Fréttablaðið - 04.04.2008, Page 61
FÖSTUDAGUR 4. apríl 2008 29
UMRÆÐAN
Evrópumál
Lykilinn að þeirri miklu auðlegð og velmegun
sem ríkir hér á landi má
fyrst og fremst þakka
ákvörðunum sem fram-
sýnir og djarfir stjórn-
málamenn tóku á sínum
tíma. Hér á ég við útfærslu
landhelginnar, aðildina að EFTA
og sölu ríkisbankanna. Nú, þegar
„gefur á bátinn“ í íslenskum efna-
hagsmálum, hefur möguleg aðild
Íslands að Evrópusambandinu
aftur komist á dagskrá.
Þeim fjölgar ört sem fullyrða,
með réttu, að krónan dugi ekki
lengur sem gjaldmiðill. Til að
hamla gegn þenslu er hér haldið
uppi hæstu vöxtum sem þekkjast í
aðildarlöndum OECD. Það má ljóst
vera að heimilin í landinu standa
ekki undir því að borga 15-16%
vexti sem fara í vasann á erlend-
um fjárfestingarsjóðum. Fram-
sýnir Íslendingar telja því að við
lausn efnahagsvandans þurfi að
líta til lengri tíma. Líklegast er því
hagstæðast fyrir þjóðarbúið að
taka upp evru. Til þess þurfa
Íslendingar að ganga í ESB.
Andstæðingar aðildar að ESB
benda á að aðild lagi ekki núver-
andi efnahagsvanda; skynsam-
legra sé að tengjast öðrum gjald-
miðli, t.d. norrænni krónu eða
svissneska frankanum. Að tengj-
ast öðrum gjaldmiðli en evru eru
draumórar. Sá efnahagsvandi sem
við glímum nú við á ekki upptök
sín hér á landi heldur í Bandaríkj-
unum. Íslenskt efnahagslíf er ekki
einangrað heldur hluti af risa-
vöxnu efnahagskerfi heimsins. Til
að koma efnahagsmálum þjóðar-
innar á lygnan sjó þurfum við að
vera virkari þátttakendur í ákvörð-
unum er snerta efnahagsmál
okkar og það gerum við líklegast
best með því að ganga í ESB. Í
stuttu máli að starfa með
nágrannaþjóðum okkar sem við
höfum hvað mest viðskipti og
söguleg menningarleg tengsl við.
Ástæðan fyrir þessum skrifum
mínum er grein formanns Fram-
sóknarflokksins, Guðna Ágústs-
sonar, í Mbl. 13. mars sl. Í grein
Guðna kemur fram að
aðeins rúm 36% Fram-
sóknarmanna eru hlynnt
aðild að ESB en rúm 52%
andvíg. Þessar niðurstöð-
ur koma mér ekki á óvart.
Fylgi Framsóknar hefur
hrunið á undanförnum
árum, eða úr 23,3% og 15
þingmönnum árið 1995
niður í 11,7% og 7 þing-
menn árið 2007. Ýmis-
legt bendir til þess að ungt fólk og
langskólagengið sé frekar hlynnt
aðild að ESB en aðrir. Það er ein-
mitt þetta fólk sem helst hefur
yfirgefið flokkinn á undanförnum
árum. Þá er rétt að benda á að nán-
ast engin umræða hefur verið um
Evrópumál á meðal óbreyttra
framsóknarmanna, þar sem
flokksstarfið hefur verið lítið sem
ekkert undanfarin ár. Sú frjóa
umræða sem verið hefur innan
Samfylkingarinnar, og undanfarin
misseri innan Sjálfstæðisflokks-
ins, um Evrópumál vantar í Fram-
sóknarflokkinn.
Ef ég yrði spurður hvort ég væri
hlynntur aðild Íslands að ESB yrði
svar mitt afdráttarlaust: „Ég veit
það ekki.“ Möguleg aðild að ESB
er spurning sem við verðum að
svara innan tíðar og snertir nánast
alla þætti daglegs lífs okkar næsta
áratuginn. Framsóknarflokkurinn
á því að vera djarfur og framsýnn
og vinna að því að við fyrstu hent-
ugleika verði farið í viðræður við
ESB um væntanlega aðild okkar.
Þessar viðræður ættu ekki að taka
langan tíma og um niðurstöðurnar
væri svo hægt að taka ákvörðun í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Ef Íslend-
ingar samþykktu aðild að ESB
gætum við orðið fullgildir aðilar
að myntbandalaginu 2015.
Eftir lestur greinar Guðna í
Mbl. hef ég nokkrar áhyggjur af
því að formaðurinn hafi ekki nógu
fróða og víðsýna ráðgjafa í mál-
efnum Evrópusambandsins. Ég vil
því leyfa mér að benda á einstakl-
ing sem hefur meiri þekkingu á
þessum málaflokki en flestir aðrir.
Hér á ég við Jón Sigurðsson, fyrr-
verandi formann Framsóknar-
flokksins.
Höfundur er afi og félagi í
Framsóknarfélagi Reykjavíkur.
Framsókn og framtíðin
SIGMAR B.
HAUKSSON
UMM er spennandi nýjung í matarflóru Íslendinga sem h entar öllum sem hugsa um líkama
sinn og vilja borða vel. UMM er bragðsterk veisla frá öllum heimshornum; salöt, tortillur,
ávextir, kús kús, orkustykki og ... umm, hvað þetta er gott.
UMM ER GLÆNÝR HEILSUBITI ÚR SPENNANDI HRÁEFNI
BORÐAÐU
VEL
–
BORÐAUVEL-B
OR
L -
Ð
AÐ
U
VE
úÞ færð UMM-réttina í Ne sti á N1 stöðinni.
Arctic Spas Faxafeni 9 Sími 554 7755
www.arcticspas.is ath. Aðkoma í kjallara, bakhús.
OPIÐ Í DAG
9.00 - 18.00
Kanadískir
gæða pottar.
Verð frá 490.000,-
Arctic Spas er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á heitum
pottum í heiminum í dag. 25 ára gamalt fyrirtæki í
Kanada. Eitt af 50 best reknu fyrirtækjum í Kanada,
Það segir meira en mörg orð.
5-6 manna, með legubekk, stærð 212cm x 212 cm, hæð 100 cm. 1450 lítra.
4 hnakkapúðar fylgja með. Eigum 3 liti á lager, Bláar, hvítar og svartar.
Ath: Skeljarnar eru byggðar úr trefjagleri. Trefjagler upplitast ekki í sól eins og
plastskeljar gera og eru 10 falt sterkari. Ekki þarf að byggja sérstakann stuðning
undir sætin. Eigum lok sem passar, 2 litir.
Ótrúlegt verð aðeins
kr. 190.000,-
Vorum að fá skeljar beint frá Kanada,
byggðar úr trefjagleri.