Fréttablaðið - 22.02.2008, Blaðsíða 48
útlit
smáatriðin skipta öllu máli
Nú er hægt að framkvæma húðslípun
á baðherberginu heima með lítilli fyr-
irhöfn. Húðslípun gerir það að verk-
um að húðin fær fallegri áferð, minnk-
ar fínar línur og jafnar húðlitinn.
Þetta endurnýjar húðina, örvar
myndun nýrra húðfruma og
hreinsar óhreinindi úr svitahol-
um. Fullkomin lausn fyrir anna-
samar konur.
Sport Water frá Jil Sander er ómissandi í íþróttatöskuna. Það er þó ekki mælt
með því að spreyja því á sig í stað þess að fara í sturtu eftir æfingar heldur
spreyja því á sig á eftir sturtunni. Það er ávísun á vel lyktandi og góðan dag.
FERSKLEIKI Í FLJÓTANDI FORMI
Í vor- og sumar-línunni frá Chanel er hið sanna
franska útlit áber-
andi. Húðin á að
vera skjannahvít og
slétt, varirnar í rauð-
um tónum og þykkur
eye-liner undirstrik-
ar frönsku stemning-
una. Bláa naglalakk-
ið gerir það að verk-
um að útlitið verður
ekki væmið heldur
smart. Þeir sem
héldu því fram að það væri dottið úr tísku höfðu
greinilega rangt fyrir sér. Til að fá þessa
fallegu hvítu áferð er nauðsynlegt að
nota undirfarðann, Le Blanc De Chan-
el. Hann virkar eins og uppspretta
ljóssins, bætir áferð húðarinnar og
gefur henni ljóma. Það er bæði hægt
að setja undirfarðann undir meik-
ið eða blanda honum saman við það
og fá þannig aukinn ljóma. Til að kór-
óna útlitið er púðrinu, Pöudre Christ-
alline, dúmpað yfir andlitið. Það er hálf-
glært og gefur húðinni eðlilegan
blæ. Augnskuggapalletta sum-
arsins er með óvenjulegri
áferð, djúpir litir í bland
við léttari liti sem
glitra og svo kemur
eye-linerinn ofan á
til að gera útlitið
fullkomið. Þær
Chanel-skvísur
sem ætla að
taka útlit-
ið alla leið
þurfa að
skipta brún-
kukreminu út
fyrir Le Blanc De
Chanel og afpanta
hið snarasta ferðina til
Kanarí.
HEIMASPA Á METTÍMA
Modern friction frá Orgins
Húðslípun á baðinu heima.
Borði á 2-3 í viku á hreina og
þurra húð. Nuddið inn í húð-
ina í 30 sekúndur með hringlaga
hreyfingum. Svo er hreinsað af
með vatni.
Dagkrem frá orgins
Gott er nota kremið eftir að
húðslípun hefur farið fram.
Serum á húðina
Berið það á andlitið en það
nærir húðina og kemur í veg
fyrir öldrun.
Chanel leggur áherslu á hvítt andlit og tæra liti
Chanel-skvísur
vilja vera hvítar
1
2
3
1. Le Blanc De
Chanel fær húðina
til glóa af fegurð.
2. Döggblátt nagla-
lakk er algerlega
málið. Þessi litur er
nr. 461.
3. Augnskuggapallí-
ettan er í mildum
litum og örlitlu glitri.
12 • FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008