Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 74
42 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
Söngkonan Mariah Carey hefur
siglt fram úr Elvis Presley með
því að ná sínu átjánda lagi á topp
bandaríska Billboard-listans.
Lagið nefnist Touch My Body og
er tekið af plötu hennar E=MC2.
Bítlarnir eiga flest topplögin,
eða tuttugu talsins, og kemur
Carey fast á hæla þeirra. „Ég er
mjög þakklát og hamingjusöm,“
sagði Carey, sem er 38 ára. „Ég á
erfitt með að setja mig í sama
flokk og listamenn sem hafa ekki
bara breytt tónlistarsögunni
heldur öllum heiminum. Þeir
tilheyra allt öðrum tíma og
flokki,“ sagði Carey um saman-
burðinn við Elvis og Bítlana.
Carey fram
úr Presley
Hljómsveitin Sigur Rós heldur
þrenna tónleika á Ítalíu í sumar
og er hægt að kaupa miða í
forsölu í gegnum heimasíðu
sveitarinnar. Fyrstu tónleikarnir
verða haldnir í Flórens 11. júlí,
kvöldið eftir spilar sveitin í Róm
og endar tónleikaferðin í Mílanó
13. júlí. Fleiri tónleikar með Sigur
Rós eru fyrirhugaðir í sumar
enda ætlar sveitin að fylgja
væntanlegri plötu sinni, sem
kemur út í byrjun sumars, vel
eftir. Meðal annars spilar sveitin
á skosku tónlistarhátíðinni
Connect ásamt Franz Ferdinand,
Grinderman, Manic Street
Preachers, Kasabian og fleiri
þekktum nöfnum helgina 19. til
31. ágúst.
Sigur Rós
spilar á Ítalíu
Hljómsveitin Specials heldur upp
á ársafmæli sitt á Kringlukránni
um helgina. Þótt hljómsveitin sé
ung að árum eru liðsmenn hennar
gamlir reynsluboltar. Ásgeir
Óskars þekkja flestir frá Þursun-
um og Stuðmönnum, Ingvar
Grétars hefur stjórnað Úlfunum
eins og herforingi undanfarin ár,
Jón Ólafs hefur gert garðinn
frægan með ýmsum böndum m.a.
Vinum Dóra og Óttar Felix hefur
haldið merki Pops hátt á lofti um
árabil.
Specials sérhæfa sig í dægur-
tónlist sjötta og sjöunda áratugar-
ins og spila jafnframt gullmola
með sveitum á borð við Pretty
Things. Afmælishátíðin hefst í
kvöld klukkan 23 og heldur áfram
annað kvöld.
Halda upp á
ársafmælið
SPECIALS Hljómsveitin Specials spilar á
Kringlukránni um helgina.
MARIAH CAREY Hefur siglt fram úr Elvis
Presley með sínu átjánda topplagi.
SIGUR RÓS Hljómsveitin Sigur Rós
heldur þrenna tónleika á Ítalíu í sumar.
„Það er nú enginn stórhasar, svona blanda
af vinnu og smáfríi,“ segir Árni Þórarinsson
rithöfundur sem nú er á leið til Berlínar. Í
haust kemur krimmi hans Tími nornarinnar
út í Þýskalandi þannig að ekki úr vegi að
kynna sér nánar þýskan hugsunarhátt.
Til Berlínar hverfur Árni einkum til að
skrifa næstu bók sína en um síðustu jól kom
út bókin Dauði trúðsins eftir Árna. „Frá því
ég byrjaði að skrifa krimmana hef ég árlega
leitað afdreps í Barcelona í sama tilgangi. Í
fyrra söðlaði ég um og prófaði þetta á
Berlín. Mér líkaði það svo vel að nú verður
fram haldið. Afburða skemmtileg og lifandi
borg og minnir mig á hvernig Barcelona var
áður en hún fór á kaf í túrisma og fínerí.
Samt er maður kominn með barselónsk
fráhvarfseinkenni og ég ætla að kíkja
þangað aftur í sumar,“ segir Árni.
Áhugi Þjóðverja á íslenskum bókmennt-
um hefur ávallt verið mikill en aldrei sem
nú.
„Og á aðeins eftir að aukast í aðdraganda
þess að við verðum fókusland í bókamess-
unni í Frankfurt 2011. Við höfðum betur í
samkeppninni við Finna um að verða
fókusland,“ segir Egill Örn Jóhannsson
framkvæmdastjóri Forlagsins − útgefanda
Árna. Egill Örn nefnir sem dæmi að þýski
útgefandinn Lubbe hefur tryggt sér
útgáfuréttinn á Lovestar eftir Andra Snæ
Magnason og vænta má frekari tíðinda af
landvinningum íslenskra rithöfunda.
- jbg
Tími nornarinnar kemur út á þýsku
ÁRNI ÞÓRARINSSON Mun dveljast í Berlín á næstunni
við ritun nýrrar bókar en áhugi þýskra á íslenskum
bókmenntum hefur aukist mjög.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM