Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 64
32 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ertu að sópa
rykinu undir
teppið? Jááá...
Svo það fari
ekkert á meðan
ég hleyp að
sækja ryksug-
una!
Góð pæling!
Hæ aftur.
Eitthvað að
frétta?
Nix.
Alls ekki
neitt?
Neibb.
Allt eins
og það
var.
Flott.
Þá þarf ég ekki að spyrja
af hverju rúgbrauðið
snýr allt í einu í öfuga átt.
Jónas, hvernig
gengur þér með
ósýnileika-verk-
efnið?
Ég er sem stendur
hálfnaður með það.
GÓ
ÓÓ
ÓÓ
ÓL
Hvað á allt þetta
gól að þýða, Lalli?
Hvað á ég
annað að
gera?
Ó, Lóa... Ég get varla beðið
eftir því að heyra fyrstu
orðin þín.
Á meðan þau eru ekki
„stopp“, „hættu“, „láttu
kjurt“, eða „af því bara“..
Nú líður senn að sam-
ræmdum prófum í
grunnskólum landsins.
Nemendur úti um allt
land eru eflaust farnir
að huga að próflestri og
gömul sýnipróf eru
dregin fram svo allir
geti nú nokkurn veginn
vitað úr hverju verði prófað.
Næsta mánuðinn eða svo verður
svo stíf yfirferð yfir það efni og
helst ekkert annað. Svona er þetta
og svona hefur þetta lengi verið.
Þetta var svona þegar ég tók sam-
ræmdu og verður eflaust eins
þegar ég verð búinn að eignast
börn og þau taka samræmdu
prófin. Enda snýst nám hér á landi
fyrst og fremst um próf.
Fyrir nokkrum árum rann upp
fyrir mér ljós. Ég var þá í áfanga
þar sem lokaprófið var ekki í lok
áfangans heldur nokkrum dögum
fyrr. Það þótti mér í meira lagi
skrítið og sá í fyrstu ekki tilgang í
því að sitja í tímum þegar ég var
búinn að taka próf úr áfanganum.
Það var þá sem ég áttaði mig á hvað
þetta er í raun skrítinn hugsunar-
háttur. Auðvitað er ekkert langsótt
að sitja tíma í fagi þó maður sé
búinn að taka prófið, enda er maður
vonandi að læra fyrir sjálfan sig en
ekki bara fyrir prófið.
Sögur af nemendum sem eru
hvattir til að sleppa ákveðnum
prófum þykja mér því leiðinlegar.
Það að skólar taki meðaltal og sam-
keppni við aðra skóla fram yfir það
að veita öllum nemendum sömu
tækifæri er út í hött. Það sama má
reyndar segja um þá staðreynd að
skólum sé stillt upp í samkeppnis-
umhverfi. Eflaust telja einhverjir
það hvetjandi fyrir skólana en
sjálfur held ég að það bitni verst á
þeim nemendum sem minnst mega
við því. Nær væri að skólar ynnu
hver á sínum forsendum og mót-
uðu sér sína sérstöðu í skóla-
samfélaginu.
Ég vona því að þeir sem eru að
fara í próf nú á vordögum, hvort
sem það er í grunnskólum, fram-
haldsskólum eða háskólum, noti
tímann vel og víkki sjóndeildar-
hring sinn á sem flestum sviðum.
Enda er lífið sjálft mikill lærdóm-
ur og þar er ekkert lokapróf.
STUÐ MILLI STRÍÐA Prófmiðað nám
ÖRLYGUR HNEFILL ÖRLYGSSON TRÚIR EKKI LENGUR Á PRÓFLESTUR