Fréttablaðið - 04.04.2008, Síða 88
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Geir kastaði sér í brúnan leður-sófa einkaþotunnar, klæddi
sig úr skónum og teygði úr sér.
„Ahh, svona á lífið að vera,“ dæsti
hann og trommaði á magann á sér.
„Já,“ samsinnti „Ingibjörg. „Ekki
sömu þrengslin og á Saga class, að
ég tali nú ekki um í almenningn-
um.“ Það kom eilítið hik á Ingi-
björgu þegar hún mundi að fjöl-
miðlafólk hafði náðarsamlegast
fengið að sitja í. Hún sneri sér að
blaðamanni. „Ekki svo að skilja að
ég hafi eitthvað á móti því að sitja
í almenningi,“ sagði hún með
móður legri festu. „Þar kynnist
maður einmitt „fólkinu“, en ég hef
miklar mætur á íslenskri alþýðu.“
Hún leit glottandi á Geir og dró
auga í pung svo lítið bar á.
Í þann mund kom Geir auga á
kæliskáp. „Nei, sko – minibar. Eins
gott að Villi Vill er ekki með okkur,
hann myndi taka hann úr sam-
bandi, ha!“ sagði hann og gaf Ingi-
björgu olnbogaskot. Geir opnaði
kælinn. „Viltu bjór?“ Ingibjörg
afþakkaði muldrandi að það væri
fullsnemmt fyrir sig. „Það hefur
nú ekki alltaf verið fullsnemmt
fyrir þig,“ sagði Geir. „Manstu
þegar ég, þú og Össur...“ „Ég held
að blaðamaður hafi ekki áhuga á
því,“ greip Ingibjörg fram í og
setti í brýrnar.
JÆJA, ég ætla að minnsta kosti að
fá mér einn – ég er í fríi, fjandinn
hafi það,“ sagði Geir. „Við erum
reyndar að fara á Nató-fund,“
sagði Ingibjörg. „Sama og frí,“
svaraði hann. „Hérna, Kristal plús
fyrir þig, það er að segja ef það er
ekki of sterkt fyrir þig,“ bætti
Geir við og gaggaði eins og kjúkl-
ingur, Ingibjörgu til háðungar.
INGIBJÖRG hló vandræðalega.
„Láttu ekki svona, Geir, blaða-
maðurinn fer hjá sér.“ Geir tók
gúlsopa af bjórnum og ropaði.
„Nú? Vilt þú bjór?“ sagði hann og
otaði einum köldum að blaða-
manni. „Svona, fáðu þér. Annars
læt ég Davíð hækka stýrivexti!
Ertu ekki með yfirdrátt? Haha,
nei, ég er bara að grilla í þér.“
GEIR kláraði bjórinn og ákvað að
leggja sig. „Solla, hnipptu í mig
áður en við lendum í Ungverja-
landi.“ „Rúmeníu,“ leiðrétti hún.
„Já, eða þar. Það er ekki að gömlu
lopapeysukommunum að spyrja,
þið þekkið Austur-Evrópu eins og
handarbakið á ykkur.“ „Ég man að
sellan mín átti einmitt vinasellu í
Rúmeníu „i den“,“ sagði Ingibjörg
og lygndi aftur augum. „Ah já, í þá
gömlu góðu... þegar maður hafði
hugsjónir.“ „Já, tók Geir undir, leit
á blaðamann og ranghvolfdi
augum. „Mjög vondar að vísu – en
samt.“
Til Búkarest
Í dag er föstudagurinn 4. apríl,
95. dagur ársins.
6.34 13.31 20.29
6.14 13.15 20.18
Ferðaskrifstofa
á mann miðað við 2 fullorð
na á Catalonia Albinoni, br
ottför 11. apríl.
Innifalið: Flug, fl ugvallaska
ttar og gisting með morgu
nverði í 3 nætur.