Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 72
40 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR folk@frettabladid.is Leikkonunni Helen Mirren finnst að vændi ætti að vera lögleitt. Hún lauk nýlega tökum á myndinni Love Ranch, sem segir frá fyrsta vændishúsinu, og trúir því að minna væri um mansal ef konum væri leyft að krefjast greiðslu fyrir kynlíf. „Ég held svo sannarlega að lögleitt vændi sé rétt leið, með tilliti til hins skelfilega, hryllilega mansals sem nú á sér stað, og hættunnar sem er fólg- in í því að stelpurnar séu úti á götum, svona varnarlausar gegn mellu- dólgum,“ segir leikkonan. „Í lög- legu vændishúsi eru þær með leyfi, þær njóta verndar, og mennirnir sem nota þær njóta verndar þar sem þeir vita að stúlkurnar verða að fara í læknisskoðun í hverri viku,“ segir leikkonan, sem sagði í sama viðtali, við Time Magazine, að henni fyndist konur ekki missa kyn- þokka sinn við að eldast. „Hann breytist bara,“ sagði Mirren. „Þegar eldri menn og eldri konur tala um kynþokka held ég ekki að þau séu að tala um kynlíf. Ég held þau séu að meina eitthvað óskilgreinanlegt sem tengist því að kunna að meta lífið, visku, og ýmsu öðru. Það ætti að vera til sérstakt orð yfir þetta,“ segir Mirren. Mirren vill lögleiða vændi LÖGLEGT VÆNDI Helen Mirren telur að það myndi bæta hlut vændis- kvenna til muna ef vændi væri lögleitt. NORDICPHOTOS/GETTY Fjórða þáttaröðin af Lost hefur göngu sína í Ríkissjónvarpinu 14. apríl. Einungis þrettán þættir eru í þessari seríu vegna verkfalls hand- ritshöfunda í Hollywood og verða átta sýndir í vor og fimm til viðbót- ar í sumarbyrjun. Er þetta töluverð breyting frá síðustu þáttaröð þegar þættirnir voru 22 talsins. „Það hefur verið hringt töluvert og spurt hvenær serían byrjar enda héldum við áhorfendum á bjargbrúninni í lokin á seríu þrjú,“ segir Erna Kettler hjá innkaupa- deild RÚV, sem hefur mikla trú á fjórðu þáttaröðinni. Upphaflega stóð til að síðustu þrjár þáttaraðirnar af Lost yrðu sextán þættir hver, þar á meðal sú fjórða. Þess í stað verða líkast til nítján þættir í fimmtu þáttaröðinni og síðan sextán í þeirri sjöttu og síðustu. Fyrstu átta þættirnir í nýju þáttaröðinni voru sýndir í Banda- ríkjunum í janúar og febrúar við miklar vinsældir og má því búast við hörkuspennu þegar Lost hefur göngu sínu hérlendis, en síðustu þáttaröð lauk á RÚV í júlí í fyrra. Upprifjunarþáttur verður sýnd- ur á undan fyrsta Lost-þættinum 14. apríl og eftir það verður varla aftur snúið fyrir íslenska Lost- aðdáaendur. - fb Lost í loftið á ný BEN LINUS Michael Emerson fer með hlutverk illmennisins Ben Linus í þátt- unum Lost. > ÓÁNÆGÐ MEÐ SONINN Mörg konan gladdist þegar David Beckham fletti sig klæðum í auglýs- ingaherferð fyrir nærfatnað. Móðir fótboltastjörnunnar var ekki ein þeirra. „Þegar myndirnar birtust varð hún fyrst til að hringja. Hún vildi vita hvað í fjandanum ég væri að gera. Ég reyndi að útskýra það en gekk illa,“ segir Beckham. Bandaríski grínistinn Jerry Seinfeld slapp ómeiddur úr bílveltu sem hann lenti í á dögunum. Bremsurnar á 41 árs gamalli Fiat-bifreið hans gáfu sig með þeim afleiðingum að hann sveigði af veginum til að koma í veg fyrir árekstur og valt einn hring. Seinfeld var einn í bílnum og þurfti enga aðhlynningu á sjúkrahúsi vegna atviksins. Talið er að hann hafi komið í veg fyrir mun alvarlegra slys ef hann hefði ekki sveigt í burtu. „Hann var í dálitlu uppnámi þegar hann kom heim og áttaði sig betur á því sem hafði gerst,“ sagði eiginkona hans Jessica. Seinfeld bætti við: „Vegna þess að ég veit að það eru krakkar þarna úti að hlusta, þá vil ég taka það fram að það er ekki mælt með því að að keyra án þess að hafa bremsur, nema menn hafi góðan bakgrunn sem trúður eða gamanleikari,“ sagði Seinfeld í léttum dúr. „Þetta er nokkuð sem ég ætla ekki að leggja í vana minn í framtíðinni.“ Seinfeld, sem sló í gegn í samnefndum gaman- þáttum, sendi síðast frá sér teiknimyndina Bee Movie. Hann er mikill bíladellukarl og er Porsche Spyder-bifreið hans frá árinu 1955 í mestu uppá- haldi. Slapp ómeiddur úr bílveltu JERRY SEINFELD Betur fór en á horfðist þegar bremsurnar biluðu í bíl grínistans Jerry Seinfeld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.