Fréttablaðið - 04.04.2008, Qupperneq 40
Leikarinn Ólafur Darri Ólafs-
son hefur haft í mörgu að snú-
ast á síðustu árum. Hann hefur
meðal annars látið að sér kveða
með leikhópnum Vesturporti og
hefur leikið í fjölmörgum íslensk-
um bíómyndum. Ólafur Darri leik-
ur þessa dagana í Kommúnunni í
Borgarleikhúsinu og er nýbyrjað-
ur að leika í kvikmyndinni Brimi.
Þá kemur hann við sögu í glæpa-
mynd Óskars Jónassonar, Reykja-
vík-Rotterdam, sem verður frum-
sýnd síðar á þessu ári og svo er
hann auðvitað að glíma við flók-
ið sakamál ásamt félaga sínum úr
Vesturporti, Gísla Erni Garðars-
syni, á sunnudagskvöldum í sjón-
varpinu í spennuþáttunum Manna-
veiðum.
Í haust hefjast svo tökur á Rok-
landi sem byggir á samnefndri
skáldsögu Hallgríms Helgason-
ar. Þar leikur Ólafur Darri aðal-
sögupersónuna, Bödda, en eins
og Föstudagur greindi frá fyrir
viku þarf Ólafur Darri að ná af
sér þrjátíu kílóum fyrir hlutverk-
ið. En hvernig ætlar hann sér að
ná því takmarki? „Þetta gengur nú
fyrst og fremst út á hollt mataræði
og mikla hreyfingu,“ segir Ólafur
Darri sem er byrjaður að boxa og
stunda lyftingar reglulega. „Ég
var ákveðinn að fá í lið með mér
Sigurpál, vin minn og fyrrverandi
einkaþjálfara, en sökum anna gat
hann því miður ekki tekið þetta
að sér. Ég er samt í góðum hönd-
um hjá Hilmari einkaþjálfara í
World Class. En þar hafa Dísa
og Bjössi stutt við bakið á mér
eins og reyndar Vesturporti öllu.
Jafnframt er ég í hnefaleikum
í Hnefaleikastöðinni hans Villa
Hernandez.“
Búinn með einn þriðja
Ólafur Darri nálgast verkefnið
æðrulaus og öruggur þótt Sigurpál
vanti og hefur þegar náð ágætis
árangri. „Ég held í raun að það
sé engin töfralausn til við þessu.
Maður verður bara að eyða meiri
orku en maður innbyrðir. Þetta
er ekkert flóknara. Ég hef verið
í sambandi við næringarfræðing
og lækni og fer mér að engu óðs-
lega í þessu. Maður þarf að passa
sig ef maður ætlar að missa svona
mikla þyngd á stuttum tíma. Það
þarf að gera þetta skynsamlega
en ég kvíði engu. Mér finnst þetta
bara skemmtileg áskorun.“ Hann
byrjaði í átakinu snemma í febrú-
ar og er þegar búinn að tapa tíu
kílóum. „Ég er búinn með einn
þriðja,“ segir Ólafur Darri sem
boxar þrisvar í viku og er nú búinn
að bæta við lyftingum þrisvar í
viku. „Ég er eðlilega miklu hress-
ari,“ segir hann þegar talið berst
að því hvort hann finni einhvern
mun á sér eftir að hann fór á fullt
í líkamsræktina. Ólafur Darri seg-
ist ekki vita hvað muni gerast að
loknum tökum á Roklandi og hvort
hann muni þá bæta aftur á sig
kílóunum sem hann fargaði fyrir
hlutverkið. „Það er nú ekki stefn-
an. Ég hef mjög gott af því að létta
mig aðeins. Fyrir mér er það þó
ekkert markmið að vera 90 eða 100
kíló. Mér líður alveg vel með sjálf-
an mig þótt ég sé aðeins í þyngri
kantinum. Ég sé bara hvað konan
segir. Hún má bara ráða því.“
Á sitthvað sam eiginlegt með
Bödda
Í Roklandi segir Hallgrímur
Helgason frá Bödda Steingríms
sem snýr aftur á Sauðárkrók eftir
tíu ára námsdvöl í Þýskalandi. Þar
kennir hann í Fjölbrautarskólan-
um þar til hann er rekinn enda
kemur á daginn að Krókurinn er
of lítill fyrir jafn stórorðan mann.
Böddi er andans maður í ríki efnis-
hyggjunnar og fær útrás á blogg-
síðu sinni þar sem hann deilir á
nútímaþjóðfélagið þangað til hann
segir því stríð á hendur. Ólafur
Darri hreifst af Bödda þegar hann
las bókina og útilokar ekki að hann
eigi sitthvað sameiginlegt með
hugarfóstri Hallgríms. „Jú, jú. Ég
held það. Þegar ég las þessa bók
hans Hallgríms fannst mér hún al-
gerlega frábær og mjög þörf. Svo
fannst mér Böddi bara vera karl
sem mig langaði mikið til að tækla
og takast á við. Ég held við séum
sammála um ýmislegt. Hann er
mikill öfgamaður í skoðunum og
öllu sem hann gerir. Ég held að
ég eigi það nú til að hafa miklar
skoðanir. Ég flagga þeim kannski
ekki jafn mikið og hann gerir,
nema þá helst í góðra vina hópi.“
Hann segist þó ekki hafa leiðst út
í bloggskrif þótt hann geti fund-
ið ákveðinn samhljóm með per-
sónu Bödda. „Nei, kannski er ég
bara ekki bloggtýpan. Ég hef í það
minnsta ekki lagt í það ennþá og
veit ekki hvort ég hef þörf fyrir
það. En mér finnst ótrúlega gaman
að lesa blogg og finnst blogg frá-
bært. Mér finnst skemmtilegt
hvað maður getur í rauninni fund-
ið margar ólíkar raddir um eitt-
hvert málefni sem maður hefur
áhuga á. Það er mjög fínt. Kannski
er þetta sú hlið sem vekur áhuga
minn á blogginu (sem við verð-
um að fara að finna íslenskt orð
yfir) og mér finnst skemmtilegt
að maður getur skoðað blogg for-
stjóra eina stundina, húsmóður þá
næstu og svo bara hvers sem er.
Það finnst mér skemmtilegt.“
Leikari fyrir heppilega tilviljun
Þegar talið berst loks að leiklist-
inni sem Ólafur Darri hefur bundið
Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson hefur verið
áberandi í íslensku leikhúslífi og kvikmyndagerð
síðustu misseri. Í viðtali við Bergþóru Magnús-
dóttur talar hann um aukakílóin sem hann ætlar
að losna við og heppnina sem fylgir honum hvert
fótmál.
Þungavigtar-
leikari
fórnar
aukakílóum
Fórnar sér fyrir hlutverkin. Ólafur Darri þarf að létta sig um 20 kíló í viðbót til að verða Böddi í Roklandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Morgunmaturinn: Lýsi og kannski
ein eða tvær ristaðar brauðsneið-
ar með osti.
Eftirlætismaturinn: Humar.
Besta líkamsræktin: Hnefaleikar.
Mesta afrekið: Að hætta að reykja.
Áhugamál: Vinnan mín.
Skemmtunin: Að sýna frumsam-
in dansverk í eldhúsinu fyrir kon-
una mína.
Uppáhaldsborg: París.
8 • FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008