Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 4. apríl 2008 13
MENNING Sjóður Egils Skalla-
grímssonar er styrktarsjóður sem
ætlað er að efla íslenska menn-
ingu og listir á Bretlandseyjum.
Í því skyni veitir sjóðurinn
fjárstyrki tvisvar á ári en
styrkirnir eru veittir á grundvelli
listræns gildis og með hliðsjón af
fjárþörf. Sjóðurinn er í vörslu
sendiráðs Íslands í Lundúnum og
þurfa umsóknir að berast
sendiráðinu fyrir 1. maí eða 1.
nóvember ár hvert.
The Icelandic Take Away
Theatre fékk fyrsta styrkinn árið
1997 vegna sýningar á leikritinu
Sítrónusysturnar á Edinborgar-
hátíðinni. - ovd
Sjóður Egils Skallagrímssonar:
Íslensk list og
menning efld
NOREGUR Björgunarmenn hafa
fundið einn af þeim sem saknað
var eftir að aurskriða olli því að
fjölbýlishús í Álasundi hrundi til
grunna. Líkið hefur verið flutt á
sjúkrahús og er beðið eftir því að
kennsl verði borin á það, að sögn
vefútgáfu Dagbladet.
Lögreglumenn og björgunar-
menn fóru inn í rústirnar í gær til
að leita að þeim fimm sem talið er
að hafi farist í skriðunni. „Við
leggjum áherslu á að leita að
fólkinu og að öryggis þeirra sem
taka þátt í leitinni sé gætt,“ segir
John Kåre Flo, lögreglumaður í
Álasundi. - ghs
Álasund í Noregi:
Einn fundinn í
rústunum
KENNSL BORIN Á MANNINN Lík eins
manns hefur fundist í rústunum í
Álasundi í Noregi. Líkið hefur verið flutt
á sjúkrahús þar sem kennsl verða borin
á manninn.
VEIÐI Stóraukning varð á netaveiði í
Hvítá í Árnessýslu á milli áranna
2006 og 2007. Þetta kemur fram á
vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur.
Telja stangveiðimenn aukning-
una samspil þess að stangaveiði-
félagið hafi keypt upp netalagnir í
Ölfusá og vatnsleysis í bergvatns-
ánum þar fyrir ofan, sem varð til
þess að lax var lengur í jökulvatni
Hvítár þar á milli og endaði í
netum bænda. „Breyttust neta-
veiðitölur Hvítár úr rúmlega 400
löxum í 1910 laxa sem er mesta
veiði í mörg ár,“ segir á svfr.is, þar
sem spurt er hvort ekki þurfi að
bregðast sérstaklega við netaveið-
um á stórlaxi. - gar
Vatnsleysi jók netaveiði:
Fimmföld veiði
í Hvítá í þurrki
HVÍTÁ Laxinn stoppaði í Hvítá í fyrra-
sumar.
HEILBRIGÐISMÁL Íslenskir karlar
geta vænst þess að verða þeir
elstu í heimi, eða 79,4 ára,
meðan íslenskar konur verða
að meðaltali 82,9 ára. Sam-
kvæmt tölum frá Hagstofu
Íslands hafa lífslíkur karla
aukist meira en kvenna á und-
anförnum áratugum, og nokk-
uð hefur dregið saman með
kynjunum í meðalævilengd.
Á sjöunda og áttunda áratug
síðustu aldar var um sex ára
munur á ævilengd karla og
kvenna, en sá munur hefur nú
minnkað niður í einungis 3,6
ár. Svipaða þróun má sjá ann-
ars staðar í Evrópu, en af Norð-
urlöndunum utan Íslands er
þessi munur minnstur í Sví-
þjóð, eða 4,4 ár.
Íslenskar konur hafa í gegn-
um tíðina getað státað af hærri
lífslíkum en annars staðar í
heiminum, en nú er svo komið
að kynsystur þeirra frá nokkr-
um þjóðum lifa að jafnaði leng-
ur. Japanskar konur skera sig
úr í þessu sambandi, en meðal-
ævilengd þeirra er heil 86 ár.
Á síðasta ári létust 1.942 ein-
staklingar með lögheimili á
Íslandi; 1.002 karlar og 940
konur. Dánartíðni var 6,2 á
hverja 1.000 íbúa.
- kg
Nokkuð hefur dregið saman með kynjunum þegar kemur að meðalævilengd:
Íslenskir karlmenn verða elstir í heimi
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
ÍSLENSKIR KARLAR Lífslíkur
karla hafa aukist meira en
kvenna á undanförnum
áratugum og nokkuð hefur því
dregið saman með kynjunum í
meðalævilengd.
Fréttamenn handteknir
Lögregla í Simbabve réðist inn í
skrifstofur stærsta stjórnarandstöðu-
flokksins í gær og handtók erlenda
fréttamenn. Þetta þykir benda til þess
að Robert Mugabe, forseti landsins,
hyggist gera allt sem hann getur til að
halda völdum. Enn hefur ekki verið
tilkynnt um úrslit forsetakosninganna.
SIMBABVE