Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 16
16 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
TEIKNIMYNDASTYTTUR Gestur á
alþjóðlegri teiknimyndaráðstefnu í
Tókýó virðir fyrir sér styttur af vin-
sælum kvenfígúrum úr japönskum
teiknimyndum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Aðalfundur
FUNDARBOÐ
Aðalfundur Icelandic Group hf. verður haldinn á Radisson SAS, Hótel Sögu,
Sunnusal, Hagatorgi, Reykjavík, föstudaginn 18. apríl nk. og hefst kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.13 í samþykktum félagsins.
2. Tillaga stjórnar um að félagið taki lán með breytirétti, skv. VI. kafla hlutafélagalaga nr.
2/1995. Fjárhæð lánsins skal vera í íslenskum krónum sem samsvari allt að fjárhæð
€ 41.000.000 á þeim degi sem lánið er tekið. Lánstíminn er 4 ár. Lánsfjárhæðinni ásamt
áföllnum vöxtum og kostnaði samkvæmt skilmálum lánsskjala má breyta í hluti í félaginu
við gjalddaga lánsins og fá eigendur skuldaskjalanna einn hlut fyrir hverja krónu.
Hlutafé félagsins verður hækkað sem nemur þeirri fjárhæð sem nauðsynleg er til að
mæta breytiréttinum, samanlagt allt að nafnverði kr. 15.000.000.000 og falla hluthafar
frá forgangsrétti til áskriftar að hlutum þessum.
3. Tillaga stjórnar um að hluthafafundur veiti stjórn félagsins umboð til að óska eftir
afskráningu félagsins úr kauphöll Nasdaq OMX á Íslandi.
4. Önnur mál.
Hluthöfum er sérstaklega bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn skulu
tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf
aðalfundar. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa gefið kost á sér.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar
eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund. Ennfremur verður hægt að nálgast
þau gögn á vefsíðu félagsins, www.icelandic.is, eða á aðalskrifstofu félagsins frá sama tíma.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á aðalfundardaginn á fundarstað.
Reykjavík, 4. apríl 2008.
Stjórn Icelandic Group hf.
Icelandic Group hf.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-
0
2
5
6
ALÞINGI Ríkið sparaði 16,4 milljón-
ir króna á því að bjóða rekstur á
átján rúma deild fyrir aldraða á
Landakoti út, segir Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra.
Þingmenn tókust á um útvistun á
heilbrigðisþjónustu í utandag-
skrárumræðum á Alþingi í gær.
„Það er verið að markaðsvæða
heilbrigðiskerfið á Íslandi, skref
fyrir skref,“ sagði málshefjandi,
Ögmundur Jónasson, þingflokks-
formaður Vinstri grænna.
Í viðtali Fréttablaðsins við
Magnús Pétursson, sem hætti sem
forstjóri Landspítalans í vikunni,
kemur fram að áætlaður kostnað-
ur við hvert sjúkrarúm á deildinni
hafi verið 18.260 krónur á dag.
Lægstbjóðandi, Hjúkrunarheimil-
ið Grund, hafi boðið um 21 þúsund
krónur. Skrifað var undir samn-
inga við Grund á miðvikudag.
„Hvers vegna eru útboð að
verða skilyrði fyrir aukinni fjár-
veitingu til heilbrigðisþjónustunn-
ar?“ spurði Ögmundur.
Guðlaugur Þór upplýsti að samið
hefði verið um 19.767 þúsunda
króna kostnað á rúm við Grund. Í
fyrra hefði kostnaðurinn verið
22.260 krónur á rúm á sambæri-
legri deild Landspítalans. Sparn-
aðurinn af samningum við Grund
væri því um 16,4 milljónir á árs-
grundvelli.
Hann benti á að umrædd deild
hefði verið lokuð undanfarið
vegna manneklu. Í kjölfar samn-
ingsins við Grund yrði hún opnuð
aftur um miðjan maí. - bj
Tekist á um útvistun á heilbrigðisþjónustu í utandagskrárumræðum á Alþingi:
Ríkið sparaði á Landakotsdeild
GUÐLAUGUR ÞÓR
ÞÓRÐARSON
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
VIRKJANAMÁL „Ég myndi kalla þetta
mútur. Það er bara þannig,“ segir
Jón Árni Vignisson, bóndi í Skálm-
holti í Flóahreppi.
Þar vísar hann til fjörutíu millj-
óna króna eingreiðslu Landsvirkj-
unar til Flóahrepps, samkvæmt
samkomulagi um að Urriðafoss-
virkjun verði sett á aðalskipulag
hreppsins.
Samkvæmt samkomulaginu
greiðir Landsvirkjun hreppnum
þessa fjárhæð „til að styðja við það
að landbúnaður og föst búseta
verði styrkt og eftirsótt á svæð-
inu“. Þetta sé enn fremur vegna
vatnsöflunarmála, segir í sam-
komulaginu.
Margrét Sigurðardóttir, sveitar-
stjóri í Flóahreppi, segir að hug-
myndin hafi verið að nýta féð til
vatnsöflunar.
Í samkomulaginu er hins vegar
sérstakt ákvæði um vatnsöflunar-
mál, vegna hugsanlegra áhrifa lóns
á grunnvatn í sveitarfélaginu. „Í
því skyni mun Landsvirkjun kosta
lögn nýrrar aðveitu vatnsveitu
sveitarfélagsins, tryggja nægilega
miðlun vatnsins með tilliti til dreif-
ingar um allt sveitarfélagið og
byggingu miðlunartanks ef með
þarf.“
„Það kann að vera að féð verði
notað í dreifilagnir, en það er ekki
búið að eyrnamerkja það sérstak-
lega,“ segir Margrét.
„Við gerum okkur grein fyrir því
að framkvæmdir á okkar vegum
valda raski. Sveitarfélagið vill að
við styrkjum aðgerðir sem lúta að
vatnsöflun og við samþykktum
það, en ég vísa því á bug að þetta
séu mútur,“ segir Þorsteinn
Hilmarsson, upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar. Hann segir jafn-
framt að fordæmi séu fyrir ein-
greiðslum af þessu tagi í tenglum
við framkvæmdir.
Jón Árni Vignisson fullyrðir að
eina skýringin á þessu sé sú að í
Flóahreppi hafi verið andstaða við
virkjunina. „Þetta mannvirki
leggst í fjóra hreppa. Af hverju
þurfti ekki að gera neitt í hinum
hreppunum?“ Hann hefur lagt inn
stjórnsýslukæru vegna samkomu-
lagsins.
Landsvirkjun hyggst meðal
annars selja rafmagnið til gagna-
vers á Keflavíkurflugvelli.
ingimar@frettabladid.is
Landsvirkjun
greiðir Flóa-
hreppi milljónir
Flóahreppur fær fjörutíu milljónir frá Landsvirkjun
vegna Urriðafossvirkjunar. Landsvirkjun ætlar sjálf
að borga fyrir nýja vatnsveitu. Bóndi fullyrðir að um
mútur sé að ræða. Landsvirkjun vísar því á bug.
URRIÐAFOSS Jón Árni Vignisson fullyrðir að fjörutíu milljóna greiðsla til Flóahrepps
vegna Urriðafossvirkjunar sé mútur.
SAMGÖNGUR Bæjarráð Vestur-
byggðar segir að miðað við
áætlanir verði veruleg skerðing á
ferðafjölda ferjunnar Baldurs yfir
Breiðafjörð í
sumar.
„Bæjarráð
Vesturbyggðar
mótmælir
harðlega
fyrirhugaðri
fækkun ferða í
sumar og
skorar á
samgönguyfirvöld að ferðafjöldi
verði með sama hætti og síðastlið-
ið sumar, enda eru engar forsend-
ur fyrir breytingum þar sem
vegasamgöngur hafa ekki batnað
á milli ára,“ segir í áskorun frá
síðasta bæjarráðsfundi sem
haldinn var á Patreksfirði. - gar
Bæjarráð Vesturbyggðar:
Mótmælir
fækkun ferða
yfir Breiðafjörð
BALDUR Fyrirhugað
er að fækka sumar-
ferðum.
KÓREA, AP Norður-Kóreustjórn
hafnaði í gær áskorun suður-kór-
eskra ráðamanna um að leggja
sitt af mörkum til að draga úr
spennu í samskiptunum yfir
vopnahléslínuna. Nýr forseti
Suður-Kóreu, Lee Myung-bak,
átaldi norðanmenn fyrir síðustu
ögranir sínar og hvatti þá til að
setjast að samningaborði.
Í tilkynningu sem ráðamenn í
Pyongyang sendu til Seúl er
Suður-Kóreu hótað „hernaðarleg-
um mótaðgerðum“.
Þar segir einnig að ráðamenn í
Seúl „gætu ekki flúið undan
ábyrgðinni á ástandinu sem knúði
(N-Kóreustjórn) til að slíta öllum
viðræðum og tengslum suður
yfir“, að því er segir í skeyti
norður -kóresku fréttastofunnar
KCNA. - aa
Bakslag í Kóreuviðræðum:
Norðanmenn hafa í hótunum
BANDARÍKIN, AP Bandaríkjaforseti er
ekki bundinn af alþjóðlegum lögum
um yfirheyrsluaðferðir á stríðstím-
um, samkvæmt minnisblaði
banda ríska dómsmálaráðuneytisins
sem gert var opin bert á þriðjudag.
Tilvist þess hefur lengi verið kunn,
en það var ritað af lagaprófessorn-
um John Yoo í mars 2003.
Birting þess er liður í lögsókn
bandarísku mannréttindasamtak-
anna ACLU gegn stjórnvöldum.
Framkvæmdastjóri ACLU fullyrðir
að minnisblaðið hafi átt að heimila
pyntingar og sú hafi orðið raunin.
Minnisblaðið var fellt úr gildi í
desember 2003. - kp
Minnisblað um yfirheyrslur:
Forseti hafinn
yfir alþjóðalög