Fréttablaðið - 22.02.2008, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 22.02.2008, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 22. febrúar 2008 15 Mikið hneyksli er komið upp í Þýskalandi þar sem grunur er um að ýmsir bankar hafi aðstoðað auðmenn við að komast hjá milljóna skattgreiðslum. Fram kemur í Der Spiegel að fyrir atbeina þýsku leyniþjónustunnar, BND, hafi komist upp um yfir þúsund þýska auðmenn, sem hafi komið fé undan skatti með því að flytja það til smáríkisins Liechtenstein. Þar hafi peningunum verið komið fyrir hjá ýmsum sjóðum, sem þar njóta verulegra skattfríðinda. Aðeins þurfi að greiða 0,1 prósents fjármagnstekjuskatt. Um fimmtíu sjóðir í smáríkinu tengjast málinu. Starfsmenn þýskra skattyfirvalda hafa í þessari viku gert margar húsleitir í bönkum og á heimilum. Áætlað er að skattyfirvöld hyggist gera um 700 húsleitir vegna málsins. Málið komst í hámæli í Þýskalandi þegar Klaus Zumwinkel, fyrrverandi forstjóri Deutsche Post, stærsta póstfyrirtækis Evrópu, sagði af sér vegna málsins. Talið er að hann hafi skotið um einni milljón evra undan skatti, eða sem nemur tæpum eitt hundrað milljónum króna. Þá hafa háttsettir opinberir embættismenn einnig blandast í málið. Ströng bankaleynd ríkir í Liechenstein og neita fjármálastofnanir þar alfarið að veita þýskum yfirvöldum upplýsingar. Samkvæmt þýskum lögum er ekki ólöglegt að færa fé til smáríkisins. Slíkar millifærsl- ur þarf hins vegar að gefa upp í skattfram- tali. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur lýst því yfir að hún vilji semja við Liechen- steina um að þýsk yfirvöld verði látin vita þegar landsmenn millifæra fé til smáríkis- ins. - ikh Leyniþjónusta flettir ofan af skattsvikum ANGELA MERKEL Skammar skattsvikarana. Háttsettir menn hafa þegar sagt af sér vegna málsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP „Askar Capital er alveg nýtt fyrirtæki og það skýrir kostnaðinn,“ segir Tryggvi Þór Herbertsson, for- stjóri Askar Capital. Heildareignir Askar Capital námu 34,3 milljörðum króna í fyrra. Rekstrarkostnaður var á sama tíma rúmir 1,5 milljarðar króna en það merkir að rekstrar- kostnaður bankans í hlutfalli af heildareignum nam 4,3 prósentum, sem er hæsta hlutfall íslenskra banka- og fjármálafyrirtækja á síðasta ári. Bankinn hóf starfsemi í byrjun síðasta árs. Tryggvi segir þetta ekki segja alla söguna því efna- hagsreikningurinn sé ekki stór. „Starfsemin byggist mikið á eignaumsýslu fyrir aðra.“ Eins og sést á töflunni hér til hliðar er hlutfallið til- tölulega hærra hjá yngstu fjármála- og fjárfestingar- fyrirtækjunum en lægra hjá þeim rótgrónari. Neðst í hópnum er fjármálaþjónustufyrirtækið Exista, sem er á bási ásamt FL Group og Milestone. Félögin þrjú eru með yngri fyrirtækjum og hefur FL Group verið gagnrýnt fyrir mikinn kostnað í fyrra. Júlíus Þorfinnsson, framkvæmdastjóri sam- skiptasviðs FL Group, bendir á að hlutfallið hafi verið eitt prósent í hitteðfyrra. Hann segir skýringuna að mestu einskiptiskostnað vegna aðkeyptrar sérfræði- þjónustu við fjárfestingaverkefni sem sum hver gengu ekki eftir á umsvifamiklu ári í fyrra. - jab Yngstu félögin með mestan hlutfallslegan rekstrarkostnað KOSTNAÐUR SEM HLUTFALL AF EIGNUM Í LOK ÁRS 2007 Félag Hlutfall (%) Fjárfestingarbankar Askar Capital 4,30 Straumur-Burðarás 1,60 Saga Capital* - VBS 2,37 Icebank** 0,68 Viðskiptabankar SPRON 2,40 Landsbankinn 1,80 Glitnir 1,60 Kaupþing 1,47 Fjárfestingarfélög Milestone 3,13 FL Group 1,50 Exista 0,80 * Hefur ekki skilað uppgjöri. ** Stór hluti viðskipta Icebank er á heildsölusviði og því með öðru móti en hjá öðrum bönkum og fjármála- fyrirtækjum. „Þetta var heppni og reynsla,“ segir Pálmi Haraldsson, stærsti hluthafi Fons, en félagið skilaði um fimm millj- arða króna hagnaði í fyrra. Rekstrarhagn- aður var um sjö milljarðar króna og námu heildar eignir félagsins hundr- að milljörðum í árslok. Pálmi segir að félagið hafi selt stórar eign- ir á vordögum í fyrra, sem hafi verið hárrétt ákvörðun áður en lausafjárkreppan og óróleiki á alþjóðlegum fjármálamörkuðum setti mark sitt á flest fyrirtæki. „Við komum ágætlega út miðað við aðra. Þetta var heppni en maður þarf að fylgjast vel með,“ segir hann. - jab Heppni hjá Fons PÁLMI HARALDSSONTRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON Forstjóri Askar Capital segir háan rekstrarkostnað í hlut- falli við eignir skýrast af vexti ungra fjármálafyrirtækja. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /STEFÁ N David Karsbøl hjá greiningardeild Saxobank í Danmörku sagðist í gær ekki óttast um starf sitt þrátt fyrir hörð viðbrögð vegna álits sem hann gaf á íslensku bönkun- um. Danska blaðið Börsen hafði eftir David í fyrradag að Kaup- þing og aðir íslenskir bankar stefndu í gjaldþrot. „Það er mjög mikilvægt að það komi fram að ég sagði aldrei að ég byggist við því að Kaupþing færi í gjaldþrot,“ sagði Karsböl í samtali við Vísi í gær. Hann sagði einnig að hann hefði aldrei talað um Kaupþing eitt og sér. Greining hans hefði snúist um horfur í efna- hagslífi á Íslandi almennt séð. Þær væru ekki góðar. Býst ekki við gjaldþroti Das Auto. FÆST MEÐ ALVÖRU 6 ÞREPA SJÁLFSKIPTINGU DÚXAÐI Á EURO NCAP PRÓFINU HLAUT GULLNA STÝRIÐ SVEIGJAN- LEGIR SÖLUMENN KOLEFNIS- JAFNAÐUR Í EITT ÁR EYÐIR AÐEINS FRÁ 5.0 l/100 KM HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi Golf Trendline kostar aðeins frá 2.150.000 kr. Komdu og prófaðu betur búinn Golf á frábæru verði. Það er höfuðatriði að vera á öruggum bíl í umferðinni og fáir standa Golf framar í þeim efnum, enda fékk hann hæstu einkunn á Euro NCAP prófinu. Í Golf tvinnast saman hágæðahönnun, framúr- skarandi aksturseiginleikar og nýstárleg tækni. Kraftalegur afturhluti og sportlegar línur í bílnum gefa fyrirheit sem aksturseiginleikarnir standa fyllilega undir. GOLF GTI® BÍLL ÁRSINS 2008 Car&driver Álfelgur, samlitir listar, leðurpakk i, armpúði á milli framsæta og rafstýrð sóllú ga. Bættu við Spor tpakka fyrir 300.000 kr. Eða 25.500 kr. á mánuði miðað við bílasamning til 84 mánaða og 20% útborgun. Árleg hlutfallstala kostnaðar er 7,34%. Aukabúnaður á mynd: Álfelgur og samlitur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.