Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 70
38 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Það verður sífellt algengara að tónlistarmenn fari óhefðbundnar leiðir í
plötuútgáfu. Undanfarin ár hafa sprottið upp MP3-útgáfur sem dreifa
tónlist alfarið í gegnum Netið. Það hefur ekki farið mikið fyrir slíkri
starfsemi hérlendis það sem af er, en í desember sl. var stofnuð ný
íslensk plötuútgáfa, Coxbutter, sem er þegar búin að gefa út fimm plötur.
Coxbutter sem hefur slóðina www.coxbutter.com er hugarfóstur Class
B og Didda Fel úr Forgotten Lores og hönnuðarins Ægis Æx sem einnig
kallar sig Chillus Maximus. Coxbutter-síðan er bæði flott og notendavæn.
Þú velur þér plötu úr útgáfulistanum og halar niður
zip-skrá sem inniheldur bæði lögin og fullhannað
umslag með framhlið og bakhlið. Allar útgáfur
Coxbutter eru ókeypis og standa öllum til boða.
Eins og áður segir eru þegar komnar fimm
plötur frá útgáfunni. Cox001 er Hvernig rúllar þú?
með Didda Fel & G. Maris, Cox002 er Rest of 2000 –
2007 (Rare, Unreleased & Remixes) með ofursveit-
inni Forgotten Lores. Á henni eru 27 lög. Cox003 er
Råcksta Vibes með Earmax, Cox004 er Upset EP
með Class B og nýjasta afurðin sem kom út um
síðustu helgi er stuttskífan Veturmær með
listamanni sem kallar sig Neðanjörður.
Nú eru kannski ekki eintóm meistarastykki á
þessum fimm plötum, en inni á milli leynast
frábær lög og meðalgæðin eru síst minni en hjá öðrum íslenskum
útgáfufyrirtækjum. Það verður líka að teljast helvíti öflugt að hafa gefið
út fimm plötur á innan við fjórum mánuðum. Frábært framtak fyrir
tónlistarunnendur og sannkölluð himnasending í kreppunni.
Einhverjir kunna að hafa efasemdir um viðskiptamódelið. Er eitthvað
vit í að hafa þetta allt ókeypis? Þeir Coxbutter-liðar hafa að sjálfsögðu
velt þeirri spurningu upp. Og svara því á síðunni: „Við viljum meina að
auður eigi sér margar birtingarmyndir og þar sem ekki er hægt að afla
fjár megi græða á fleiri vegu. Að skapa sér nafn, að ná eyrum fólksins, að
eignast aðdáendur eru þættir sem eru tónlistarmanninum nauðsynlegir
til að skapa honum og tónlist hans hljómgrunn.“
Coxbutter er málið í kreppunni
COXBUTTER Safnplatan
Rest of 2000–2007
með Forgotten Lores
er ein af fimm útgáfum
Coxbutter til þessa.
> Í SPILARANUM
R.E.M. - Accelerate
The Raconteurs - Consolers of the Lonely
Númer núll - Lykill að skírlífsbelti
Karl Örvarsson - Vantage Point (tónlist úr
kvikmynd)
Tapes ‘n Tapes - Walk It Off
R.E.M. TAPES ‘N TAPES
„Hans útgáfa er allt
öðruvísi. Hann
„strömmar“ þetta
eins og þetta sé
ballaða en ég er að
spila þetta nótu fyrir
nótu á kassagítar-
inn,“ segir Pétur
Ben, spurður um
útgáfu Chris Cornell
á Michael Jackson-
laginu Billie Jean.
Nýverið kvartaði
Cornell yfir flutningi
Idol-keppanda á
laginu sem var
nákvæmlega eins og
á plötu hans Carrie
On, sem kom út í fyrra. Þótti honum
ósanngjarnt að Idol-keppandinn hefði
fengið nánast allan
heiðurinn af
útgáfunni í þættin-
um.
Útgáfa Péturs,
sem er einnig í
rólegri kantinum,
hefur verið til á
Youtube síðan í lok
ársins 2006 en
útgáfa Cornells kom
ekki út fyrir en hálfu
ári seinna. Pétur
stórefast samt um að
Cornell hafi heyrt
útgáfu sína enda séu
þær ákaflega ólíkar.
„Það má hver sem er
taka þetta lag, ég á engan einkarétt á því,“
segir hann. - fb
Ballaðan Billie Jean
PÉTUR BEN Tónlistarmaðurinn Pétur Ben segir að
útgáfa hans og Chris Cornell séu afar ólíkar.
Sænska hljómsveitin Petter and the Pix, með Petter
Winnberg, fyrrverandi liðsmanni Hjálma, um borð,
á smáskífu vikunnar á heimasíðu iTunes í Bretlandi.
Um er að ræða lagið Nevermind sem er að finna á
fyrstu plötu sveitarinnar, Easily Tricked, sem kom
út hjá iTunes á mánudag. Platan sjálf er síðan
væntanleg í geisladiskaformi í Bretlandi eftir tvær
vikur.
„Við höfum tekið eitt skref í einu í þessu verkefni
og núna eru nokkrar bókunarskrifstofur í Bretlandi
undir smásjánni sem eru áhugasamar,“ segir
Stephan Stephensen hjá Jóni Jónssyni, sem sér um
umboðsmál Petter and the Pix. „Allir sem hafa
fengið þessa plötu fíla hana svo vel. Við sjáum hvað
gerist í framhaldinu með þessa útgáfu í Bretlandi.
Næsta skref verður tekið í samstarfi við breska
samstarfsmenn okkar,“ segir hann.
Easily Tricked kom út hérlendis í lok ársins 2006 á
vegum Pineapple Records og fékk hún góðar
viðtökur gagnrýnenda. - fb
Á smáskífu vikunnar hjá iTunes
PETTER WINNBERG Fyrrverandi liðsmaður Hjálma hefur gefið
út sína fyrstu sólóplötu hjá iTunes í Bretlandi.
Hvaða hljómsveit verður einkennandi fyrir
sumarið 2008, líkt og Justice, Hot Chip og
Gnarls Barkley hafa verið hin fyrri sumur?
Margir vilja nefna Hercules & Love Affair
og Vampire Weekend en Steinþór Helgi
Arnsteinsson er með nýja tillögu. Sumar-
partífílingur ársins kemur frá Cut Copy í
Ástralíu.
Þótt hljómsveitin Cut Copy hafi ekki mikið verið á
milli tannanna á tónlistarspekúlöntum fyrr en nú
hefur sveitin verið starfandi allt frá árinu 2001 og
er í raun ein af mikilvægustu hljómsveitum
hinnar alræmdu neu-rave bylgju. Frumburður
Cut Copy, platan Bright Like Neon Love frá árinu
2004, var ein af þeim fyrstu sem höfðu hressilega
reif- og ’80-nostalgíu í fyrirrúmi og lagði þar með
línurnar. Titill plötunnar segir kannski allt sem
segja þarf um boðskap Cut Copy.
Framúrskarandi plötufyrirtæki
Bright Like... kom út hjá ástralska plötufyrirtæk-
inu Modular. Fyrirtækið hafði fyrst slegið í gegn
árið 2001 með útgáfu Since I Left You með
Avalanches. Modular byrjaði þá að stækka við sig
og varð fljótt leiðandi í neu-rave bylgjunni með
The Presets, New Young Pony Club, Van She,
Midnight Juggernauts, Muscles og auðvitað Cut
Copy í fararbroddi. Í dag er því engum orðum
ofaukið þegar Modular er sagt með áhugaverð-
ustu plötufyrirtækjum heimsins.
Vinsælir spaðar
En að Cut Copy aftur. Áhrif Bright Like... komu
hægt og rólega upp á yfirborðið og fljótlega voru
piltarnir þrír í sveitinni vinsælir í hvers kyns
endurhljóðblandanir og einnig sjálf lögin á
plötunni. Var sveitin meðal annars fengin til að
setja saman mix-disk fyrir Fabric-klúbbinn í
London.
Cut Copy snýst samt meira eða minna í kring-
um einn mann, Dan Whitford að nafni. Hefur
hann að mestu staðið einn á bak við nafnið Cut
Copy og sér að mestu um lagasmíðar, endurhljóð-
blandanir og þess háttar.
Tónlistarhjartað á réttum stað
Ekki verður annað sagt en að mikil eftirvænting
ríki eftir nýju plötunni, In Ghost Colours. Fyrstu
smáskífulög plötunnar, So Hunted og Hearts on
Fire, vöktu strax verðskuldaða athygli og mikið
hefur verið ritað um Cut Copy í stóru tónlistar-
miðlunum síðan þá.
Þrátt fyrir að tengslin séu augljós við neu-rave
bylgjuna sem farið hefur nokkuð halloka að
undanförnu virðist það ekki hafa neikvæð áhrif á
Cut Copy. Sveitin setur líka tilfinningu fyrir
andrúmslofti á oddinn og leitast minna við að ná í
einhvern hippstera- eða tískuvitastimpil.
Frábær upptökustjóri
Hljómsveitin fékk engan smá andrúmslofts- og
partísmið til þess að hjálpa sér við gerð plötunnar.
Enginn annar en Tim Goldsworthy úr DFA-
genginu (sem á að baki plötur með The Rapture,
LCD Soundsystem, Prinzhorn Dance School, Juan
MacLean og nú síðast Hercules & Love Affair auk
margra bestu remix-laga áratugarins) var
fenginn á takkana og virðist hann hafa fallið eins
og flís við rass áströlsku kumpánanna.
In Ghost Colours kom út fyrir stuttu í Ástralíu
þar sem hún fékk fádæma góðar viðtökur og
hoppaði beint á topp sölulistans þar í landi. Á
næstunni kemur platan síðan út um allan heim.
Fyrir þau ykkar sem nennið ekki að bíða eftir
komu sumarsins er hægt að hlusta á alla nýju
plötuna inni á myspace.com/cutcopy.
Sumarið kemur frá Ástralíu
CUT COPY Þessir áströlsku strákar eiga eftir að verða áberandi
í sumar.
> Plata vikunnar
Sam Amidon - All is Well
★★★★
„Margbrotin plata þar sem
eðli mannskepnunnar sjálfrar
er lýst með sögum fortíðar en
sjónarhorni nútímans.“
SHA
Nýr vefur » Á hvað ert þú að hlusta?
„Sextán
og þú skalt sjá
mig í bíó...“
- 16, Grafík, Höf: Helgi Björnsson