Fréttablaðið - 22.02.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 22.02.2008, Blaðsíða 4
4 22. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR Launavístala hækkar Hagstofa Íslands mældi 1,3 prósenta hækkun á launavísitölu milli janúar og desember. Vísitalan hefur hækkað um 6,2 prósent á tólf mánuðum. HAGTÖLUR NOREGUR, AP Öflugur jarðskjálfti varð skammt frá Svalbarða í fyrrinótt. Skjálftinn mældist 6,2 á Richter og er sá sterkasti sem mælst hefur á þessum slóðum. „Þetta er afar sjaldgæft,“ sagði Conrad Lindholm, jarðskjálfta- fræðingur í Noregi. Upptök skjálftans voru um 140 kílómetra suðaustur af Longyear- byen, 1.800 manna bæjarfélagi á Svalbarða. Engar skemmdir urðu, en íbúarnir fundu vel fyrir hamförunum. „Ég vaknaði vegna þess að rúmið mitt hristist og allt skalf í húsinu,“ sagði Herdis Lien, íbúi í Longyearbyen. - gb Jarðskjálfti við Svalbarða: Sterkari skjálfti aldrei mælst ORKA Fundur hefur enn ekki verið boðaður um REI hjá stjórn Orkuveitunnar og því torséð að fundað verði í vikunni. Til stóð að halda aukafund um REI og ganga frá kjöri stjórnar í vikunni en stjórnarformannslaust hefur verið frá áramótum þegar Bjarni Ármannsson hætti. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins stafar töfin af ólíkum hugmyndum um framtíðarstjórn- un fyrirtækisins innan nýs meirihlutasamstarfs. Sumir telji REI-skýrsluna binda hendur meirihlutans þannig að einungis stjórn OR geti í raun stýrt REI. Aðrir telji svið fyrirtækjanna of ólík til að svo geti orðið. - kóþ Enginn fundur verið boðaður: Stjórnlaust REI í eina viku enn ALÞINGI Gjaldtaka ríkisins af eldsneyti er til heildarendurskoð- unar á vegum fjármálaráðu- neytisins. Geir H. Haarde forsætisráð- herra sagði á Alþingi í gær engar ákvarðanir fyrirliggjandi um að lækka álögur hins opinbera á bensín og dísilolíu. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjáls- lynda flokksins, spurði hann út í málið. Um leið og Geir greindi frá endurskoðuninni sagði hann málið umdeilt, sumir vildu lækka þessar álögur til að lækka flutningskostnað en aðrir vildu að vegfarendur borguðu í samræmi við hve illa bílar þeirra færu með vegina. - bþs Gjaldtaka ríkisins af eldsneyti: Álögur á bensín í endurskoðun DÆLT Á Eldsneytisverð er í sögulegu hámarki um þessar mundir. Er mikið álag í vinnunni? LGG+ er fyrirbyggjandi vörn! Oft koma fyrstu einkenni streitu fram sem stöðug þreyta og óþægindi í maganum og ónæmiskerfið starfar af minni krafti en áður. Rannsóknir sýna að LGG+ vinnur gegn þessum neikvæðu áhrifum og dagleg neysla þess tryggir fulla virkni. H V Í T A H Ú S IÐ / S ÍA ALÞINGI „Hvaða kona sem kemur inn á neyðarmóttöku með niður- gang, uppköst, svitaköst, hræðslu- köst og talar samhengislaust – hvaða kona sem svo er ástatt um er að koma úr sjálfviljugum kynmök- um?“ Þannig spyr Atli Gíslason, þing- maður VG, sem hefur lagt fram frumvarp sem miðar að því að ger- endur í nauðgunarmálum megi sak- fella á grundvelli afleiðinga gjörða þeirra. „Ég vil beina augum réttarvörslu- kerfisins að afleiðingum brotsins sem eru sönnun þess rétt eins og lík er sönnun morðs og nefbrot er sönn- un líkamsárásar,“ segir Atli. Í gildandi lögum segir að um nauðgun ræði þegar kynferðismök fari fram með ofbeldi eða hótunum. Viðurlög eru fangelsisvist í eitt til sextán ár. Atli segir að í takt við lagatextann einblíni dómarar á verknaðaraðferðina og því verði að breyta lögunum. Tillaga hans er einföld, í lögum á að standa „hver sem gerist sekur um nauðgun skal sæta fangelsi ekki skemur en tvö ár og allt að sextán árum“. Greinargerð frumvarpsins er óvenjulöng og ítarleg, alls fjórtán blaðsíður. Í henni kemur fram að árið 2003 bárust 103 kærur vegna nauðgana, ákært var í sextán málum en sakfellt í fimm. - bþs Atli Gíslason harmar fáar sakfellingar í nauðgunarmálum og leggur til breytingar: Áhersla á aðferð verði felld úr lögum ATLI GÍSLASON Vill að dæmt verði í nauðgunarmálum á grundvelli afleið- inga, ekki verknaðaraðferð. VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 7° 8° 3° 6° 7° 14° 13° 12° 9° 12° 18° 15° 12° 14° 20° 0° 28° 12° 2 Á MORGUN 10-18 m/s, hvassast sunnan til um hádegi. -6 -3 0 SUNNUDAGUR 10-15 m/s með strönd- um, annars hægari. -3 -3 -5 -4 3 1 0 6 8 5 6 5 6 3 6 6 8 8 -5 -5 1 21 -3 -3 -3 0-1 LAUGARDAGUR INN Á laugardagsmorgun kemur lægð upp að sunnanverðu landinu. Henni fylgir nokkuð hvass vindur, fyrst suð- vestan til. Þessari lægð fylgir úrkoma, slydda syðst, annars snjókoma. Snjó- komubeltið nær síðan norður yfi r heiðar síðdegis með skafrenningi og slæmu skyggni. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur LÖGREGLUMÁL Íslenski karlmaður- inn sem situr í einangrun í fang- elsi í Færeyjum getur fengið allt að tíu ára fangelsi verði hann dæmdur fyrir fleiri en eitt brot. Þetta segir Linda Margarete Hasselberg, saksóknari í máli mannsins. Íslendingurinn, sem er um þrí- tugt, var tekinn í tengslum við Pólstjörnumálið með tvö kíló af fíkniefnum sem voru í skottinu á bíl hans. Jafnframt verður hann ákærður fyrir hlutdeild í því máli í heild sinni, þar sem gerð var til- raun til að smygla um fjörutíu kílóum af fíkniefnum með skútu hingað til lands. Skútumennirnir höfðu viðdvöl hjá manninum í Færeyjum á leið sinni hingað. Íslendingurinn hefur verið í ein- angrunarvist í fangelsinu frá 18. september síðastliðnum, að einum mánuði undanskildum. Þá var hann í opinni gæslu, en var síðan settur aftur í einangrun. Gæslu- varðhaldsvist hans rennur út 7. mars, að sögn saksóknara, en þá verður maðurinn leiddur fyrir dómara á nýjan leik. Hann hefur ætíð kært úrskurð undirdóms, en æðra dómstig staðfest hann. Máls- meðferð hefst 7. apríl. Saksóknari segir ljóst að maður- inn verði að minnsta kosti dæmd- ur í fjögrra ára fangelsi. Því sé kviðdómur kallaður saman til að úrskurða um sekt hans eða sak- leysi. Komist kviðdómur að þeirri niðurstöðu að Íslendingurinn sé sekur um fleiri en eitt lagabrot, vörslu fíkniefna og hlutdeild í öllu smyglmálinu getur hann fengið allt að fimmtán ára fangelsi. Sak- sóknari kveðst þó ekki hafa trú á að refsidómurinn verði svo þungur, en maðurinn geti hlotið allt að tíu ára fangelsi verði hann sekur fundinn um fleiri en eitt brot gegn lögum. Spurður hvernig fylgst sé með líðan mannsins í þessari löngu ein- angrunarvist segir saksóknari að starfsmenn á vegum embættisins fylgist með henni. Ekki hafi borist neinar upplýsingar aðrar en þær að allt sé í lagi með hann miðað við að hann sé í einangrun sem vissu- lega sé álag. Íslendingurinn hefur búið í Fær- eyjum um skeið og á þar fjöl- skyldurætur. Hann hefur verið við vinnu en á ekki afbrotaferil að baki þar. Maðurinn á yfir höfði sér brott- vísun og innkomubann í Færeyj- um eftir afplánun dóms sem kveð- ur á um tveggja ára fangelsisvist eða meira. jss@frettabladid.is Einangrunarfangi getur fengið tíu ár Íslendingurinn sem setið hefur í einangrun í fangelsi í Færeyjum mánuðum saman getur átt yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsisdóm, að sögn saksóknara þar. Gæslu- varðhald yfir honum rennur næst út 7. mars. Málsmeðferð hefst 7. apríl. EINANGRUNARVIST Í FÆREYJUM Íslendingurinn sem situr í fangelsi í Færeyjum, grunaður um hlutdeild í Pólstjörnumálinu, getur átt yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi. STJÓRNMÁL Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur skrifað Seðlabankanum bréf þar sem leitað er álits sérfræðinga bankans á stöðu þjóðarbúsins. Guðni greindi frá þessu á Alþingi í gær. Sagði hann bréfið skrifað í nafni þingflokks framsóknarmanna og að leitað væri álits á mörgum sviðum þjóðarbúsins. Kvað hann þá leið eina kostinn þar sem Þjóðhagsstofnun hefði verið lögð niður. Upplýsingar væri því ekki að fá annars staðar frá. - bþs Formaður Framsóknarflokksins: Vill upplýsingar úr Seðlabanka GUÐNI ÁGÚSTSSON formaður Framsókn- arflokksins. Reyndi að ræna snyrtistofu Karlmaður um þrítugt reyndi að ræna fótaaðgerðastofu á Hverfisgötu í gær. Hrinti maðurinn afgreiðslukonu og heimtaði peninga. Afgreiðslukonan flúði og hvarf þá maðurinn af vett- vangi. Hann var handtekinn skömmu síðar. LÖGREGLUFRÉTTIR GENGIÐ 21.02.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 129,9141 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 66,92 67,24 130,98 131,62 98,59 99,15 13,225 13,303 12,53 12,604 10,583 10,645 0,6184 0,622 105,88 106,52 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.