Fréttablaðið - 22.02.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 22.02.2008, Blaðsíða 2
2 22. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR Guðmundur, þarf ekki bara að fá Pólverja í djobbið? „Uppruninn skiptir ekki máli ef menn hafa það sem til þarf.“ Guðmundur Ingvarsson er formaður Handknattleikssambands Íslands sem hefur rætt við fjóra menn án þess að ná að ráða í stöðu landsliðsþjálfara. Pólverj- inn Bogdan Kowalczyk þjálfaði landsliðið með góðum árangri hér fyrr á árum. LÖGREGLUMÁL Refaveiðar í myrkri með ljóskösturum hafa stóraukist hér á landi að undanförnu, að því er reyndar refaskyttur hafa tjáð Fréttablaðinu. Veiðar af þessu tagi eru kolólöglegar og af þeim getur stafað mikil hætta séu þær stund- aðar í byggð. Þær eru nú sagðar stundaðar í miklum mæli hringinn í kringum landið. Í síðustu viku fannst fylfull hryssa dauð í stóði á Rauðkolls- stöðum í Eyja- og Miklaholts- hreppi. Í fyrstu var haldið að hún hefði orðið sjálfdauð, en þegar farið var að hrófla við henni til að urða hana, rann blóð úr nösum hennar. Við nánari aðgát sást gat eftir riffilkúlu á gagnauga hennar. Það er trú manna á svæðinu, eins og komið hefur fram í Fréttablað- inu, að þarna hafi refaskyttur verið á ferðinni með ljóskastara og öfl- ugan riffil. Málið var kynnt lög- reglu. Svanur Guðmundsson, sem er þaulreynd refaskytta til margra ára, segir að refaveiðar með þess- um aðferðum hafi viðgengist um nokkurt skeið en nú virðist þær vera að fara úr böndunum. Spurður hvernig svona lagað fari fram segir hann að menn fari um á bílum sínum og lýsi til beggja handa. „Það eru að minnsta kosti tveir menn saman í bíl,“ útskýrir hann. „Þeir eru annað hvort með hand- kastara eða kastara uppi á bílnum. Þegar þeir lýsa á tófu þá er það eins og að sjá glitauga, jafnvel í margra kílómetra fjarlægð. Svo eru þeir á rúntinum og bíða eftir að hún færi sig nær veginum. Í flestum tilvik- um eru þetta staðkunnugir menn sem vita hvert hún er að fara.“ Svanur segir hættu af þessum veiðiaðferðum alltaf vera fyrir hendi á byggðum svæðum því menn séu að skjóta í myrkri með öflugum rifflum. Ekki þurfi annað en að kúlan lendi á steini, þá geti hún tekið allt aðra stefnu en henni var ætlað. „Þessir stóru rifflar eru hættu- leg vopn því þeir geta drepið mann í tveggja til þriggja kílómetra fjar- lægð,“ úrskýrir Svanur. Hulda M. Magnúsdóttir á Máva- hlíð í Snæfellsbæ segir að menn hafi iðulega verið að refaveiðum með ljóskastara í hlíðinni við bæinn. „Maður veit ekki hverjir þetta eru,“ segir hún. „Um leið og settur er bíll í gang á hlaðinu þá fara þeir í burtu, þannig að við höfum misst af þeim. Það er ómögulegt að þetta skuli viðgangast. Ég er svo hneyksl- uð á þessu framferði að ég á ekki til orð.“ jss@frettabladid.is SKOTNA HRYSSAN Hryssan sem fannst dauð á Rauðkollsstöðum reyndist vera með skotgat á gagnauga eftir öflugan riffil. Talið er að refaskyttur með ljóskast- ara hafi skotið hana. Stórhætta stafar af refaveiðimönnum Refaveiðar í myrkri með ljóskösturum eru farnar úr böndunum, segir gamalreynd refaskytta. Fylfull hryssa sem fannst dauð með kúlugat á hausnum er talin hafa orðið fyrir barðinu á þessum veiðimönnum sem stórhætta getur stafað af. Þessir stóru rifflar eru hættuleg vopn því þeir geta drepið mann í tveggja til þriggja kílómetra fjarlægð. SVANUR GUÐMUNDSSON REFASKYTTA Grillaður kjúklingurNóatún mælir með 799 kr.stk. Gott á föstudegi noatun.is LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ BANDARÍKIN, AP John McCain neitar að hafa átt í ástarsambandi við Vicki Iseman, fertuga konu sem starfar við hagsmunagæslu fyrir ýmis fyrirtæki og samtök í Washington-borg. „Ég er mjög vonsvikinn út af þessari grein. Það er ekkert hæft í þessu,“ sagði McCain í gær, og vísaði þar í grein í dagblaðinu New York Times þar sem sagt er frá grun um framhjáhald hans með Iseman. New York Times fullyrðir að sumir helstu ráðgjaf- ar McCains hafi verið sannfærðir um að samband hans við Iseman væri orðið að ástarsambandi. Blaðið segir ráðgjafana þeirrar skoðunar að jafnvel þótt samband þeirra væri bara vinátta, eins og þau bæði halda fram, gæti það varpað skugga á orðspor McCains. Vandinn sé sá að McCain sé formaður þingnefndar sem oft fái til afgreiðslu mál sem varði hagsmuni þeirra samtaka eða fyrirtækja sem Iseman taki að sér. Árið 1999 skrifaði McCain tvö bréf til þingnefndar þar sem hann bar fram erindi fyrir hönd fyrirtækis sem Iseman hafði á sinni könnu. McCain hafði þá nýlega fengið tuttugu þúsund dala framlag frá þessu fyrirtæki í kosningasjóð sinn. - gb John McCain sakaður um framhjáhald í miðri kosningabaráttunni: Segir ekkert hæft í ásökunum VICKI ISEMAN Segir ekkert athugavert við vináttu þeirra McCains. NORDICPHOTOS/AFP ALÞINGI Mótvægisaðgerðir ríkis- stjórnarinnar sem boðað var til vegna niðurskurðar þorskafla verða endurskoðaðar ef loðnuver- tíðin bregst algjörlega. Geir H. Haarde forsætisráðherra upplýsti það á Alþingi í gær. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður VG, innti Geir eftir aðgerð- um stjórnvalda til að mæta tekju- tapi byggðanna í ljósi loðnu veiðibanns. Sagði Geir gjörbreytta stöðu uppi ef loðnuveiðarnar fara út um þúfur. Steingrími fundust svör Geirs heldur rýr í roðinu og mælti með því að stjórnin spýtti í lófana og gripi til aðgerða til að mæta tekju- tapi fólks og sveitarfélaga sem harðast yrðu úti. Geir og Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra upplýstu að loðnumiðin yrðu vöktuð og sagði Einar að fyndist meiri loðna gætu veiðar hafist á ný. Ólöf Nordal Sjálfstæðisflokki lýsti áhyggjum af ástandinu enda hlypi tjónið á milljörðum og hefði áhrif á afkomu hundruða manna. Hvatti hún ráðherra til að auka hafrannsóknir um leið og hún lagði áherslu á að enginn velktist í vafa um að stjórnvöld gerðu allt sem þau gætu til að leita að loðn- unni. - bþs Ríkisstjórnin endurskoðar mótvægisaðgerðirnar ef loðnuveiðarnar bregðast: Loðnumiðin verða vöktuð EINAR K. GUÐFINNSSON Sjávarútvegs- ráðherra segir að ef meiri loðna finnist geti veiðar hafist á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON LÁGFÓTA Augu refanna glitra þegar lýst er á þau í myrkri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM STJÓRNMÁL Geir H. Haarde forsætisráðherra og Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra gengu í gær frá breytingum á orkufrumvarpi hins síðarnefnda. Eftir nokkurra vikna meðferð samþykkti þingflokkur sjálfstæð- ismanna frumvarpið í fyrradag með óskum um breytingar. „Það tók svona fimm mínútur að afgreiða þetta,“ sagði Össur um fund þeirra Geirs í gærmorgun. Að hans sögn eru breytingarnar smávægilegar og lúta til dæmis að gildistöku og tímarömmum. Ákvæði frumvarpsins um eignarhald auðlinda er óbreytt. - bþs Eining um orkufrumvarpið: Náðu saman á fimm mínútum GEIR H. HAARDE ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON LEIT Þyrla og flugvél frá Land- helgisgæslunni leituðu auk breskrar Nimrod-flugvélar í gær að flugmanni eins hreyfils flugvélar af gerðinni Piper PA28 sem hvarf af ratsjá laust fyrir hálf tólf í gærmorgun. Var vélin þá stödd um 130 sjómílur suðaustur af Hornafirði. Vélin, sem skráð er í Bandaríkj- unum, fór frá Reykjavík klukkan hálf tíu í gærmorgun og var ferðinni heitið til Wick í Skot- landi. Gervihnöttur nam merki frá neyðarsendi vélarinnar laust fyrir hádegið í gær. Aðstæður til leitar eru mjög erfiðar, mikill vindur og ölduhæð sjö til níu metrar. Varðskip kom á svæðið um klukkan níu í gær- kvöld og hélt það leitinni áfram í nótt. Fokker-flugvél Landhelgis- gæslunnar hóf svo aftur leit í birtingu í morgun. - ovd Leita að flugmanni við Ísland: Flugvél í sjóinn austur af Höfn TF-LÍF Á FLUGVELLINUM Í EYJUM Þyrla Landhelgisgæslunnar kom við í Vestmannaeyjum til að taka eldsneyti. MYND/ÓSKAR FRIÐRIKSSOON KÓLUMBÍA, AP Talið er líklegt að kólumbíski skæruliðahópurinn FARC muni á næstu dögum eða vikum sleppa að minnsta kosti þremur kólumbískum stjórnmála- mönnum sem hafa verið í haldi þeirra í yfir sex ár að því er utanríkisráðherra Frakklands. FARC vill skipta á yfir 40 gíslum, þar á meðal fyrrum frambjóðandanum Ingrid Betancourt og þremur bandarísk- um verktökum, fyrir hundruð skæruliða í kólumbískum fangelsum. - sdg Skæruliðar í Kólumbíu: FARC hyggst sleppa gíslum Björn Ingi kvaddur í Höfða Kveðjuhóf var haldið í gær fyrir Björn Inga Hrafnsson, fyrrverandi borgar- fulltrúa, sem lét af embætti nýverið. Björn sat í borgarstjórn frá síðustu kosningum. REYKJAVÍK BANDARÍKIN, AP Bandaríkjaher telur víst að brakið úr njósna- hnettinum, sem skotinn var niður yfir Kyrrahafi með flugskeyti í fyrrinótt valdi hvorki skemmdum né hættu fyrir nokkurn mann á jörðu niðri. Flugskeyti var í fyrrinótt skotið frá bandarísku herskipi á gervihnöttinn sem var orðinn stjórnlaus og á hægri leið til jarðar. Hættan af njósnahnettinum stafaði helst af hýdrasíneldsneyt- inu, sem var um borð. Eldsneytis- tankurinn var nærri fullur og hefði getað valdið gríðarsterkri sprengingu í harðri lendingu. - gb Bandaríski herinn: Gervihnöttur skotinn niður SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.