Fréttablaðið - 04.04.2008, Page 66
34 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Uppselt var á Minningartónleika Bergþóru Árna-
dóttur sem haldnir voru í febrúar síðastliðinn.
Vegna mikillar eftirspurnar eftir aukatónleikum
hefur verið ákveðið að verða við því og verða
þeir á morgun, laugardaginn 5. apríl, í Grafar-
vogskirkju og hefjast þeir klukkan 20.30. Miðar
eru seldir á midi.is og við innganginn. Minn-
ingartónleikar eru liður í að heiðra minningu
söngvaskáldsins og baráttukonunnar Bergþóru
Árnadóttur, en hún lést langt fyrir aldur fram í
mars 2007.
Margir af okkar frambærilegustu söngvurum
og hljóðfæraleikurum munu klæða tímalaus lög
Bergþóru í nýjan búning. Þeirra á meðal eru Páll
Óskar, Magga Stína, Hansa, Ragnheiður Gröndal,
Svavar Knútur, Jón Tryggvi Unnarsson, Hjörleifur
Valsson, Björgvin Gíslason Tatu Kantomaa, Ást-
valdur Traustason, Birgir Bragason og Steingrím-
ur Guðmundsson.
Nýlega gaf Dimma út fimm diska safn með
tónlist Bergþóru sem spannar allan hennar tón-
listarferil og er sú útgáfa óbrotgjarn minnisvarði
um frjóan en skamman feril þessarar merku
tónlistakonu sem var ein þeirra sem hratt af
stað nýjum áhuga á vísnasöng hér á landi og
hafði þannig ómæld áhrif á landslag alþýðutón-
listar hér á landi. - pbb
Enn er Bergþóru minnst
TÓNLIST Bergþóra Árnadóttir vísnasöngkona og
tónsmiður. MYND/FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á morgun er opnuð sérstök
sýning á vegum Listasafns
Alþýðusambands Íslands í
Ásmundarsal, gömlu vinnu-
stofu og heimili Ásmundar
Sveinssonar myndhöggvara
á Freyjugötu 41 í Reykjavík
sem helguð er starfsemi
þess sýningarsalar sem
þar var til húsa á umbreyt-
ingaárunum 1951-1954 og
kallaðist Listvinasalurinn.
Listvinasalurinn var stofnaður
árið 1951 af þeim Birni Th. Björns-
syni og Gunnari Sigurðssyni í hús-
næði Ásmundar Sveinssonar
myndhöggvara við Freyjugötu 41,
þar sem Listasafn ASÍ er nú.
Á sýningunni sem helguð er
starfsemi félagsins er þessum
mikilvæga kafla í íslenskri mynd-
listarsögu minnst. Sýningin ber
skammarheiti þessa tíma –
Klessulistarhreiðrið – titill sýn-
ingarinnar er fenginn úr blaða-
skrifum um Listvinasalinn, en
óhætt er að fullyrða að ekki hafi
ríkt nein lognmolla í kringum
starfsemi hans.
Listvinasalurinn var fyrsta
gallerí sinnar tegundar í Reykja-
vík og atkvæðamikill þátttakandi
í listalífi Reykjavíkur þau ár sem
hann var starfræktur. Stjórnend-
ur hans lögðu áherslu á nútíma-
list, sérstaklega geómetrískri og
abstrakt. Ekki voru allir jafn
hrifnir af þessari „nýju“ tegund
myndlistar og umræður urðu oft
heitar. Slagurinn um tilverurétt
hins óhlutstæða málverks var
stríður hér á landi og tók raunar
við af harkalegum deilum um
atómljóðið – ljóðlist áns ríms og
stuðla. Margir íhaldssamari litu á
þessar útlendu listastefnur sem
þjóðhættulegar, þeim væri stefnt
gegn aldakjarna íslenskrar menn-
ingar. Inn í þessa deilu komu and-
stæðar skoðanir og reynsla þeirr-
ar kynslóðar sem sótt hafði
listnám til Evrópu og Bandaríkj-
anna strax eftir stríð og var deil-
an um myndlistina raunar annar
þáttur í fimm þátta drama í
íslensku samfélagi þar sem víg-
völlurinn færðist til eftir árum:
ljóðið, myndlistin, tónlistin, leik-
húsið og loks skáldsagan voru
sviðin sem barist var á.
Flestir listamannanna sem
sýndu í Listvinasalnum voru
ungir og íslenskir, en metnaður-
inn var mikill hjá rekstraraðilum
og er skemmtilegt að geta þess að
í Listvinasalnum voru sýnd verk
eftir listamennina Jean Arp,
Picasso, Braque og Kandinsky
sem Hörður Ágústsson kom með
heim frá París í farangrinum.
Listvinasalurinn var ekki bara
vettvangur sýninga, þar voru líka
haldin lífleg kynningarkvöld þar
sem rætt var og rifist um mynd-
list, lesið úr óútkomnum verkum
ungra rithöfunda og flutt metnað-
arfull tónverk, auk kvikmynda-
kynninga, fyrirlestra um lista-
sögu og heimspekilegrar umræðu.
Þessi kynningarkvöld urðu svo
vinsæl að þau sprengdu utan af
sér rýmið og neyddust aðstand-
endur þeirra til að flytja þau í
stærra húsnæði, í Leikhúskjallar-
ann og Stjörnubíó. Er sú saga öll
að litlu skráð og liggja heimildir
víða ókannaðar.
Hluti af þessum slag var endur-
nýjun á ljósmyndalist í landinu og
sú endurnýjun varð að hluta til
hjá áhugamönnum. Í sýningunni í
Ásmundarsal er nú rifjað upp að
árið 1952 var haldin ljósmynda-
samkeppni áhugaljósmyndara.
Hluti þessara mynda hefur varð-
veist og gefa þær innsýn í
umhverfi Listvinasalarins, fólkið
í landinu og tímabilið almennt á
þessum fyrstu árum sjötta ára-
tugarins.
Í Klessulistarhreiðrinu má
finna verk margra af listamönn-
unum sem sýndu í Listvinasaln-
um og eru málverk á sýningunni
eftir Svavar Guðnason, Þorvald
Skúlason, Nínu Tryggvadóttur og
Karl Kvaran. Mörg þessara verka
koma úr safni Gunnars Sigurðs-
sonar, annars stofnenda Listvina-
salarins, og er þetta fágætt tæki-
færi til að skoða þau.
Sýningin kallast á skemmtileg-
an hátt á við yfirlitssýningu á
verkum Gerðar Helgadóttur í
Gerðarsafni en hún var ein af
þeirri kynslóð sem hingað kom
heim mótuð af menntun og nýjum
skilningi frá náms- og starfsárum
eftir stríðið á meginlandinu.
Sunnudaginn 13. apríl kl. 15
verða Gunnar Gunnarsson og
Steinunn Helgadóttir með sýn-
ingarstjóraspjall. Sýningin stend-
ur til 4. maí. Safnið er opið alla
daga nema mánudaga frá kl. 13 til
17 og aðgangur er ókeypis.
pbb@frettabladid.is
Klessulistin kallar
MYNDLIST Hörður Ágústsson listmálari var einn þeirra sem komu að starfi Listvina-
félagsins. Myndin er tekin við veggverk hans fyrir Landsbanka Íslands á Laugavegi
sem nú er eyðilagt. MYND/ANDRES KOLBEINSSON/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
Það er handagangur í
öskjunni í gamla Aust-
urbæjarbíói þessa dag-
ana. Nú er að ljúka leik-
sýningatímabili
framhaldsskólanna og
hafa nokkrir skólanna
búið um sig í Austur-
bæ. eins og húsið kall-
ast nú, en Sambíóin
tóku með sér hið forna
nafn hússins, Austur-
bæjarbíó, þegar fyrir-
tækið seldi húsið sem
nú er í eigu Nýsis.
Nemendafélögin sem
sýna í húsinu um þess-
ar mundir eru þrjú: Nemendamót
Verzlunar skóla Íslands er enn að
sýna uppsuðu úr gamalli amerískri
bíómynd, Kræ-beibí í leikstjórn
Bjarkar Jakobsdóttur og í tónlistar-
umsjón Jóns Ólafssonar. Verkið
gerist 1950 og segir frá Kræ-beibí
og hans vinum og Aðalbjörgu og
hennar hnakkaveröld. Kræ-beibí
hrífur aðalhnakkapíuna úr höndum
Baldvins, forsprakka hnakkanna og
verðandi millistjórnanda í banka.
Því er að sjálfsögðu ekki tekið þegj-
andi og hljóðalaust. Þrettánda sýn-
ing á verkinu verður á laugardag kl.
17.
Á öðrum stað í húsinu er Thalía,
leikfélag Menntaskólans við Sund,
að sýna Söngleikinn Stjörnustríð
þar sem áður var Silfurtunglið.
Hann er byggður á mynd George
Lucas og segir frá
bóndadrengnum Loga
Geimgengli sem kynn-
ist Jedi-riddaranum Óbi
Wan Kenóbí og saman
bjarga þeir, ásamt fleir-
um, hinni fögru Lilju
prinsessu frá hinum illa
drottnara Stjörnuveld-
isins, Svarthöfða. Leik-
stjórar eru Halldór
Gylfason og Orri Hug-
inn Ágústson, en tón-
listarstjóri er Albert
Hauksson. Næstu sýn-
ingar eru í kvöld og á
laugardagskvöld.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er
að setja upp í ellefta sinn og sýnir í
aðalsalnum Gauragang eftir Ólaf
Hauk Símonarson. Verkið fjallar
um Orm Óðinsson, 16 ára dreng í
Holtaskóla, upprennandi skáld, og
félaga hans, Ranúr. Leikstjóri er
Bryndís Ásmundsdóttir en tónlistar-
stjóri er Þórður Gunnar Þorvalds-
son. Sjötta sýning er á mánudags-
kvöld.
Nemendasýningarnar um allt
land eru á sinn hátt hápunktur í
félagslífi nemenda og kalla marga
til nýrra starfa, reyna á samstarfs-
hæfni, dug og krafta allra þeirra
sem að þeim koma. Þær taka til sín
stóran hóp áhorfenda sem annars
sækja leikhús lítið.
Miðasala á þessar sýningar fer
fram á vefnum midi.is. - pbb
Líf í Austurbæ
MYNDLIST Forsíða á sýningarskrá Nínu Tryggvadóttur frá sýningu hennar í Listvina-
salnum í nóvember 1952. MYND/LISTASAFN ASÍ. BIRT MEÐ GÓÐFÚSLEGU LEYFI EIGENDA.
ATH
Kl. 17 í dag er eins og alla virka
daga þátturinn Víðsjá á dagskrá
Rásar 1 eftir fimmfréttir. Dagskráin
er í frjálsu falli á föstudögum, engir
fastir liðir, og því við stórum
tíðindum að búast úr vitsmuna- og
tilfinningalífi þjóðarinnar. En allir
spyrja: hver á einkennislag
þáttarins?
> Ekki missa af...
Baðstofunni eftir Hugleik í
Þjóðleikhúsinu en sýningum
fer að fækka. Róttækasta
endurskoðun á goðsögninni
um þjóðina á myrkum öldum
síðan Hrafn Gunnlaugsson var
upp á sitt besta.
LEIKLIST Úr sýningu Versl-
unarskólans.
Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16.
Sími 575 7700 • gerduberg@reykjavik.is
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Kvæðamannafélagið Iðunn - fundur föstudag kl. 20
Steindór Andersen segir frá Ella á Naustum og kveður
vísur. Diddi fiðla fjallar um gömlu íslensku fiðluna.
Chris Foster og Bára Grímsdóttir sjá um tónlistarflutning.
Allir velkomnir!
Unglingabókin - meira en brjóst og bólur?
Barna- og unglingabókaráðstefna laugardaginn
5. apríl kl. 10.30-14.00.
Fyrirlesarar: Ármann Jakobsson, Anna Þorbjörg Ingólfs-
dóttir og Ragnheiður Gestsdóttir.
Dagskrárstjórnandi er Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Stefnumót við safnara III
Hljómfagurt stefnumót við
tónlistarmenn og hljóðfærasafnara!
Sýningarstjórn: Anik Todd og Una Stígsdóttir
Sjö landa sýn
María Loftsdóttir, alþýðulistakona, sýnir
vatnslitastemmningar frá ferðalögum sínum um
Argentínu, Bólivíu, Brasilíu, Ísland, Japan, Perú
og Skotland.
Hið breiða holt
Ljósmyndasýning þar sem unglingar
eiga stefnumót við afa sína eða ömmur!
Sýningarstjóri: Berglind Jóna Hlynsdóttir.
Styrktaraðili: Beco
Vissir þú...
...að í Gerðubergi er frábær aðstaða fyrir
ráðstefnur, námskeið, fundi og veislur?
Salir og fundarherbergi fyrir 8 - 120 manns.
Sjá nánari upplýsingar: www.gerduberg.is, s. 575 7700.