Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 49
trúss sitt við kemur í ljós að hann villtist inn á leikhúsfjalirnar fyrir tilviljun. „Ég get nú ekki sagt að ég hafi alltaf ætlað mér að verða leik- ari þótt ég hafi alltaf haft áhuga á athygli og kunnað vel við hana,“ segir hann og bætir þeirri sjálf- sögðu skýringu við þetta að hann sé „náttúrulega miðjubarn“. „Ég slysaðist í raun út í þennan bransa þegar ég fór fyrir tilviljun í inntökuprófin með vini mínum sem ætlaði í Leiklistarskólann.“ Þessi tilviljun virðist þó, eftir á að hyggja, síður en svo hafa verið út í bláinn þegar horft er til glæsilegs ferils Ólafs Darra á sviði og í kvik- myndum. Leikarinn segir efann þó hafa sótt að sér. „Ég hef kannski aldrei efast um að þetta starfsval. Ég hef ef til vill frekar efast um hæfni mína eða að ég gæti orðið nógu góður. Á þann hátt hef ég efast og ég held að það sé eðlilegt. Þegar maður er að fást við leiklist, er mikilvægt að hafa sjálfstraust en einnig er mikil- vægt að naflaskoða sjálfan sig og velta fyrir sér hvort maður sé að gera nóg, gera vel og leggja sig allan fram.“ Ólafur Darri útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands árið 1998 og hefur haft nóg fyrir stafni síð- asta áratuginn. „Ég hef verið ótrú- lega heppinn og oft verið rétt- ur maður á réttum stað. Ég trúi á heppnina en hún dugar ekki ein og sér. Maður verður að leggja hart að sér og ég hef reynt að gera það. Ég hef líka verið heppinn að fá að vinna með mörgum frábær- um leikstjórum og leikhópnum mínum, Vesturporti.“ Passar ekki í öll hlutverk Þegar Ólafur Darri er spurður að því hvort hann telji að vöxtur hans og líkamsbygging hafi haft áhrif á í hvaða hlutverk hann hefur valist segir hann það að vissu leyti liggja í augum uppi. „Það náttúrulega liggur í hlutarins eðli að það er erf- iðara fyrir mig að leika sum hlut- verk frekar en önnur. Mér finnst ég aftur á móti hafa verið ótrúlega heppinn og oft fengið hlutverk sem ég var ekki líklegasti kandídatinn við fyrstu skoðun. Mér finnst mjög skemmtilegt að þetta hefur gerst aftur og aftur. Ég hef fengið að leika unga strákinn og gamla karl- inn og miðaldra konuna og allt þar á milli. Ég get ekki verið annað en þakklátur fyrir það. Ég geri mér alveg grein fyrir því að ég passa ekkert í öll hlutverk. En stund- um er gaman að ögra sjálfum sér og auðvitað finnst mér sem leik- ara spennandi að fá hlutverk sem passar mér ekki við fyrstu sýn. Enginn vill festast í því að leika bara einhverja eina ákveðna týpu. Mér finnst ég sem betur fer ekki hafa lent í því þótt það þýði ekki að ég hafi aldrei endurtekið mig enda kemst varla nokkur leikari hjá því. Ég reyni samt alltaf að ögra mér og fara í mismunandi áttir. Reyni maður að gera það af einlægni og heilindum þá ætti manni að ganga vel,“ segir hann. Alltaf í sporum annarra Ólafur Darri segir erfitt að svara því hvernig hann nálgist þær per- sónur sem hann túlkar. „Eitt sinn var mér sagt að ég ætti auðvelt með að setja mig í spor annarra. Vonandi er það rétt og ég held að það hafi reynst mér best. Ég held það sé óhætt að segja að ég hafi mikinn áhuga á fólki. Áhuga á að sjá hvað fær fólk til að gera hluti sem maður átti ekki von á. Aðalat- riðið er að dæma ekki fólk. Starf mitt er stórkostlegt vegna þess að í hvert skipti fæ ég að setja mig í fótspor einhvers annars,“ segir Ólafur Darri sem fólk getur til dæmis séð þessa dagana sem hippa og rannsóknarlögreglumann. Þessa dagana er hann svo sjómaður við tökur á Brimi og í haust mun gerbreyttur og grannur Ólafur Darri mæta fyrir framan töku- vélarnar þegar hann breytir sér í reiða bloggarann Bödda. bergthora@365.is Hann segist oft hafa verið réttur maður á réttum tíma og hann trúir á heppn- ina. 4. APRÍL 2008 FÖSTUDAGUR • 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.