Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 86
54 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ VAR ÉG AÐ SPÁ?
LÁRÉTT
2. drykkur 6. klaki 8. skip 9. fugl 11.
ekki heldur 12. geðvonska 14. gort
16. í röð 17. hyggja 18. ennþá 20.
mergð 21. velta.
LÓÐRÉTT
1. mælieining 3. frá 4. jarðbrú 5. viður
7. fíkinn 10. for 13. nytsemi 15. klædd
16. húðpoki 19. núna.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. malt, 6. ís, 8. far, 9. lóa,
11. né, 12. ólund, 14. grobb, 16. hi,
17. trú, 18. enn, 20. úi, 21. snúa.
LÓÐRÉTT: 1. kíló, 3. af, 4. landbrú,
5. tré, 7. sólginn, 10. aur, 13. not, 15.
búin, 16. hes, 19. nú.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1. Glostrup.
2. Dirk Kuyt.
3. Run for Her Life.
„Ég er hrifinn af Valdísi
Gunnarsdóttur, mér finnst hún
koma til dyranna eins og hún
er klædd og stundum of mikið
klædd.“
Þorgrímur Þráinsson rithöfundur, spurður
um uppáhaldsútvarpsmann í DV í
desember 1990.
„Ég sakna Valdísar sérstaklega úr útvarp-
inu, en hef ekki séð hana fáklædda
áratugum saman,“ segir Þorgrímur í dag,
og það hlæjandi.
Þrátt fyrir að vera óvanir skíða-
göngu ætla smiðirnir Hans Step-
hensen og Kristinn Einarsson að
taka þátt í skíðagöngukeppni á
Grænlandi um helgina sem telst
vera sú erfiðasta í heimi. Á þrem-
ur dögum skíða þeir eitt hundrað
kílómetra og mun hópur frétta-
manna fá Breska ríkissjónvarp-
inu, BBC, og þýsku sjónvarpsstöð-
inni ZDF fylgjast vandlega með
keppninni.
Hans og Kristinn eru að byggja
virkjun í Öðrumfirði á Grænlandi
á vegum Ístaks og er fyrirtækið
helsti styrktaraðili keppninnar,
sem er nú haldin í tólfta sinn. „Við
ákváðum að prófa þetta fyrst við
erum á staðnum. Búðir keppninn-
ar eru við búðirnar þar sem við
erum að vinna,“ segir Hans, sem
hefur æft vel að undanförnu ásamt
Kristni. „Það hefur gengið mjög
vel. Svo er takmarkið bara að kom-
ast í mark. Við tökum einn dag
fyrir í einu og erum ekkert að
keppa um fyrsta sætið heldur
fyrst og fremst við sjálfa okkur.“
Níutíu skíðamenn taka þátt í
keppninni í ár og eru Hans og
Kristinn fyrstu Íslendingarnir
sem taka þátt. Til marks um gæði
keppninnar hafa margir af fræg-
ustu skíðagönguköppum veraldar
tekið þátt í henni, þar á meðal
Norðmaðurinn Bjørn Dæhlie sem
segir hana þá erfiðustu sem hann
hefur kynnst. Hans og Kristinn
eru engu að síður hvergi bangnir
og ætla einfaldlega að gera sitt
besta. „Þetta verður svaka puð því
þetta er nánast allt upp í móti. Svo
þurfum við að vera með sex og
hálft kíló á bakinu alla leið ef ske
kynni að við þyrftum að grafa
okkur niður á leiðinni,“ segir Hans
og bætir við að ítalskur keppandi
hafi farist í snjóflóði fyrir nokkr-
um árum. „Menn hafa slasast enda
eru þetta brattar brekkur. Það
verða samt fyrst og fremst veður-
guðirnir sem ráða því hvað þetta
verður erfitt.“ - fb
Í erfiðustu skíðakeppni heims
Hinar stríðandi fylkingar í Morfís-stríðinu
svokallaða hittust á skólalóð MR í gær og
áttust við með ögn drengilegri hætti en
undanfarna daga. Eins og Fréttablaðið hefur
greint frá hafa harðvítugar deilur staðið yfir
vegna úrslitaviðureignar skólana í Morfís á
morgun.
MH-ingar mættu færandi hendi, með heilt
íþróttahús undir arminum en nemendur MR
hafa löngum stundum þurft að sætta sig við
aðstöðuleysi á þeim vettvangi. MH-ingar ættu
að þekkja þann vanda af eigin raun en skólinn
vígði sitt eigið íþróttahús fyrir ári síðan. Liðin
áttust við í reipitogi, sjómanni og puttastríði
og höfðu MR-ingar betur í tveimur keppnum
af þrem.
Jón Benediktsson, liðstjóri ræðuliðs MR,
sagði gjöf andstæðinganna hafa verið vel
þegna í baráttunni fyrir bættri íþróttaðstöðu.
Hann sagði bardagana á skólalóðinni hafa með
verið með ögn jákvæðari formerkjum en
undanfarna daga. „Ég reikna með að menn
hvílist nú vel fyrir átökin á laugardaginn og
að fulltrúar herjanna tveggja setjist jafnvel
að samningaborðinu í dag og skrifi undir
vopnahlé sem rennur auðvitað strax út á
morgun.“
Að sögn Kristins Árna Hróbjartssonar, sem
er betur þekktur sem „Ránfuglinn“ í herdeild
MH, var athöfnin skipulögð í þeim tilgangi að
bera klæði á vopnin eftir heiftúðugar deilur
og átök undanfarna daga. Eins og Fréttablaðið
hefur greint frá lá við að MR kærði keppnina
sökum áreitis á keppnislið sitt og kalla þurfti
til lögreglu á miðvikudag þegar nokkrir
nemendur MR komu sér fyrir uppi á þaki MH.
Kristinn bætti því við að nú myndu menn
leggjast í miklar skipulagningar fyrir
laugardagskvöldið.„Menn mega nefnilega
ekki toppa sig fyrir stóra kvöldið.“ - fgg
MH gefur MR íþróttahús í miðju stríði
MEÐ HEILT ÍÞRÓTTAHÚS AÐ VOPNI MH-ingar mættu
færandi hendi á skólalóð MR með heilt íþróttahús
undir arminum. Hinar stríðandi fylkingar hvílast á morg-
un fyrir átökin á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
OFURHUGAR Hans Stephensen (til
vinstri) og Kristinn Einarsson hefja
svaðilför sína um grænlenska fjallgarða
í dag.
„Misskilnings gætti í samtali blaða-
manns við Sigrúnu A. Ámundadótt-
ur starfsmann Orkuveitunnar á
Akranesi. Sá misskilningur hefur
verið leiðréttur. Það að ætla blaða-
manni Vísis að hafa skáldað upp
orð viðmælandans er furðuleg
ályktun og slíkum ásökunum er
vísað beint aftur til Eiríks Hjálm-
arssonar upplýsingafulltrúa Orku-
veitunnar,“ segir Óskar Hrafn Þor-
valdsson ritstjóri Vísis.
Allt ætlaði af göflunum að ganga
í gær í kjölfar fréttar Vísis. Orku-
veita Reykjavíkur auglýsti til sölu
líkamsræktartæki og blaðamenn
Vísis fóru á stúfana til að kynna sér
málin. Rætt var við Sigrúnu sem
sagði um að ræða tæki komin til
ára sinna. Haft var eftir henni að
einkum hafi verið spurst fyrir um
tækin frá landsbyggðarfólki. „Við
landsbyggðarfólk gerum kannski
minni kröfur en Reykvíkingar.“
Að sögn Eiríks Hjálmarssonar
urðu þegar mikil viðbrögð við
fréttinni, einkum frá fólki af lands-
byggðinni sem þótti þarna lítið gert
úr sér. Þegar gengið var á Sigrúnu
kannaðist hún ekki við ummælin
og í kjölfarið sendi Eiríkur frá sér
harðorða yfirlýsingu, stílaða á
Óskar, á fjölmiðla þar sem talað er
um uppspuna blaðamanns. „Hún
[Sigrún] mun hafa samband við
viðkomandi blaðamann til að árétta
það, en farið er fram á að Vísir.is
leiðrétti fréttina á vefnum hjá sér
hið allra snarasta jafnframt árétt-
ingu á því að ranglega hafi verið
eftir Sigrúnu haft.“
Engum ofsögum er sagt að lands-
byggðarfólk margt hafi móðgast.
Skömmu eftir að Vísir birti sína
frétt höfðu landsbyggðarvefmiðlar
Skessuhorns, Bæjarnis besta,
Suðurlandið.is auk fjölda bloggara
tekið upp þykkjuna.
Alvarlegar ásakanir eru að bera
blaðamanni á brýn skáldskap fyrir
hönd viðmælenda sinna og Óskari
þykir það bera vott um sérkenni-
lega ályktunargáfu að telja blaða-
mann sinn búa yfir svo auðugu
ímyndunarafli. Það hljóti að vera
hverjum manni ljóst. Hins vegar
lagfærðu þeir Vísismenn frétt sína
seinna í gær. „Við breyttum örlítið
orðalaginu en efnislega er fréttin
alveg eins,“ segir Óskar.
Eiríkur er hins vegar ekki þeirr-
ar skoðunar og í annarri tilkynn-
ingu sem barst síðdegis í gær
vakti hann athygli á seinni frétt-
inni sem er, „án þess þó að geta
þess að um leiðrétta frétt sé að
ræða, eða að biðjast velvirðingar á
vinnubrögðum sínum. Fyrri frétt
vefmiðilsins olli viðkomandi
starfskonu Orkuveitu Reykjavík-
ur verulegum óþægindum, enda
upp á hana hermd meiðandi
ummæli sem reyndust rangfærsl-
ur blaðamannsins á persónulegri
skoðun hennar.“ Um kvöldmatar-
leytið sagði Eiríkur í samtali við
blaðið þá, sig og Óskar, hafa farið í
saumana á öllu þessu sérstaka
máli og skilið sáttir.
jakob@frettabladid.is
ÓSKAR HRAFN: FRÁLEITT AÐ ÆTLA BLAÐAMANNI SKÁLDSKAP
Allt brjálað í Orkuveitunni
vegna frétta af æfingatólum
Sem formaður FTT er Jakob Frí-
mann Magnússon helsti forkólfur
pílagrímsfarar bítlageggjara til
Liverpool eftir um tvo mánuði.
Hann hefur hins vegar lítt haft tíma
til að sinna farþegalistum sem nú
er beðið í ofvæni. Jakob hefur lagst
á árar með sínum gamla heimil-
islækni, Ólafi F. Magnús-
syni borgarstjóra, við
björgun borgarinnar.
Jakob er í menningar-
og ferðamálaráði en í
ferðabransanum
eru menn mjög
uggandi, vilja
síður taka við
gestum í rústirnar
sem miðborgin
er sögð orðin og
heimta aðgerðir.
Einn þeirra sem Jakob Frímann
þarf að eiga við eða taka höndum
saman með er Jónas Freydal
ferðamálafrömuður og listmuna-
agent með meiru. Jónas, sem
staðið hefur fyrir fjölsóttum drauga-
göngum um Reykjavík,
segir að þegar von er
á gestum sé siður að
taka til. Jónas er með
hugmyndir þess efnis
að mála á húsin nöfn
eigenda svo fólk
átti sig betur á
því hverjir helstu
slúbbertarnir eru
því bágborið
ástand hljóti að
vera á ábyrgð
eigenda ekki síður en borgar.
Mikael Torfason rithöfundur hefur
verið að bauka eitt og annað eftir
að hann hvarf frá Birtingi sem aðal-
ritstjóri útgáfunnar. Þannig hefur
hann verið að endurrita fyrstu
bók sína Falskan fugl með það
fyrir augum að gefa út
á kilju. Annars hefur
heyrst að Mikael sé
búinn að panta sér
Harley Davidson
og mun bruna
um borg og bý
sem mótor-
hjólatöffari í
sumar. -jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÆTI Í OR
Allt logaði í Orkuveitunni
í gær vegna fréttar Vísis.
is. Óskar Hrafn ritstjóri (að
ofan) hafnar ásökunum Eiríks
Hjálmarssonar upplýsingafull-
trúa. Frétt Vísis vakti sérstak-
lega kurr á landsbyggðinni.
Auglýsingasími
– Mest lesið