Fréttablaðið - 04.04.2008, Page 76
44 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
Í Englandi 16. aldar reynir Hinrik
áttundi konungur að eignast erf-
ingja í hásætið en drottningin er
ófær um það. Til sögunnar koma
Boleyn-systurnar, sem sendar eru
af valdagráðugri fjölskyldu sinni í
hirðina til að vinna ástir konungs-
ins og uppfylla ósk hans.
Kvikmyndin The Other Boleyn
Girl er byggð á sönnum atburðum
frá mikilvægu tímabili í sögu Eng-
lands, þegar landið sleit sig frá kaþ-
ólsku kirkjunni. Hún er gerð eftir
bók Philippu Gregory um Önnu
Boleyn, sem varð önnur eiginkona
Hinriks áttunda og jafnframt orsök
fyrrnefnds aðskilnaðar, en í mynd-
inni er skáldaleyfið nýtt til hins ýtr-
asta og getið að mestu leyti í eyð-
urnar. Handritshöfundur er Peter
Morgan, sem er hlaut Óskarstil-
nefningu fyrir að hafa skrifað The
Queen, en leikstjóri er Justin Chad-
wick og er þetta fyrsta stórmynd
hans.
Það fer ekki á milli mála að efnis-
tökin sem The Other Boleyn Girl
vinnur upp úr eru sterk og áhuga-
verð, en heildarútkoman reynist þó
aðeins í meðallagi. Myndin virðist
yfir höfuð flýta sér of mikið við að
fara yfir helstu atburði og í kjölfar-
ið skortir myndina tilhlýðilega
dýpt. Stundum sem koðnar hún
niður í sápuóperu, og þótt búningar
og sviðsmyndir séu nokkuð trú-
verðug er lítill stórmyndabragur
yfir myndinni.
Það sem stendur upp úr er sam-
keppni þeirra Boleyn-systra um
konunginn, en þær eru afar vel
leiknar af Natalie Portman og
Scarlett Johansson. Þá helst ber
Portman af sem Anna, sú þeirra
sem svífst einskis til að komast á
topp valdastigans, en hún á góða
spretti í endanum. Eric Bana fer
með hlutverk Hinriks áttunda með
ágætum og gerir hann mannlegri
en hann er jafnan túlkaður, þótt
þetta sé ekki hans besta frammi-
staða.
Dramatíkin svífur yfir vötnum í
The Other Boleyn Girl og þrátt
fyrir galla stendur hún að vissu
leyti fyrir sínu á þeim velli. Myndin
höfðar hvað helst til þeirra sem
hafa gaman af sögulegum mynd-
um, en nær yfir höfuð ekki neinum
raunverulegum hæðum.
Loftur Ingi Bjarnason - Topp5.is
16. aldar dramatík
KVIKMYNDIR
The Other Boleyn Girl
Leikstjóri: Justin Chadwick.
Aðalhlutverk: Natalie Portman,
Scarlett Johansson og Eric Bana.
★★★
Dramatísk söguleg mynd sem er vel
leikin en nær engum raunverulegum
hæðum.
Stjórn FTT er nú að vinna
í að ganga frá þátttakenda-
lista þeirra sem fara í hina
miklu pílagrímsför á bítla-
slóðir eftir um tvo mánuði.
Spennan er óbærileg á
sumum bæjum.
„Já, nú bíða bítlahjörtun titrandi
eftir niðurstöðunni,“ segir Svandís
Sigurðardóttir sjúkraþjálfari.
Hún, ásamt félögum sínum og
mörgum öðrum, bíður þess nú
spennt hvort hún komist í hina
miklu pílagrímsför til Liverpool á
vegum Félags tónskálda og texta-
höfunda. Eins og fram hefur komið
hefur FTT boðið félögum sínum
pílagrímsför á kostakjörum 30.
maí þar sem farið verður á bítla-
slóðir. Er hundrað miðum til að
dreifa, félagsmenn eiga forgang
en nýti þeir hann ekki eiga utan-
félagsmenn kost á miðum sem út
af standa. Og Sigrún og félagar,
alls sex að tölu, bíða þess nú milli
vonar og ótta að vita hvort þau
komist í ferðina. Öll eru þau for-
fallnir bítlageggjarar.
„Við erum fædd um miðja síð-
ustu öld og erum nokkuð brött
miðað við það. Við vorum því tán-
ingar þegar bítlarnir voru upp á
sitt besta og svo heilluð af þeim að
þeirra tónlist hefur dugað alla tíð
síðan í hvaða útfærslu sem er þótt
maður hlusti á eitt og eitt lag með
öðrum,“ segir Sigrún.
Hún segir svo frá að á þessum
tíma hafi þau verið í bæði hand-
bolta og fótbolta í Fram og mikill
samgangur. „Við vorum fjórar úr
handboltaliðinu sem samsömuð-
um okkur hverjum og einum. Hall-
dóra var Ringó, Fríða var Lennon,
Fanney var George og þá var Paul
eftir handa mér – sem mér þótti
ekki leitt! Þetta gekk svo langt að
mér fannst stundum viðkomandi
vinkona vera orðin að til dæmis
George. Svo man ég að við keypt-
um okkur allar saman fyrir allt
sem við áttum plötuna Hard Day’s
Night og svo skiptumst við á að
hafa hana.“
Sá sem er kallaður fimmti bítill-
inn í hópnum er Vilhjálmur Sigur-
geirsson sem var alltaf fyrstur til
að kaupa plöturnar þegar þær
komu. Hann les og veit allt um
fjórmenningana og óhætt að gefa
honum bítladót á öllum stór-
afmælum. jakob@frettabladid.is
Bítlastelpur milli vonar og ótta
„Nú er ég að verða Georg Bjarn-
freðarson. Útlitslega og hvað
varðar innræti. Verða sem and-
setinn,“ segir Jón Gnarr leik-
ari með meiru.
14. apríl hefjast tökur á
Dagvaktinni, framhaldi
Nætur vaktarinnar, og fara
þær fram í Bjarkar lundi. Jón
ítrekar það sem hann hefur
áður sagt. Útkoman verði
gargandi snilld og hann sé
þess fullviss að allt gáfað
og vel gert fólk muni hafa
reglulega gaman af.
Jón Gnarr, sem er
„method“ leikari af guðs náð –
lifir sig inn í hlutverkið – er nú
búinn að safna skeggi og skalla í
þrjá mánuði. Og er að hverfa
inn í hulinsheima. „Þetta eru
síðustu forvöð að tala við mig
sem Jón. Flest heilbrigt fólk
reynir að halda aftur af
sinni skuggahlið. Neit-
ar sér um margt sem
skuggahliðin hvetur
mann til að gera. En
þegar ég fer í
Georg leyfi ég
henni að blómstra.
Hvet hana áfram.
Þessu fylgja
vissulega tölu-
verð óþægindi fyrir mitt heimilis-
fólk. Því er ekki að neita,“ segir
Jón.
Jón dregur hvergi úr því
að rétt sé að skilgreina hann
sem „method“-leikara svip-
að og Robert De Niro og
fleiri fræga af þeim skóla.
Segist hafa starfað á
geðdeildum Landspít-
alans löngu áður en
hann byrjaði að leika.
Beinlínis í þeim til-
gangi að geta sett sig
inn í ýmsar persónur
sem hann hefur síðar
túlkað.
„Þetta eru síðustu for-
vöð að tala við mig sem Jón. Nú
eru æfingar að hefjast og þá hverf
ég inn í þennan hulinsheim. Þar
mun ég dvelja í tvo mánuði. Vakna
sem Georg Bjarnfreðarson. Og
sofna sem Georg á kvöldin. Eftir
hvern tökudag er textaæfing
fyrir næsta dag. Og svo held ég
áfram. Sit einn inni á hótel-
herbergi í Bjarkar lundi
og þyl upp setningar eins
og: Þú ert hálfviti, Ólaf-
ur.“ - jgb
Jón Gnarr turnast í Georg Bjarnfreðarson
JÓN Síðustu forvöð að tala
við hann sem þennan því
næstu tvo mánuði heitir hann
Georg.GEORG Þú ert hálfviti, Ólafur.
Söngkeppni framhaldsskólanna
fer fram í Íþróttahöllinni á
Akureyri laugardaginn 12. apríl
og verður sýnd í beinni á RÚV.
Þetta verður í 19. skipti sem
keppnin er haldin. Ýmsir frægir
söngvarar
hafa sigrað í
keppninni,
þar á meðal
Margrét Eir
Hjartardóttir
(fyrir
Flensborg
1991),
Emilíana
Torrini (fyrir
MK 1994) og
Sverrir
Bergmann (fyrir Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra 2000). Jafnvel
frægari söngvarar hafa tekið þátt
án þess að sigra, frægust eru Páll
Óskar (fyrir MH 1990) og Regína
Ósk (fyrir MH 1996). Lárus Ingi
Magnússon, körfuboltadómari og
sölumaður, sigraði Pál, en Þórey
Heiðdal Vilhjálmsdóttir, endur-
skoðandi, sigraði Regínu.
Í ár keppa fulltrúar þrjátíu og
tveggja framhaldsskóla. Sett
hefur verið upp netsíða keppninn-
ar (www.songkeppni.is) þar sem
fá má upplýsingar og myndir af
keppendum. Eyþór Ingi Gunn-
laugsson, fulltrúi Verkmennta-
skólans á Akureyri, varð hlut-
skarpastur í keppninni í fyrra.
Eyþór reynir nú við milljónirnar
þrjár í Bandinu hans Bubba og er
kominn í fjögurra manna úrslit.
Söngkeppni
um aðra helgi
EYÞÓR INGI
KOMAST ÞAU TIL LIVERPOOL? Frá vinstri: Kristján verkfræðingur, Vilhjálmur verkstjóri, Sigrún fulltrúi, Guðrún skólastjóri, Halldóra
(Ringó) verkefnastjóri, og Svandís (Paul) sjúkraþjálfari.
Veisla þrjú
kvöld í röð
Fjöldi hljómsveita kemur
fram í tónleikaveislu sem
verður haldin dagana 17. til
19. apríl á Nasa. Þeir flytjend-
ur sem stíga á svið þessi þrjú
kvöld verða Sprengjuhöllin,
Brain Police, Á móti sól,
Steedlord, Hafdís Huld, XXX
Rottweiler, Sign, Últra Mega
Teknóbandið Stefán og
President Bongo. Kynnir
verður Davíð Þór Jónsson.
Miðasala á tónleikana hefst
bráðlega og er bæði hægt að
kaupa miða á hvert og eitt
kvöld og á öll kvöldin í einum
pakka.