Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 24
24 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 631 5.256 +1,37% Velta: 6.667 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,40 -0,40% ... Bakkavör 44,30 +2,31% ... Eimskipafélagið 23,65 +3,28% ... Exista 11,55 +4,24% ... FL Group 6,69 +1,98% ... Glitnir 17,80 +1,14% ... Ice- landair 24,60 +0,20% ... Kaupþing 839,00 +1,45% ... Landsbankinn 30,35 +0,50% ... Marel 91,10 -0,76% ... SPRON 4,69 +4,45% ... Straumur-Burðarás 12,25 +1,91% ... Teymi 4,32 +0,47% ... Össur 92,00 -0,76% MESTA HÆKKUN SKIPTI +5,40% SPRON +4,45% EXISTA +4,24% MESTA LÆKKUN FLAGA -9,09% EIK BANKI -5,37% ATLANTIC PETROLE. -1,16% Fyndni á nýjum vef Fjárfestar og annað áhugafólk um hreyfingar á hlutabréfamarkaði hafa oftar en ekki bölvað óþjálum og ógagnsæjum vef Kauphallar Íslands. Steininn tók þó fyrst úr þegar Kauphöllin komst í eigu OMX. Núna hafa enn verið gerðar breytingar á vefnum með samruna OMX og Nasdaq og er sumt til bóta, en annað í takt við fyrri tíð, eins og gengur. Nýbreytni er hins vegar auglýsingaborði yfir fréttahluta vefsins hér heima. Línurit birtist og leitar æ neðar sem það færist yfir skjáinn áður en það brotnar. „Hausverkur?“ er spurt og í ljós kemur auglýsing fyrir vel þekkt verkjalyf. Þykir þetta nokkur kaldhæðni í ljósi lækkana síðustu missera og aðgengileika vefsins. Skammgóður vermir Margir urðu til að nýta sér „kostaboð“ og fylltu á tanka bíla sinna á sérkjörum sem í boði voru einn dag um miðja vikuna. Afsláttur af lítraverði náði allt að 25 krónum. Víða voru biðraðir á bensínstöðvum og truflaðist jafnvel umferð í næsta nágrenni. Spurning hvort bifreiðaeigendurnir sem biðu eftir bensíninu haldi áfram að verða þakklátir olíufélögunum þegar þeir komast heim í reiknistokkinn og sjá að þeir hafa lagt á sig ómælt erfiði fyrir afslátt sem nemur kannski 500 til 1.000 krónum fyrir áfyllingu á meðal- fólksbíl, eftir því hvort dælt hefur verið á heilan tank eða hálfan. Einhverjum kann að finnast sem þar hafi mikið verið á sig lagt fyrir lítinn ávinning og spurning hvort velvildin sem olíufélögin reyndu þarna að kaupa sér reynist langlíf. Peningaskápurinn ... Sænski bankinn SEB Enskilda var á miðvikudag skráður fyrir kaup- um rúmlega 1,1 milljónar hluta í Kaupþingi. Verðmætið hljóp á rúmum 968 milljónum króna. Meðal- verðið var 810,9 krónur á hlut. Enskildamenn hafa keypt mikið af bréfum í Kaupþingi eftir páska og sitja nú á um tveimur milljónum hluta í bankanum, eða 0,27 prósent- um skráðra hlutabréfa. Gengi bréfa í Kaupþingi hækk- aði um tæpt prósent í gær, stóð í 839 krónum á hlut í lok dags, sem merkir að verðmæti Enskildahlut- arins hafi aukist um 33,5 milljónir króna á einum degi. Engin sala var skráð á bréfum Kaupþings í gegn- um Enskilda í gær en ein kaup fyrir 12,4 milljónir króna. Enskildabankinn var síðast skráður fyrir viðlíka innkaupum á Kaupþingsbréfum, fyrir 850 millj- ónir króna, 25. mars síðastliðinn. Ekki lá fyrir hvort bankinn hafi keypt bréfin fyrir eigin reikning eða hvort skortsalar hafi lokað stöðum sínum. Gengið hækkaði um níu prósent sama dag en hafði legið í 662 krónum á hlut dagana á undan. Ætla má að kaupendur hafi hagnast um 150 milljónir króna hið minnsta frá því þeir keyptu bréfin þá miðað við lokagengi Kaupþings í gær að því gefnu að þeir hafi ekkert selt í millitíðinni. - jab Svíar hagnast á Kaupþingi KAUPÞING Enskildabankinn hefur verið skráður fyrir miklu magni Kaupþings- bréfa frá því eftir páska. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfiseinkunn Straums-Burðaráss og segir enn fremur að langtímahorfur í lánshæfismati bankans séu stöðugar. Fram kemur í tilkynningu frá Fitch að einkunnin endurspegli þá skoðun matsfyrirtækisins að þrátt fyrir áframhaldandi umrót á skuldabréfamarkaði og neikvæð viðhorf markaðsaðila gagnvart íslenskum aðilum geri lausafjárstaða Straums og viðráðanleg endurfjármögnunarþörf bankans að verkum að hann sé síður viðkvæmur en ella fyrir neikvæðri umræðu. - ikh Stöðugur Straumur Samkomulag norrænna seðlabanka um samstarf felur ekki í sér skuldbind- ingu um fjárhagsaðstoð, komi til fjármálakreppu. Þetta segja Danir, Svíar og Finnar. Slíkt samkomulag var áður í gildi. Svíar segja að Seðlabanki Íslands hafi ekki leitað til sín um fé. Danir tjá sig ekki um það. „Það er engin skuldbinding um lán,“ segir Niels Christian Beiler einn yfirmanna danska seðlabank- ans í samtali við Fréttablaðið, um samkomulag norrænna seðlabanka um viðbrögð við fjármálaáfalli. Fjallað er um skilning norrænna seðlabanka á samkomulaginu í mörgum erlendum fjölmiðlum, þar á meðal Bloomberg og Börsen. Mattias Persson, einn yfirmanna í sænska seðlabankanum, segir við Bloomberg að samkomulagið taki aðeins til upplýsingaskipta en í því felist engin skuldbinding um lán. Pentti Hakkarainen, yfirmaður í finnska seðlabankanum, talar á sömu lund við finnska blaðið Kauppalehti. Þar í landi höfðu sumir áhyggjur af því að finnskir skattgreiðendur þyrftu að standa straum af kostnaði vegna íslenskra banka. Samkomulagið var undirritað í júní árið 2003. Inntakið í samkomu- laginu er að norrænir seðlabankar eigi með sér reglulega samvinnu, skiptist á upplýsingum, og myndi sérstakan viðbragðshóp verði fjár- málaáfall. Samkomulagið á við þegar norrænn banki sem er með starfsemi í tveimur eða fleiri Norðurlöndum verður fyrir fjár- málaáfalli. Fram kemur í fréttatilkynningu sem send var út samfara undir- skrift samkomulagsins að þar sé ekki tilgreint til hvaða aðgerða verði gripið, en þar sem um sé að ræða samvinnu seðlabanka snúist meginatriði samkomulagsins um leiðir til þess að tryggja lánastofn- unum laust fé. „Skilningur okkar á samkomu- laginu er í samræmi við það sem segir í fréttatilkynningunni,“ segir Tryggvi Pálsson, framkvæmda- stjóri fjármálasviðs Seðlabankans. Hann viðurkennir þó að samkomu- lagið sé ekki lagalega bindandi. Hann bendir á að unnið hafi verið í samræmi við samkomulagið frá því að það var undirritað. Enn hafi ekki komið til þess að samráðs- hópnum hafi verið breytt í við- bragðshóp við fjármálaáfalli. Áður var í gildi nákvæmari samningur um gagnkvæma aðstoð í fjármálakreppu. Hann var afnum- inn eftir að Finnar gengu í evr- ópska myntbandalagið. Fram hefur komið að Seðlabank- inn eigi í viðræðum við evrópska seðlabankann. Fréttastofa Stöðvar tvö segist ennfremur hafa heimild- ir fyrir því að rætt sé við enska seðlabankann. Mattias Persson segir í samtali við Fréttablaðið að Seðlabankinn á Íslandi hafi ekki leitað til Svía um aðgang að fé. Niels Christian Beil- er neitar að tjá sig um slíkar við- ræður. ingimar@frettabladid.is Engin skuldbinding um aðstoð í fjármálakreppu DAVÍÐ ODDSSON Seðlabankastjóri á ársfundi Seðlabankans á föstudag. Samkomu- lag bankans við aðra norræna seðlabanka felur ekki í sér skuldbindingu um að þeir komi hver öðrum til hjálpar í fjármálakreppu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Breska herrafataverslunin Moss Bros tapaði 1,4 milljónum punda, jafnvirði rúmra 207 milljóna íslenskra króna, fyrir skatt í fyrra. Þetta er umtalsverður viðsnúning- ur frá fyrra ári en þá nam hagnað- urinn 5,1 milljón punda. Vöxtur í undirliggjandi starf- semi á tímabilinu var enginn, að því er fram kemur í tilkynningu frá versluninni. Vöxturinn á fyrstu vikum nýs rekstrarárs, sem hófst í enda janúar, nemur tæpu pró- senti. Baugur, sem á 29 prósenta hlut í Moss Bros, lagði fram óbindandi yfirtökutilboð í félagið upp á 42 pens á hlut í lok febrúar. Gengi bréfanna hefur hækkað talsvert síðan yfirtökutilboðið var lagt fram. - jab Viðsnúningur hjá Moss Bros Gengi hlutabréfa í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfða- greiningar, fór í 1,39 dali á hlut á bandarískum hlutabréfamarkaði á miðvikudag og hafði aldrei verið lægra. Um miðjan dag í gær stóð það í 1,44 dölum á hlut. Hlutabréf í Decode munu hafa verið seld á allt að 65 dali á hlut á gráum markaði fyrir skráningu fyrirtækisins á hlutabréfamark- að í júlí árið 2000. Eigið fé DeCode nam 6,4 millj- örðum króna um síðustu áramót en til samanburðar nam mark- aðsverðmæti fyrirtækisins um miðjan dag í gær 88,3 milljónum dala, jafnvirði 6,6 milljarða króna. - jab DeCode í lægsta gildi Exista hf., kt. 610601-2350, hefur birt lýsingu vegna töku víxla til viðskipta í OMX Nordic Exchange Iceland hf. Eftirfarandi víxilflokkur hefur verið gefinn út: gefinn út þann 8. október sl. og er auðkenni flokksins í OMX Nordic Exchange Iceland hf. EXIS víxlarnir endurgreiðast þann 8. apríl 2008. Exchange Iceland hf. þann 4 apríl 2008. Net12 er rakin leið fyrir þau fyrirtæki og félög sem vilja fara í alvöru vaxtarækt með Byr. FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA Notaðu vextina strax Sími 575 4000 | www.byr.is // Hleyptu vexti í reksturinn // Fáðu háa ávöxtun // Reiknaðu dæmið til enda Þú færð vaxtavexti af þeim vöxtum sem ekki eru greiddir jafnóðum út.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.