Fréttablaðið - 04.04.2008, Page 42

Fréttablaðið - 04.04.2008, Page 42
● fréttablaðið ● ráðstefnur og hvataferðir 4. APRÍL 2008 FÖSTUDAGUR2 Frakklandsferðir skipuleggja ferðir fyrir einstaklinga og fyrirtæki til Montpellier í Suður-Frakklandi, hvort sem menn sækja þangað ráðstefn- ur, hópefli eða hvataferðir. „Engu er líkara en að máttarvöld- in hafi tínt saman það besta úr Evrópu og komið fyrir í Montpelli- er: baðstrendur Spánar, sögulegar minjar Rómverja, vín-, matar- og rómantíska menningu Frakklands, dillandi sígaunatónlist Ungverja- lands, og ægifögur fjallahéruð Pyreníufjallanna,“ segir Arnaldur Haukur Ólafsson sem ásamt hálf- franskri konu sinni, Louisu Stef- aníu Djermoun, rekur fyrirtæk- ið Frakklandsferðir í Montpelli- er, þriðju stærstu ráðstefnuborg Frakklands. Hjónin hafa búið í Montpelli- er síðastliðin þrjú ár, síðan Arn- aldur var þar við nám, og fóru út í reksturinn fyrir hálfgerða tilvilj- un, eða eftir að hafa tekið á móti kennurum sem vildu kynna sér svæðið. Vegna þess hve vel tókst til ákváðu þau að bjóða upp á sér- hannaðar ferðir til borgarinn- ar sem þau segja spennandi kost fyrir einstaklinga og íslensk fyr- irtæki hvort sem um ræðir ráð- stefnur, árshátíðir, hvataferðir eða hópefli. „Hér er allt innan seilingar og allt það skemmtilegasta sem menn tengja venjulega við ferða- lög: gott veður, frábær matur og vínmenning, strendur og baðstað- ir, magnaðir golfvellir og ekki síst ríkulegur menningararfur. Það eina sem er gervi- eða plastlegt hérna eru vatnsflöskurnar. Allt annað er ósvikið,“ fullyrðir Arn- aldur, sem greinilega er yfir sig hrifinn af heimkynnum sínum og vill að sem flestir fái tækifæri til að njóta þeirra. Hann segir tilvalið að sameina vinnu og skemmtun eða hvata- og árshátíðarferðir með ferð til Montpellier og hægt sé að hafa alla fjölskylduna með. „Hvata- ferðir taka sífellt meira mið af fjölskyldunni og fyrirtækin gera sér orðið betur grein fyrir því að góðum starfsmanni er ekki best umbunað með því að slíta hann frá fjölskyldunni. Hvers vegna ekki að senda mömmu á ráðstefnu í einn eða tvo daga á meðan pabbi og krakkarn- ir slappa af á ströndinni og svo sameinast öll fjölskyldan í nokkra daga í þessu frábæra umhverfi? Þetta er nefnilega einn af fáum stöðum sem getur sameinað þetta tvennt svo leikandi létt,“ segir Arnaldur og heldur fast í þá trú að lífið og vinnan geti verið fjöl- skylduvænna heldur en margan grunar. Allar nánari upplýsingar www. frakklandsferdir.is -vaj Hótel Hamar við Borgarnes hentar vel til vinnu jafnt sem slökunar að sögn eigendanna Unnar Halldórsdóttur og Hjartar Árnasonar. Hótel Hamar hentar vel fyrir ráð- stefnur og aðrar samkomur, vilji menn komast úr ys og þys borg- arinnar. Eigendur Hótels Hamar, hjónin Unnur Halldórsdóttir og Hjörtur Árnason, segja ekki meira en klukkustundarakstur þangað af höfuðborgarsvæðinu. Þau telja einnig tilvalið að mæla sér mót í Borgarfirði komi menn víðar að. Allur almennur fundarbúnaður er til staðar og þráðlaust net alls staðar í húsinu. Vel valdir stól- ar gera litla fundarherbergið að góðum stað og fundarsími er á staðnum, þannig að ef einhver for- fallast geta fjarstaddir tekið þátt í fundum. Stærra fundarherberg- ið rúmar allt að fimmtíu manns og í matsal er rými fyrir allt að hundrað manns, en mikil áhersla er lögð á góðan mat og þjónustu. Vel er búið að gestum í rúmgóðum tveggja manna herbergjum sem öll eru með eigin sólpall. Hótelið hefur einnig þá sérstöðu að vera inni á miðjum golfvelli svo fyrirtæki og hópar geta sleg- ið tvær flugur í einu höggi: fundað hluta dags og leikið golf á eftir. Og það er ekki á hverjum dvalarstað þar sem frumsamdar ferskeytlur fljóta á við aðrar veigar. Húsráðendur hafa margra ára reynslu af félagsstarfi og telja því ekki eftir sér að skipuleggja hvata- ferðir og hópefli. „Golfmótin eru sérstaklega vinsæl og við bjóðum einnig golfkennslu fyrir byrjend- ur. Ratleikir um nágrennið njóta einnig mikilla vinsælda og sveita- fitness á Hvanneyri eða heimsókn í fjós Guðmundar ráðsmanns bæta hvers manns geð,“ bendir Unnur á og telur það ekki erfitt að finna skemmtilega afþreyingu þar sem af nógu er að taka. „Vínsmökkun og danskennsla getur hentað betur ef viðrar til inniveru og stutt er að fara í Landnámssetrið í Borgarnesi. Þar er verið að sýna hinn sívæn- sæla Mr. Skallagrímsson og Brák, tvær skemmtilegar leiksýningar sem kitla hláturtaugarnar,“ segir Unnur, sem telur sundlaugina í Borgarnesi með þeim betri á land- inu og vel þess virði að taka sprett í. Einnig sé hægt að bóka sér- sniðna fitness tíma í íþróttamið- stöðinni eða skreppa á gervigras- völlinn. Þá er óupptalið umhverfið en gestir Hamra geta notið lands- lagsins þegar slakað er á í heit- um potti. „Útsýnið á Hamri kemur mörgum á óvart. Fjallasýnin er engu lík og sólarupprásin kveikir rómantísk- ar kenndir í brjósti jafn vel for- hertustu möppudýra,“ fullyrð- ir Unnur, sem telur rólegheitin í sveitinni henta vel til vinnu jafnt sem slökunar. Ýmislegt fleira er í boði en best er að telja ekki allt upp hér ef fyrirtæki vilja nýta tækifærið og fá staðarhaldara á Hamri til að skipuleggja fundahöld, hvata- eða óvissuferðir fyrir starfsfólkið. - vaj Hist, gist, prútt- að og púttað Hótelið hefur þá sérstöðu að standa á miðjum golfvelli svo hægt er að funda og leika golf á eftir. Hótel Hamar er í klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborginni og hentar vel fyrir fundahöld, hvata- og óvissuferðir. Umhverfið er einkar fallegt í Borgarfirði og hægt að sækja sér þar ýmsa afþreyingu. Fjölskylduvænar vinnuferðir Montpellier með augum ljósmyndarans Gilees Foucras. Borgin er þriðja stærsta ráðstefnuborg Frakklands en þar er hægt að gera sér margt til dægrastyttingar. Að sögn Arnalds hefur Montpellier upp á margt gott að bjóða, hvort heldur góða vín- og matarmenningu, dillandi sígaunatónlist og fögur fjöll. Montpellier er meðal annars rómuð fyrir fallegar baðstrendur þar sem tilvalið er slappa af milli þess sem er unnið. Tilviljun ein réði því að Arnaldur og Lovísa hófu rekstur. Eftir velheppnaða heimsókn þar sem farið var með gesti í vínkynningar, golf og fleira tóku þau að kynna sér betur hvað nágrennið bauð upp á. Nú segjast þau geta sett saman óskaferð hvers og eins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.