Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 6
6 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
MÓTMÆLI Atvinnubílstjórar héldu mótmælum
sínum áfram í gær og stöðvuðu umferð við Reykja-
nesbraut um áttaleytið í gærmorgun. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu mynduðust miklar
umferðarteppur og tók nokkurn tíma að greiða úr
þeim. Í hádeginu námu um tuttugu bílar staðar
fyrir utan fjármálaráðuneytið og þar voru flautur
þeyttar. Lögregla var á staðnum og tók niður
upplýsingar um tvo bílstjóranna.
Nokkur kurr var í bílstjórum vegna aðgerða
lögreglu. Kristján Ólafur Guðnason aðstoðaryfir-
lögregluþjónn segir að lögreglan hafi ekki breytt
aðferðum sínum hvað varðar mótmælendur. „Þeir
sem eru uppvísir að lögbrotum geta átt von á því
að verða beittir viðurlögum. Þetta á við um öll
lögbrot, þessi sem önnur,“ segir Kristján Ólafur.
Málin munu fara í hefðbundinn feril hjá lögreglu.
Starfsemi fjármálaráðuneytisins fór úr skorðum
við mótmælin, enda hávaðinn gríðarlegur.
Fulltrúar atvinnubílstjóra eiga fund með
Kristjáni Möller samgönguráðherra í dag. - kp
Starfsemi fjármálaráðuneytisins fór úr skorðum þegar atvinnubílstjórar héldu mótmælum áfram í gær:
Þeyttu flautur og tepptu umferðina
KRÖFUR BÍLSTJÓRANNA
Að olíugjald verði lækkað.
Að slakað verði á hvíldartímatilskip-
un. Nú þurfa þeir 45 mínútna hvíld
fyrir fjóra og hálfa ökustund.
Að þungaskattur verði felldur niður.
Að horfið verði frá umhverfisgjaldi
sem tekur gildi um áramót og nemur
tuttugu krónum á hvern olíulítra.
Að ekki þurfi 36 klukkustunda öku-
kennslunámskeið á fimm ára fresti til
endurnýjunar ökuskírteinis.
er svariðjá
118 ja.is Símaskráin
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
J
A
A
4
14
62
0
4/
08
Vantar þig
málara
í einum
grænum?
Safnaðu
Vildarpunktum
Punktarnir upp í Ferðaávísun gildir
*Nánari upplýsingar um fargjaldaflokka Icelandair á netinu. Afslátturinn reiknast af fargjaldi án flugvallarskatta.
Til og með 4. apríl bjóðum við 50% barnaafslátt
af Economy og Best Price fargjöldum* fyrir börn,
11 ára og yngri, til allra áfangastaða okkar erlendis.
Ferðatímabil er til og með 31. desember.
+ Bókaðu ferð á www.icelandair.is
50%
AFSLÁTTUR
FYRIR BÖRN
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
HVAÐ ER Á SEYÐI? Mikill
hávaði fylgdi mótmælunum og
ekki heyrðist mannsins mál í
ráðuneytinu.
Er ástæða til að ráðamenn Ís-
lands ferðist með einkaþotum?
Já 29,8%
Nei 70,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Villt þú að ríkið ráðstafi hærri
upphæðum en nú er gert til
öryggis- og löggæslu?
Segðu þína skoðun á visir.is
UMHVERFISMÁL Þórunn Svein-
bjarnar dóttir umhverfisráðherra
úrskurðaði í gær um kæru Land-
verndar vegna umhverfismats
fyrirhugaðs álvers Norðuráls í
Helguvík.
Komst ráðherra að þeirri niður-
stöðu að formgalli hefði verið á
meðferð Skipulagsstofnunar, og
hafnaði kröfu Landverndar.
Landvernd kærði í október þá
ákvörðun Skipulagsstofnunar að
ekki þyrfti að meta saman
umhverfis áhrif allra framkvæmda
tengdra álveri í Helguvík.
Skipulagsstofnun tók ekki sér-
staka ákvörðun um að áhrifin yrðu
ekki metin saman. Í úrskurði
umhverfisráðherra kemur fram að
bréfaskipti hafi farið milli
stofnunar innar og Norðuráls, og
ljóst að ákvörðun hafi í raun verið
tekin um mitt ár 2006. Ekki var til-
kynnt um þá ákvörðun fyrr en með
lokaáliti Skipulagsstofnunar í byrj-
un október 2007.
„Í raun lítum við svo á að slíka
ákvörðun þurfi að taka áður en
mats áætlun er samþykkt,“ sagði
Þórunn á fundi með fjölmiðlafólki í
umhverfisráðuneytinu í gær. Skipu-
lagsstofnun hefur þegar breytt
verklagi sínu í samræmi við það,
eins og greint hefur verið frá í
Fréttablaðinu.
„[Við] teljum að um sé að ræða
ákveðinn formgalla á afgreiðslu
Skipulagsstofnunar, þó hann geti
ekki talist verulegur,“ sagði Þór-
unn. Helsta ástæða þess að ekki
hafi verið fallist á kæru Landvernd-
ar hafi verið að það hefði verið í
andstöðu við lög um hraða stjórn-
sýslu að breyta ákvörðun frá miðju
ári 2006 nú snemma árs 2008.
„Þessi úrskurður útilokar ekki að
þegar afstaða verður tekin til ann-
arra matsskyldra framkvæmda
sem tengjast álverinu í Helguvík,
geti niðurstaðan orðið önnur en [...]
í þessu tilviki,“ sagði Þórunn.
„Að sjálfsögðu er þessi úrskurð-
ur að landslögum, en það er ekki
þar með sagt að hann sé umhverfis-
ráðherranum að skapi.“
Heimild er til þess í lögum að
meta umhverfisáhrif tengdra fram-
kvæmda saman. Á fundi ríkis-
stjórnarinnar á þriðjudag lagði Þór-
unn fram frumvarp þar sem lagt er
til að það verði skýr krafa að tekin
sé formleg afstaða til þess hvort
meta skuli áhrifin saman.
brjann@frettabladid.is
Ákvörðun um álver
í Helguvík staðfest
Umhverfisráðherra fellst ekki á kæru Landverndar og staðfestir umhverfismat
fyrirhugaðs álvers Norðuráls í Helguvík. Úrskurður samkvæmt landslögum, en
er ekki ráðherra að skapi. Segir náttúruna verða að fá vörn í stjórnarskrá.
STAÐFEST Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra kynnti ákvörðun sína fyrir
fjölmiðlafólki í gær ásamt Magnúsi Jóhannessyni ráðuneytisstjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Náttúra og umhverfi hafa ekki stjórnarskrárvarinn rétt, eins og til dæmis
atvinnufrelsi og eignarrétturinn. Því miður er ekki enn kominn inn í stjórnar-
skrá umhverfiskafli, sem margir hafa beðið eftir lengi,“ segir Þórunn Svein-
bjarnardóttir umhverfisráðherra. „Það er í stefnuskrá ríkisstjórnarinnar að
halda áfram endurskoðun stjórnarskrárinnar,“ segir Þórunn. Mjög mikilvægt
sé að náttúran fái vörn í stjórnarskránni.
UMHVERFISKAFLI Í STJÓRNARSKRÁNA
UMHVERFISMÁL „Í úrskurðinum er ekki tekin
efnisleg afstaða til kröfu Landverndar um
ógildingu álits Skipulagsstofnunar, og það eru
gífurleg vonbrigði,“ segir Bergur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Landverndar.
Bergur bendir á að ráðherra hafi sérstaklega
tekið fram að úrskurðurinn frá því í gær hafi
ekki fordæmisgildi fyrir ákvörðun vegna annarra
matsskyldra framkvæmda sem tengist fyrir-
hugðu álveri í Helguvík.
„Með vísan í þetta munum við beita okkur fyrir
því að orkuöflunin og orkuflutningarnir verði
metnir með heildstæðum hætti,“ segir Bergur.
Hægt er að kæra úrskurð ráðherra til dóm-
stóla, en Bergur segir að ekki hafi verið tekin
ákvörðun um hvort dómstólaleiðin verði farin.
Ágúst F. Hafberg, framkvæmdastjóri við-
skiptaþróunar og samskipta hjá Norðuráli, segist
ánægður með úrskurð ráðherra. Hann sé í takt
við það sem reiknað hafi verið með hjá Norðuráli.
Ágúst vill ekki tjá sig um þau ummæli
umhverfisráðherra að þessi úrskurður útiloki
ekki að niðurstaðan verði önnur þegar tekin verði
afstaða til annarra tengdra framkvæmda.
„Það var bara verið að fjalla um þetta mál, og
úrskurðurinn er fallinn. Nú höldum við bara áfram
okkar vinnu,“ segir Ágúst. Undirbúningsfram-
kvæmdir eru í gangi á lóð félagsins í Helguvík. - bj
Úrskurður umhverfisráðherra kemur ekki á óvart segir talsmaður Norðuráls:
Gífurleg vonbrigði fyrir Landvernd
FRAMKVÆMDIR Náttúruverndarsamtök Íslands hafa kært
veitingu framkvæmdaleyfis til úrskurðarnefndar um skipu-
lags- og byggingarmál. MYND/ODDGEIR KARLSSON
KJÖRKASSINN