Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 44
● fréttablaðið ● ráðstefnur og hvataferðir 4. APRÍL 2008 FÖSTUDAGUR4 Eva María Jónsdóttir dagskrárgerðar- kona segir frá óvenjulegum og jafn- framt skemmtilegum degi í lífi sínu þegar hún var kynningarstýra á starfs- degi Skipta hf. „Ég sem hef unnið á stofnun næstum alla mína ævidaga verð að segja, að dagurinn þegar ég tók að mér hlutverk kynningar- stýru á starfsmannadegi hjá Skiptum hf. hafi verið óvenjulegur,“ rifjar Eva María Jónsdóttir dagskrárgerðarkona upp og bætir við að uppákoman hafi verið haldin í salnum í Egilshöll og allt ansi stórt í snið- um, enda um að ræða fyrirtæki með mörg hundruð starfsmenn innanborðs. „Stofnun eins og Ríkisútvarpið hefur hingað til ekki skapað hefð fyrir því að halda einu sinni á ári dag sem tileinkað- ur er starfsfólki sínu. Dag þar sem næra á anda og líkama og fræða fólk og hvetja. Allt til þess að fólk skemmti sér saman og efli liðsheildina. En þetta gerðu þeir hjá Skiptum hf.,“ segir hún. Eva María minnist þess að fyrri hluti dagsins hafi verið helgaður fyrirlestr- um og fræðslu. „Topparnir mættu og töl- uðu á mannamáli fyrir framan sitt fólk. Svo komu fram eldhugar utan úr bæ til að tala. Ég man að Svafa Grönfeldt geyst- ist um sviðið og Margrét Pála Ólafsdóttir fékk flesta til að hlæja og suma til að gráta þegar hún mætti.“ Að sögn Evu Maríu kenndi Ásta Valdi- marsdóttir hláturjógakennari fólkinu hlátursæfingar fyrr um kvöldið og fékk þennan stóra hóp til að gera nánast hið ógerlega: springa úr hlátri. „Fólkið hló og hló og mitt sjónarhorn út í salinn varð ansi ógleymanlegt fyrir vikið. Auðvitað voru einhverjir þrír sem sátu fýldir og hristu hausinn. En við þessar aðstæður voru það akkúrat þeir sem skáru sig úr og virkuðu fremur asnalegir.“ Eva María minnist líka keppni í liðs- heild með tilheyrandi útsjónarsemi. „Fólk- ið í hverju liði þekktist ekki endilega, enda saman kominn fjöldi fólks sem starfar í aðskildum fyrirtækjum, dótturfélögum Skipta. Í leikjunum voru gefin stig fyrir ár- angur, liðsheild og hugmyndaauðgi. Þarna kom sannarlega í ljós hvað klikkaðar hug- myndir geta virkað vel. Fólki finnst greini- lega skemmtilegra að taka þátt í því að láta klikkaðar hugmyndir verða að veruleika en því sem er hefðbundnara,“ segir hún. Eva María viðurkennir að hún hafi oft haldið að hún væri vaxin upp úr leikjum og hafi ekki gefið mikið fyrir þá kenningu að sú þörf sé manninn eðlislæg alla ævi. En það sem hún hafi lært á þessum degi er að fullorðið fólk er ekki síður leikglatt en börn. „Það var hugvíkkandi reynsla að sjá þetta uppkomna fólk hlaupa, glettast, hafa hátt og missa sig í dansi, þótt allt hafi verið skipulagt í þaula. Dagurinn kenndi mér margt og braut niður alls konar fordóma sem ég hef til- einkað mér á fullorðinsárunum. Ég segi ekki að ég sé síleikandi mér, en eftir að snjóa leysti hef ég endurvakið teygjutvist. Ég virðist engu hafa gleymt í þeim efnum,“ segir hún og hlær. - vg Teygjutvistið endurvakið Eva María Jónsdóttir taldi sig vera vaxna upp úr leikjum, þar til hún tók þátt í starfsmannadegi Skipta hf. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Árshátíðir eru oftast skemmtilegar. Starfs- fólk kemur saman í sínu fínasta pússi. Ferðast jafnvel til stórborga heimsins. Gæðir sér á góðum mat og gleymir amstri hversdagsleikans. Fyrir þá sem vilja eitthvað alveg nýtt er kannski Þórsmörk málið. Fæstir hugsa um þessa náttúru- perlu sem vettvang árshátíða. HL adventure stendur fyrir lengri og skemmri hvataferðum og veislu- höldum. Meðal ferða og viðburða er árshátíð í Þórsmörk, sem án efa vekur í brjósti fortíðarþrá hjá ýmsum. Þetta er árshátíð í lo- papeysu og gúmmískóm þar sem gleðin er við völd. Ferðin hefst í rútu sem fer inn í Þórsmörk. Þar bíða uppbúin rúm og hressi leg- ur göngutúr svo fólk verði ferskt fyrir skemmtun kvöldsins. Þeir sem vilja slappa af geta lagst í heita pottinn. Síðan er boðið í fordrykkinn Ís- lenskt fjallafreyði á pallinum. Skálinn er fag- urlega skreytt- ur og svo tekur við hlað- borð með íslenskum kræsing- um. Bjarni töframaður er í broddi fylkingar á meðan á borðhaldi stendur. Eftir matinn tekur við sönn skálastemning með íslenskri kvöldvöku þar sem skemmtikraft- arnir Eyjólfur Kristjánsson og Stefán Hilmars halda uppi stemm- ingu langt fram á nótt. Árbítur er síðan á borðum fram eftir morgni og á hádegi er haldið í borgina á ný. HL býður upp á lengri og skemmri ferðir, bæði hvataferðir, hópefli og veisluhöld innanlands sem utan, og má nefna lengri ferð- ir á Grænlandsjökul og Vatnajök- ul. Allar nánari upplýsingar: www. hvataferdir.is - rh Sannkölluð skálastemming á árshátíð í Þórsmörk. Árshátíð í lopapeysu og gúmmískóm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.