Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
4. apríl 2008 — 91. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Egill Einarsson þúsundþjalasmiður er snjall
þegar kemur að því að elda góðan mat. Þegar
Egill bragðar á rétti sem honum líkar er hann
óhræddur að spyrjast fyrir um innihaldaðferð Up áh
gulrót, tvær matskeiðar af steinselju og tómatsósu,
fjórir desilítrar af rjóma, fjórir hvítlauksgeirar tvær
matskeiðar sojasósa og smjörAðferði
Saltfiskur í rjómasósu
Saltfisk er afar auðvelt að matreiða og möguleikarnir eru nánast endalausir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Matreiðslunám-skeið á Ítalíu eru spennandi kostur fyrir þá sem hafa áhuga á ítalskri matargerð. Á vefsíðunum, www.theitaliancook-ingschool.com, www.taste-italia.com, www.cookitaly.com og www.italiangourmet.com má finna upplýsingar um námskeið í boði.
Mango Lassi er indverskur drykkur sem er svolítið eins og mangóhristingur. Í drykkinn þarf aðeins 2,5 dl hreina jógúrt, 1 1/3 dl mjólk, 200 g mangó og 4 tsk. sykur sem sett er í bland-ara, hellt í glös og
borið fram
kalt.
Náttúrulækninga-félagið stendur fyrir tveimur matreiðslunámskeið-um í Hússtjórnarskólanum á Sólvallagötu, laugardaginn 5. apríl og sunnudaginn 6. apríl frá kl. 11.00 til 18.00. Námskeiðin bera yfirskrift-ina Grænt og gómsætt, holl-ustan í fyrirrúmi og skráning er í síma 552-8191.
6.290 kr.
4ra rétta tilboðog nýr A la Carte
· Léttreiktur lax með granateplum og wasabi sósu ·· Tom Yum súpa með grilluðum tígrisrækjum ·· Kryddlegin dádýralund með seljurótarsósu ·· Banana- og súkkulaðifrauð með vanillusósu ·
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn með sérvöldu víni með hverjum rétti: 9.680 kr.
VEÐRIÐ Í DAG
EGILL EINARSSON
Auðvelt og skemmtilegt
að elda góðan saltfisk
matur
Í MIÐJU BLAÐSINS
Styrkur smæðarinnar
„Nálægðin við valdhafana er hér
óvenjumikil og ég tel þannig að
íslenskt samfélag sé lýðræðislegra
sem sjálfstætt ríki en eitt horn í
stærra ríki,“ skrifar Katrín Jakobs-
dóttir.
UMRÆÐAN 28
Ólafur Darri breytir um
lífsstíl
Fórnar 30
kílóum í þágu
listarinnar.
FYLGIR
FRÉTTABLAÐINU
Í DAG
RÁÐSTEFNUR OG HVATAFERÐIR
Lopapeysur, leikir og
dillandi sígaunatónlist
Sérblað um ráðstefnur og hvataferðir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
FÖSTUDAGUR4. APRÍL 2008
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
10 kíló f i
JÓN ARNAR
OG INGIBJÖRG
Tvær glæsivillur
til sölu
FÖSTUDAGUR
ráðstefnur og hvataferðir
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008
Ráðstefnuþjónusta
Engjateig 5
105 Reykjavík
Sími: 585 3900www.congress.is
M
A
G
ES
Reynsluboltar með Bubba
Þeir Páll Rósinkrans,
Magni Ásgeirsson
og Eiríkur Hauksson
munu leggja dóm-
nefndinni lið.
FÓLK 45
Að verða andsetinn
Jón Gnarr er á góðri leið
með að breytast í Georg
Bjarnfreðarson að nýju.
FÓLK 44
ÚTVIST Þrátt fyrir að vera óvanir
skíðagöngu ætla smiðirnir Hans
Stephensen og Kristinn Einarsson
að taka þátt í skíðagöngukeppni á
Grænlandi um helgina sem telst
vera sú erfiðasta í heimi. Á þremur
dögum skíða þeir eitt hundrað
kílómetra og mun hópur frétta-
manna frá breska ríkissjónvarp-
inu, BBC, og þýsku sjónvarpsstöð-
inni ZDF fylgjast með keppninni.
Hans og Kristinn eru að byggja
virkjun í Öðrumfirði á Grænlandi
á vegum Ístaks sem er styrktar-
aðili keppninnar. „Við tökum einn
dag í einu. Við erum ekki að keppa
um fyrsta sætið heldur við sjálfa
okkur,“ segir Hans. - fb /sjá síðu 54
Íslenskir smiðir á Grænlandi:
Í erfiðustu
keppni heims
OFURHUGAR Hans Stephensen og
Kristinn Einarsson eru á leiðinni í mikla
svaðilför.
VÍÐA BJART VEÐUR Í dag verður
allhvöss norðanátt austast, annars
mun hægari. Skýjað með köflum og
stöku él norðaustan og austan til,
annars bjartviðri. Víða vægt frost.
VEÐUR 4
-3
-3
-2
2
0
HEILBRIGÐISMÁL „Læknanema
skortir oft sjúklinga til að æfa sig á
vegna þess hve legutími á sjúkra-
húsum hefur styst,“ segir Stefán B.
Sigurðsson, forseti læknadeildar
Háskóla Íslands. Hann nefnir sem
dæmi að fyrir sameiningu spítal-
anna hafi verið um 1.300 legupláss
á spítölunum en á nýjum spítala
sem á að reisa sé aðeins gert ráð
fyrir 600 slíkum plássum.
Breyttar áherslur í heilbrigðis-
málum hafa kallað á nýjar lausnir
fyrir læknanema. Til að mynda
hefur lyflæknisfræðin fengið leik-
ara til liðs við sig til að leika sjúk-
linga í verklegum prófum.
Runólfur Pálsson, dósent og
kennslustjóri í lyflæknisfræði,
segir að lyflæknisfræðin sé eina
greinin sem nýti sér krafta leikara
með þessum hætti. „Hins vegar
hefur þetta gefist svo vel að ég er
sannfærður um að það geti nýst á
fleiri sviðum en aðeins lyflæknis-
fræðinnar,“ segir hann.
Runólfur segir að helst hafi verið
leitað til leiklistarnema og eldri
leikara sem hafi tíma sinn ekki
undir lagðan í störf innan leikhúsa.
Eldri leikarar nýtist sérstaklega
vel þar sem meirihluti sjúklinga sé
venjulega í eldri kantinum. Þó komi
til greina að samkomulag verði gert
við leiklistarnema ef ráðist verði í
útvíkkun starfsins. - kdk
Sjúklingaskortur á Landspítalanum kallar á nýjar lausnir fyrir læknanema:
Leikarar nýtast læknanemum vel
ANDLITSLYFTING Borgaryfirvöld hafa hrint af stað allsherjar herferð gegn veggjakroti og öðrum óþrifnaði og niðurlægingu mið-
bæjarins. Ólafur F. Magnússon borgarstjóri kynnti í gær margþættar aðgerðir til að koma ásýnd yfirgefinna húsa í viðunandi horf
og höfðar til eigenda húsanna um samstarf til að halda miðbænum hreinum. Sjá síðu 10 FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÁSTRALÍA Talið er að maður hafi
bjargað lífi eiginkonu sinnar
þegar hann stökk á bakið á
saltvatnskrókódíl í þjóðgarði í
Norður-Ástralíu og potaði í augun
á honum.
Krókódíllinn hafði spyrnt sér
upp á árbakka og læst tönnunum í
fótlegg Wendy Petherick, og var
að draga hana út í ána þegar
maðurinn brást við, að því er
fram kemur á vef BBC.
„Ég stökk á bakið á honum og
leitaði að augunum. Ég fann þau
og potaði í þau, og þá sleppti hann
henni,“ segir Norm Petherick.
Wendy er alvarlega slösuð eftir
árás krókódílsins. - bj
Bjargaði lífi eiginkonunnar:
Hafði betur
gegn krókódíl
SVEITARSTJÓRNARMÁL Borgarfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins hafa að
undanförnu deilt um hvort Reykja-
vik Energy Invest (REI), útrásar-
fyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur,
eigi vinna að verkefnum á erlendri
grundu.
Sumir vilja ekki að Orkuveitan
„eyði skattpeningum á erlendri
grundu“, eins og einn borgarfull-
trúa komst að orði, á meðan aðrir
vilja vinna áfram að þeim verkefn-
um sem þegar hafa verið sett af
stað og eru langt komin. Það eru
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins helst Kjartan Magnússon
og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
Gísli Marteinn Baldursson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, seg-
ist ekki hafa áhuga á því að láta
Orkuveituna nýta skattfé til
„áhættuframkvæmda“ erlendis.
„Það er mín afstaða, og hefur allt-
af verið, að Orkuveitan eigi ekki
að standa í áhættuframkvæmdum
erlendis. Það er ekki hennar hlut-
verk. En ég get skilið að menn vilji
ekki hlaupa frá verkefnum,“ segir
Gísli Marteinn.
Forsvarsmenn Orkuveitu
Reykja víkur og REI halda um
helgina til Djíbútí í Austur-Afríku,
þar sem meðal annars er stefnt að
undirritun samkomulags um hag-
kvæmniathugun vegna uppsetn-
ingar jarðhitavirkjunar. Virkjunin
mun framleiða fimmtíu megavött
af rafmagni, gangi áætlanir eftir,
en stefnt er á tuttugu ára orkusölu-
samning við stjórnvöld.
Með í för verða meðal annars
Guðmundur Þóroddsson, forstjóri
REI, og Kjartan Magnússon, stjórn-
arformaður Orkuveitunnar og REI.
Kjartan segir það vera skýra stefnu
hans að gera engar ráðstafanir
fyrir hönd REI sem skuldbindi fyr-
irtækið fyrir miklar fjárhæðir. - mh
Ósætti borgarfulltrúa
um orkuverkefni REI
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins deila enn um hvort REI eigi að vera í útrás.
Forsvarsmenn Orkuveitu Reykjavíkur og REI fara til Afríkuríkisins Djíbútí um
helgina. Samkomulag um hagkvæmniathugun fyrir virkjun verður undirritað.