Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 52
heima
gleði og glysgjörn húsráð
Í nýjasta hefti danska húsbúnað-
arritsins, Bolig, sem kemur út í
dag er grein um bestu verslanirn-
ar í nokkrum stórborgum. Blað-
ið velur í nokkrum löndum eina
verslun sem skarar fram úr og
var Kirsuberjatréð á Vesturgötu
4 valin besta verslunin í Reykja-
vík. Þetta er mikill heiður fyrir
eigendur verslunarinnar en hún
er rekin af ellefu listakonum sem
selja hönnun sína í versluninni og
skiptast á að vinna í búðinni. Arn-
dís Jóhannsdóttir, ein af eigendum
Kirsuberjatrésins, segir að þetta
hafa komið þeim skemmtilega á
óvart.
„Við fréttum bara af þessu
þegar blaðið barst í pósti til okkar.
Það er gaman að fá svona viður-
kenningu frá Dönum því þeir eru
svo framarlega í allri hönnun en
við höfðum ekki hugmynd um að
þeir væru að fylgjast með okkur,“
segir hún og hlær. Þetta er þó ekki
í fyrsta skipti sem verslunina ber
á góma í erlendum hönnunartíma-
ritum því oft og tíðum hafa er-
lendir ferðamenn heimsótt versl-
unina með úrklippur sem þeir
hafa séð í blöðum. „Erlendi kúnna-
hópurinn okkar er að verða svo-
lítið stór og sumir koma aftur og
aftur í verslunina til okkar,“ segir
Arndís og bætir því við að erlendu
ferðamönnunum finnist merki-
legt að listamennirnir sjálfir af-
greiði í búðinni. Þegar
hún er spurð að því
hvort útnefningin hafi
einhverjar breytingar
í för með sér segist hún
ekki vita það. „Ég hef ekki
hugmynd. Það breytir að
minnsta kosti ekki því sem
við erum að gera. Þetta er
fyrst og fremst mikill heiður,“
segir hún alsæl.
martamaria@365.is
Kirsuberjatréð kosin besta búðin í Bolig
Íslensk hönnun
hrífur Dani
Kirsuberjatréð á Vesturgötu. Húsið er
sögufrægt en í því hefur verið verslun-
arrekstur í 120 ár samfleytt.
Aprílhefti
danska
húsbún-
aðarrits-
ins Bolig.
Eftir allan mínimalismann er farið að bera á hlýlegri
straumum í innanhússhönnun. Nýjasta nýtt eru rendur. Það
dugar eflaust einhverjum að eiga einn röndóttan púða en
þeir sem lengra eru komnir vilja röndótt húsgögn, röndótt
handklæði, röndóttar mottur og röndótt veggfóður. Hönnuð-
urinn Paul Smith er frægur fyrir rendurnar sínar og nú er
hægt að kaupa röndótt áklæði frá honum og láta yfirdekkja
húsgögnin sín í þessum háklassastíl. Verslunin Epal selur
efni frá Paul Smith og er hægt að sérpanta þau í verslun-
inni. Einnig er gott úrval af röndóttum efnum hjá Bólstr-
aranum á Langholtsvegi en hann flytur líka inn veggfóður
sem eru að slá í gegn þessa dagana. Auðvitað er ekki fallegt
að hafa margar tegundir af röndóttu í einu herbergi en
röndóttur stóll eða röndóttur veggur lyftir heimilinu yfir
hæstu hæðir. - mmj
Rendur í anda Pauls Smith eiga klárlega upp á pallborðið þessa dagana:
Hver röndóttur!
R
ön
dó
tt
e
fn
i f
rá
B
ól
st
ra
ra
nu
m
á
L
an
gh
ol
ts
ve
gi
.
Handklæðin frá
Marimekko eru
röndótt og smart.
Ert þú búin að fá þér eina?
Fæst hjá: Byko um land allt , Max Kauptúni og Holtagörðum , , Byggt og Búið,
Heimilistæki, Ormsson Smáralind , Ljósgjafi nn Akureyri, Ormsson – Model, Krákur
ehf verslun, Rafsjá fasteignir ehf, ÁrvirkinnSelfossi, Tölvuþjónusta Vals,
...ég hreinlega Elska hana
VIÐ ELSKUM
Innanhússarkitektinn India Mahdavi. Hún hefur hannað aragrúa af heimilum,
hótelum og veitingastöðum ásamt því að vera með eigin hönnun í framleiðslu.
Ef þú átt leið um París skaltu kíkja við hjá henni og skoða dýrðina. Á myndinni
má sjá hótelið Avenida Veracruz í Mexíkó en India hannaði innviði þess.
Sófi frá Fritz Hansen yfirdekktur í
Paul Smith áklæði. Hann er hægt
að sérpanta í Epal.
Stóll Hans J.
Wegner í Paul
Smith áklæði er fá-
anlegur í Epal.
12 • FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008