskýrir
hann.
Guðmundur segir breytingarn-
ar boða ákveðin tímamót í veit-
inga- og kaffihúsamenningu Sel-
fyssinga, sem horfi nú í síauknum
mæli til Reykvíkinga í þeim efnum.
Uppbyggingunni sé þó engan veg-
inn lokið. „Nei, ég er enn að vinna
í því að fólk geri aukna kröfu um
gott kaffi og þörfina fyrir að fá
sér kaffi í götumáli, sem þykir nú
orðið sjálfsagt í Reykjavík,“ út-
skýrir Guðmundur. „Ég vil gera
Kaffi Krús enn glæsilegri í alla
staði, þótt hann sé flottur fyrir.“
Uppskriftin hér að neðan ætti að
gefa lesendum hugmynd um hvers
vænta má af matreiðslumönn-
um staðarins, en þar er boðið upp
á mismunandi fiskrétti alla daga
vikunnar. - rve
Alþjóðleg matseld
Kaffi Krús hefur verið vinsælt kaffihús
um áraraðir. Þar er nú boðið upp á
bistró-mat.
Snöggristaður saltfiskshnakki með chili-sveppasoði og parmesan tagliatelle.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SNÖGGRISTAÐUR SALTFISKS
HNAKKI MEÐ CHILISVEPPASOÐI
OG PARMESAN TAGLIATELLE, FYRIR
FJÓRA.
Saltfiskshnakki, skorinn í hæfilegar
steikur.
Aðferð:
Ristið á heitri pönnu, þar til roðhliðin
verður dökkbrún. Snúið þá við. Setjið í
eldfast mót og inn í ofn með svörtum
pipar, fersku rósmarin og sítrónuolíu í
8 til 10 mínútur við 180 gráður.
Chili-sveppasoð
4 bollar fisksoð (eða vatn og 1 tsk.
kjúklingakraftur og 1 tsk. fiskkraftur
blandað saman)
1 rauður chili, hreinsaður og skorinn í
litla bita
½ box sveppir, þunnt sneiddir
½ laukur
2 rif hvítlaukur, þunnar sneiðar
1 tsk. nýmulinn pipar
1 msk. smjör
Aðferð:
Mýkið chili, sveppi, lauk og hvítlauk í
smjöri. Hellið soði út í.
Parmesan tagliatelle
1 pk. tagliatelle
2 msk. söxuð steinselja
3 msk. ólífuolía
1 msk. sítrónusafi
2 msk. fínt rifinn parmesan
Aðferð:
Sjóðið tagliatelle í um það bil 8 til 10
mínútur eða þar til það verður nett
stökkt undir tönn. Blandið tagliatelle,
olíu, steinselju og parmesan saman í
skál. Setjið fyrir miðju á djúpum disk.
Saltfiskhnakki fer þar ofan á. Hellið
loks chilisoði létt yfir. Skreytið að vild
og berið fram með grænmeti að eigin
vali.
Guðmundur Annas Árnason hefur gert
heilmiklar breytingar á Kaffi Krús.
Sveitabúðin Sóley er drauma-
kistill aðdáenda fagurs punts
og heimilisskarts. Búðin
stendur utan alfaraleiðar á
sveitabænum Tungu í Flóan-
um, í hlaði umkringdu flötum
túnum með fjalladýrð í fjarska.
Þar sem brimið kyssir fjöruna
í túnfætinum og ljær sveita-
kyrrðinni annan blæ.
Sveitarómantík heillar æ fleiri Ís-
lendinga, enda velflestir komnir
af bændum úr stórbrotinni nátt-
úru og með sterka þrá til upprun-
ans. Bændurnir Sóley Andrésdótt-
ir og eiginmaður hennar, Björgvin
Njáll Ingólfsson verkfræðingur,
létu drauminn rætast og keyptu
jörðina Tungu í Gaulverjabæjar-
hreppi árið 2002, en áður bjuggu
þau í Mosfellsbæ sem á þeim tíma
var eins konar sveit í borg.
„Við höfðum alltaf átt okkur
draum um að búa í sveit og ákváð-
um snemma í okkar sambúð að
það skyldum við gera einn daginn.
Það gerðum við loks og seldum
allt okkar í Mosfellsbænum; hús
og hesthús, en búskapur hér hefur
þróast hægt og bítandi frá því
við fluttum og tekið á sig margar
myndir,“ segir Sóley þar sem hún
stendur í hlaðinu heima í Tungu í
Flóanum; svæðinu milli Þjórsár og
Ölfusár.
„Tunga er 130 hektarar að stærð,
að hluta til flöt en þar finnast
skemmtilegir hólar, hraun, sand-
ur, á, fjara, mýrar og móar, og jörð-
in liggur að sjó. Volinn (Flóárveit-
an) rennur í gegnum Tungulandið
og er ágætis veiðiá fyrir sjóbirting.
Bústofninn samanstendur af hest-
um, kindum, nautgripum, hund-
um, köttum og landnámshænum,
og í nokkur sumur tókum við á móti
börnum í sveit. Við tökum einnig
á móti óvissuhópum og erum með
greiðasölu fyrir minni hópa, bjóð-
um upp á heimagistingu og síðast
en ekki síst Sveitabúðina Sóley, sem
er einstök í sinni röð,“ segir Sóley
og ljóst að allir geta fundið eitt-
hvað við hæfi ef ætlunin er að njóta
lífsins einn, með maka, fjölskyldu,
vinum eða vinnufélögum í Tungu.
„Hér er dásamleg kyrrð og ró
og bærinn ekki í alfaraleið. Ég bjó
í Danmörku um tíma og heimsótti
sams konar sveitabúðir en þar var
ég hvött til að opna eina slíka hér
heima. Gamla grænmetisgeymsl-
an í hlaðinu hentaði ágætlega undir
búð af þessu tagi svo ekki var eftir
neinu að bíða. Ég flyt sjálf inn vörur
frá þremur aðilum í Danmörku en
kaupi líka frá íslenskum innflytj-
endum, og hér má finna ýmiss
konar heimilis- og gjafavörur til
að fegra heimilið,“ segir Sóley þar
sem hún stillir upp unaðsfögrum
kertastjökum, puntstyttum og fleiri
dýrgripum í fallegri sveitabúðinni.
„Úrvalið fer mikið eftir því hvað
er í gangi á hverjum tíma og ég get
alveg bryddað upp á ýmsu. Ég sel
stundum handverk listamanna í
bland og stilli einnig upp árstíða-
bundnum vörum. Mesti gestagang-
urinn er fyrir jólin og yfir sumar-
tímann, þótt æ fleiri renni í hlað á
öllum árstímum,“ segir Sóley sem
gleðst stolt yfir móttökum sveita-
búðarinnar, sem finna má 14 kíló-
metra suður af Selfossi.
„Orðstír sinn hefur búðin feng-
ið mann frá manni og margir sem
koma til að forvitnast í sérferð
hingað að Tungu. Ég hef reynt að
hafa búðina fallega og velja vörur
sem fást hvergi annars staðar og
mér sjálfri þykja dásamlegar. Það
er ánægjulegt að sjá sömu andlitin
koma aftur, en ekki síður að fá nýja
gesti og stundum koma vinkvenna-
hópar hingað í búðina og fá sér
léttan málsverð á eftir,“ segir Sóley
sem einnig selur til einstaklinga
sérræktað og gómsætt nauta- og
lambakjöt í 1/4, hálfum og heilum
skrokkum.
„Ég er óskaplega ánægð með það
sem við seljum og komin með fast-
an hóp viðskiptavina. Búðina hef ég
komist upp með að hafa opna þegar
einhver er heima og bíll í hlaðinu,
en annars er bara lokað,“ segir
Sóley brosmild.
„Sveitin er dásamleg, en hún
kallar á sjálfsaga. Ég nýt þess að fá
gesti og umgangast fólk. Þetta hefur
verið mjög gaman og gengið vel og
dýrmætt fyrir mig þegar hingað
kemur fólk sem séð hefur eitt-
hvað fallegt í fjarlægari landshlut-
um og komið er úr Sveitabúðinni í
Flóanum.“ - þlg
Sveitin er dásamleg
Heimtröðin að Tungu í Gaulverjabæjarhreppi í Flóa, þar sem Sveitabúðin Sóley er til
húsa.
Sætur sveitaálfur með smáfugl á fæti
brosir blíðlega mót gestum í einu horni
Sveitabúðarinnar.
Hér stendur húsfreyjan í Tungu, frú Sóley Andrésdóttir, við drekkhlaðið búðarborð eigulegra dýrgripa í Sveitabúðinni Sóley.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA