Fréttablaðið - 04.04.2008, Side 20

Fréttablaðið - 04.04.2008, Side 20
20 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ „Við erum mjög hress og kát,“ segir Helgi Rúnar Gunnarsson, söngvari og gítarleikari í hljómsveitinni Benny Crespo´s Gang. Hljómsveitin hóf í vikunni tónleikaför sína um land- ið, Rokkað hringinn með Rás 2 og Monitor ásamt sveitunum Dr. Spock og Sign. „Það er allt ljóm- andi gott og fer vel af stað,“ segir Helgi. „Þetta er skemmtilegt lið og hressir krakkar.“ Helgi segir meðlimi hljómsveitanna eitthvað þekkjast fyrir en þeir eigi eftir að kynnast betur þegar á líður tónleikaferðina. Þá hefur plötu Benny Crespo´s Gang verið afar vel tekið. „Við erum æðislega ánægð enda fór þetta fram úr okkar björtustu vonum. Við vorum ekki að spila neitt mikið þegar platan kom út fyrir áramótin en við erum búin að spila töluvert mikið að undanförnu.“ „Ég veit ekki hvert fram- haldið verður eftir túrinn. Væntanlega höldum við áfram að kynna plötuna og svo ætlum við að fara að pæla nánar í útgáfu erlendis en það verður með haustinu. Ég held að fílingurinn sé eitthvað með Bretland en eins og staðan er núna eru þetta meira pælingar og ekkert komið á hreint.“ „Þetta er bara það sem stefnan er sett á eftir að við erum búin að kynna plötuna hérna á Íslandi. Maður má ekki vera allt of æstur í spilerí- inu svo maður þreytist ekki og þreyti ekki alla í kringum sig á þessu. Við slökum á eftir túrinn og sjáum til.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HELGI RÚNAR GUNNARSSON TÓNLISTARMAÐUR Ætla að skoða útgáfu erlendis ■ Uppfinning bréfa- klemmunar er oftast eignuð Norðmannin- um Johan Vaaler sem fyrstur manna fékk einkaleyfi á bréfa- klemmu árið 1899. Vaaler, sem hafði lært rafeindatækni og stærðfræði, fékk einkaleyfið í Þýskalandi þar sem engin einka- leyfislög voru til í Noregi á þessum tíma. Árið 1901 fékk hann einkaleyfi á uppfinningu sinni í Bandaríkj- unum. Breska fyrirtækið Gem Manufacturing Ltd. hannaði síðan þá bréfaklemmu sem þekktust er í dag. Aldrei var sótt um einkaleyfi á þeirri klemmu. ÞARFAÞING BRÉFAKLEMMAN Varla hefur það farið framhjá neinum að atvinnu- bílstjórar hafa fylkt liði til mótmæla síðustu daga. Þeir hafa teppt umferð, þeytt horn sín og látið óánægju sína í ljós á margvíslegan máta. Blaðamaður og ljós- myndari slógust í för með bílstjórunum í gær. Það var hugur í mönnum þegar atvinnubílstjórar söfnuðust saman í Öskjuhlíð um tólfleytið og ákveð- in karnival-stemning í lofti. Ein- hverjir kíktu eftir lögreglunni, aðrir skipulögðu bílaröðina og sumir voru í óðaönn að losa tengi- vagnana aftan af. Nú var ekki ætl- unin að stöðva umferð, heldur skyldi keyrt í halarófu á áfanga- stað og „allt gert vitlaust þar,“ eins og einn bílstjóranna komst að orði. Fyrst átti að keyra að Valhöll, en vegna jarðarfarar í Háteigskirkju var ákveðið að fara niður að fjár- málaráðuneyti í staðinn. Halarófan lagði af stað og við- brögð vegfarenda létu ekki á sér standa. Einhverjir bílstjórar skutu sér fram fyrir bílalestina, ætluðu greinilega ekki að festast á eftir henni. Langflestir veifuðu, klöppuðu og sýndu stuðning sinn í verki. Meira að segja lögreglu- þjónar brostu kumpánlega til mót- mælendanna, en lögreglan fékk fljótt veður af aðgerðunum. „Já blessaður, þetta er alltaf svona,“ segir Finnur Hrafn Pálsson, sem fór fyrir lestinni í dag. „Já og löggan er fín líka, þeir eru á móti þessum olíugjöldum eins og aðrir.“ Mikill hugur var í bílstjórunum, þeir kölluðu hvatningarorð um tal- stöðina, gerðu grín, skömmuðu menn fyrir að dragast aftur úr og hvöttu menn til að halda hópinn. Ljóst er að mikil samstaða er í mönnum og hún var enn ljósari þegar komið var að Arnarhváli þar sem bílarnir voru stöðvaðir. Menn hafa ekki kynnst hávaða fyrr en þeir standa innan um tuttugu flutningabíla í hverjum flautur eru þeyttar. Allir sem gátu forðuðu sér, en lögreglumennirnir stóðu sem fastast og fjölmiðla- menn hlupu á milli bílanna. Eftir nokkra hríð hættu menn flautinu og stigu úr bílunum. Rifj- að var upp að fjármálaráðherra hefði boðið í kaffi og menn vildu þiggja boðið þá og þegar. Lögregl- an varnaði mönnum hins vegar inngöngu og ráðherrann ekki einu sinni við. Lögregla skrifaði niður upplýsingar um tvo bílstjóra og tók myndir af þeim fyrir framan bílana. Þetta fór illa í hópinn. Um nokkra hríð leit út fyrir að sjóða myndi upp úr og mikill hiti var í mönnum. Flauturnar voru þeyttar á ný og nokkur hróp urðu. Á endanum féll þó allt í ljúfa löð og starfsmenn ráðuneytisins komu út með kaffi. Ljóst er að bílstjórar eru ekki hættir mótmælum sínum og ef eitthvað er hefur baráttuandi þeirra styrkst. - kp Vér mótmælum allir! LÍKA ÉG Bílstjórar vildu láta eitt yfir alla ganga, líka sektir. KOMA SVO Finnur stýrði sínum mönnum með talstöðinni. HÁTT ER ÞAÐ Mikill hávaði myndaðist þegar um tuttugu bílstjórar þeyttu flautur sínar fyrir utan fjármálaráðuneytið í hádeginu í gær. Vegfarendur gripu fyrir eyrun og forðuðu sér úr hávaðaflautinu; einungis lögreglan, bílstjórar og blaðamenn urðu eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Glöggt er gests augað „Íslendingar ættu að skamm- ast sín fyrir hvernig þeir opinbera hæfileikaleysi sitt og heimurinn hlær að svona fávitum.“ INDVERSKA PRINSESSAN LEONCIE Séð og heyrt 3. apríl Sjálfskaparvíti „Menn hafa sjálfir ákveðið að kaupa dreka, sem eyðir 15 lítrum á hundraði í stað þess að kaupa léttan bíl, sem eyðir 5 lítrum.“ JÓNAS KRISTJÁNSSON jonas.is Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.