Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 8
8 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR BÚKAREST, FRÉTTABLAÐIÐ Sovétlýð- veldin fyrrverandi Georgía og Úkraína fá ekki að hefja formlegt aðildarferli að Atlantshafsbanda- laginu [Nató] að sinni. Í lokayfir- lýsingu leiðtogafundar Nató í Búkarest er kveðið á um aðild ríkjanna á endanum, án þess að tímasetninga sé getið. Fundi utan- ríkisráðherra aðildarríkjanna í desember var falið að fjalla um málið. Eftir stormasamar óformlegar viðræður í Búkarest í fyrrakvöld var útséð með að samstaða næðist um ósk ríkjanna tveggja, og kröfu Bandaríkjanna, um að hefja aðild- arferli. Ríki í Vestur-Evrópu, eink- um Þýskaland og Frakkland, voru á móti. Réði ótti við röskun jafn- vægis í austurhluta álfunnar þar mestu en Rússum er mjög í nöp við Nató-aðild nágranna sinna. Að sama skapi var aðildar- umsókn Makedóníu hafnað. Grikkir lögðust gegn henni á þeirri forsendu einni að nafn þessa nágrannaríkis væri ögrun við þá. Frá sjálfstæði Makedóníu og upptöku nafnsins árið 1991 hafa ríkin deilt. Makedónía hin forna heyrir að stærstum hluta til Grikklands. Samstöðu þarf meðal allra Nató-ríkja um allar ákvarð- anir bandalagsins og því varð vilji Grikkja ofan á. Makedóníumenn brugðust við niðurstöðunni með því að yfirgefa fundarstaðinn. Makedónía hafði fylgt form- legu aðildarferli síðustu misseri. Það höfðu Albanía og Króatía gert líka og á fundinum í gær var sam- þykkt að bjóða þeim aðild með formlegum hætti. Þar með verða aðildarríkin 28. Geir H. Haarde forsætisráð- herra telur þá málamiðlun sem varð um Georgíu- og Úkraínu- menn góða. „Ég hefði vel getað hugsað mér að þeir fengju aðild að aðildarferlinu en ég held að þetta sé mjög ásættanleg niður- staða,“ sagði Geir. Hann kvað Angelu Merkel, kanslara Þýska- lands, hafa beitt sér fyrir þessari niðurstöðu. Geir sagði vonbrigði að ágrein- ingur Grikkja og Makedónu- manna hefði ekki verið jafnaður. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fagnar stækk- un Nató. „Ég held að það sé til bóta að bandalagið stækki. Ég tel að það sé mikilvægt að það séu fleiri í bandalaginu og það hafi meiri breidd,“ sagði Ingibjörg Sólrún í gær. Leiðtogafundi Nató lýkur í dag. bjorn@frettabladid.is Ég tel að það sé mikil- vægt að það séu fleiri í bandalaginu og það hafi meiri breidd. INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR UTANRÍKISRÁÐHERRA SAMGÖNGUR Vélarbilun kom upp í Herjólfi í gærmorgun og af þeim sökum bættust rúmlega tuttugu mínútur við hefðbundinn ferða- tíma skipsins. Bilunin gerði það að verkum að skipið keyrði á ellefu mílum í stað þeirra fjórtán til fimmtán mílna sem venja er þegar báðar vélarnar eru starfhæfar. Unnið var að viðgerð í gær og ekki ljóst hvenær henni lyki. - kg Herjólfur var seinn í gær: Sigldi á annarri vélinni til Eyja 1. Í hvaða borg í Danmörku var framið stórt rán á þriðju- dag? 2. Hver skoraði mark Liverpool í leik liðsins gegn Arsenal á miðvikudag? 3. Hvað heitir næsta mynd leikstjórans Baltasars Kormáks? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 54 Guðríðarstíg 2-4 113 Reykjavík Sími 545 1000 www.hugurax.is VIÐSKIPTAKERFIÐ VERÐUR AÐ GETA BREYST JAFNHRATT OG VIÐSKIPTAUMHVERFIÐ. HNÖKRALAUS ÞJÓNUSTA FRÁ FYRSTA DEGI. Microsoft Dynamics AX er öflugasta viðskipta- kerfið frá Microsoft og leysir þarfir fyrirtækisins, allt frá nákvæmri úrvinnslu fjárhagsupplýsinga til skipulagningar á flókinni framleiðslu. Microsoft Dynamics AX gerir fyrirtækjum í framleiðslu, dreifingu og þjónustu kleift að bregðast við breytingum á markaði á hraðvirkan og hagkvæman hátt. Microsoft Dynamics AX lagar sig að þörfum fyrirtækisins fremur en að setja starfseminni skorður. „Innleiðing Microsoft Dynamics AX var viðamikið verkefni fyrir okkur hjá Nóa Síríusi þar sem við vorum að nota margar sérlausnir eins og tollakerfi, vöruhúsakerfi og handtölvu- kerfi. Fyrstu vikurnar eftir gangsetningu Dynamics AX fengum við góða aðstoð og stuðning frá starfsmönnum HugarAx. Við gátum haldið uppi hnökralausri þjónustu strax frá fyrsta degi.“ – Rúnar Ingibjartsson Rúnar Ingibjartsson, forstöðumaður upplýsingasviðs hjá Nóa Síríusi. Albanía og Króatía í Nató Leiðtogafundur Nató samþykkti aðild Albaníu og Króatíu í gær. Grikkir komu í veg fyrir aðild Makedóníu. Forsætisráðherra metur málamiðlun um að Georgía og Úkraína fá aðild í „framtíðinni“ góða. AÐILDARRÍKI NATÓ Stofnendur (1949): Bandaríkin Belgía Bretland Danmörk Frakkland Holland Ísland Ítalía Kanada Lúxemborg Noregur Portúgal Ríki sem fengu inngöngu síðar: Grikkland (1952) Tyrkland (1952) Þýskaland (1955) Spánn (1982) Pólland (1999) Tékkland (1999) Ungverjaland (1999) Búlgaría (2004) Eistland (2004) Lettland (2004) Litháen (2004) Rúmenía (2004) Slóvakía (2004) Slóvenía (2004) Samþykkt í Búkarest 2008: Albanía Króatía Á LEIÐTOGAFUNDI NATÓ Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir utanríkisráðherra sátu fyrir svörum í Búkarest í gær. Leiðtogafundi Nató lýkur í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON Mannskætt flugslys Flugmálayfirvöld í Súrínam í Suður- Ameríku greindu frá því í gær að farþegaflugvél af gerðinni Antonov- AN28 hefði hrapað á leið frá höfuð- borginni Paramaribo. Með henni hefðu farist 19-20 manns, flestir verkamenn frá Brasilíu. SÚRÍNAM VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.