Fréttablaðið - 04.04.2008, Side 12

Fréttablaðið - 04.04.2008, Side 12
12 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR LÖGGÆSLA Ríkislögreglustjóri hefur auglýst lausar stöður 32 lögreglumanna hjá fjórum lögregluembættum. Átján stöður eru fyrir lögregluna á höfuð- borgarsvæðinu, tólf fyrir lögregl- una á Suðurnesjum, ein staða er á Blönduósi og staða lögregluvarð- stjóra á Egilsstöðum er laus. Þá munu 78 lögreglumenn brautskrást frá grunnnámsdeild Lögregluskólans á þessu ári, sem er um tíu prósent af öllu lögreglu- liðinu. - jss Ríkislögreglustjóri: Rúmlega 30 stöður lausar NORÐURLJÓSADÝRÐ Í ALASKA Norður- ljós blika á himni yfir kirkju Votta Jehóva nærri Palmer í Alaska. FRÉTTABLAÐIÐ/AP *Vextir á SPRON Vaxtabót samkvæmt gildandi vaxtatöflu SPRON 1. apríl 2008. Vaxtaaukinn leggst inn á reikninginn um næstu áramót. A R G U S / 0 8- 01 5 8 Allt að 16,30% vextir +16% vaxtaauki!* Þeir sem stofna SPRON Vaxtabót á Netinu fyrir 15. apríl nk. fá 16% vaxtaauka á áunna vexti til 1. júli nk.* Nýttu þér þetta TILBOÐ og stofnaðu reikning á spron.is DÓMSMÁL Karlmaður, búsettur í Kópavogi, hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði á skilorði, fyrir að hafa ráðist með grófu ofbeldi á fyrr- verandi sambýliskonu sína. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða henni 900 þúsund krónur í miskabætur. Hámarksrefsing fyrir brot af þessu tagi, sem heyra undir 217. grein almennra hegn- ingarlaga, er 12 mánuðir. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa í fjögur skipti ráðist á kon- una, dregið hana á hárinu og geng- ið í skrokk á henni með höggum og spörkum. Í síðasta tilvikinu braust maðurinn inn til konunnar og mis- þyrmdi henni. Konan hlaut í öll skipti umtalsverða áverka og eymsl. Maðurinn neitaði sök fyrir dómi. Dómurinn taldi frásögn hans ekki trúverðuga og að í henni væru mótsagnir. Aftur á móti taldi dómurinn framburð konunnar trú- verðugan. Hann var studdur læknis vottorði, svo og framburði læknis og vitna. Í dóminum kemur fram að maðurinn hafi átt að baki nokkurn sakaferil. Brot hans gegn konunni hafi verið niðurlægjandi fyrir hana og einkennst af „hrotta- skap og ófyrirleitni“. - jss HÉRAÐSDÓMUR Dómurinn sagði brot mannsins gegn konunni hafi verið niðurlægjandi fyrir hana og einkennst af „hrottaskap og ófyrirleitni“. Dæmdur í héraðsdómi fyrir fjórar líkamsárásir á fyrrverandi sambýliskonu: Átta mánuðir fyrir gróft ofbeldi LÖGREGLUMÁL „Þjófarnir hafa þurft tvær ferðir á vörubíl,“ segir verk- takinn Hannes Þór Baldursson um dularfullt hvarf steypumóta frá Grandagarði. Hannes, sem er annar eigenda Viðhalds fasteigna ehf, segir að steypumótum frá fyrirtækinu hafi verið komið fyrir við Grandagarð 8 í Reykjavík fyrir um þremur vikum. Þar sé verið að steypa hæð ofan á gamla Sjóminjasafnið. „Þegar ég kom í vinnuna á mánudaginn sá ég að það vantaði slatta af mótum. Ég hélt fyrst að einhver hefði fengið þau lánuð en komst fljótt að öðru,“ segir Hannes. Þegar að var gáð reyndust vera horfin steypumót sem samanlagt eru nærri 70 lengdarmetrar. „Þetta er tjón fyrir um sex og hálfa milljón,“ segir Hannes. Maður í nágrenninu átti leið hjá þegar mótin voru flutt á brott á sunnudaginn. „Hann var hins vegar ekkert að spá neitt í þetta og tók ekki eftir neinu sérstöku sem gagn- ast,“ segir Hannes, sem telur að þjófurinn eða þjófarnir hafi vísast verið að minnsta kosti klukkustund að bisa við að stela mótunum. „Lög- reglan var alveg gáttuð á þessu. Þetta er alveg stórskrítið.“ - gar Bíræfinn þjófnaður um hábjartan dag við gamla Sjóminjasafnið á Grandagarði: Stálu 70 metra löngum steypumótum HANNES ÞÓR BALDVINSSON Mótin sem var stolið voru frá Kvörnum og heita Marcegaglia. Mótin eru nýleg og sprautuð á köntunum með gulri og rauðri málningu. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA MÁLÞING Íslenska í fjölmiðlum er yfirskrift málþings sem Íslensk málnefnd og Blaðamannafélag Íslands boða til í dag. Rædd verður ábyrgð fjölmiðla gagnvart íslensku máli og um gengni fjölmiðla við tungu- málið, auk þess sem fjallað verður um sjónvarpsþýðingar og talsetn- ingu sjónvarpsefnis. Málþingið er hið sjöunda í röð ellefu málþinga Íslenskrar málnefndar á þessu vormisseri en nefndin vinnur nú að tillögu að málstefnu fyrir menntamálaráðu- neytið. Þingið, sem er haldið á Hótel Holti, hefst klukkan fjögur og lýkur klukkan sex. - kdk Boðað til málþings í dag: Íslenska í fjöl- miðlum rædd Málið í kviðdómi Ellefu manna kviðdómur í réttarrann- sókninni á dauða Díönu prinsessu dró sig í hlé í gær. Kviðdómurinn hefur hlustað á vitnisburð 250 manns síðustu sex mánuði. BRETLAND

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.