Fréttablaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 70
42 29. ágúst 2008 FÖSTUDAGUR
L.I.B.Topp5.is
Yfir 65.000 manns
Ásgeir j - DV
TSK - 24 stundir
ÁLFABAKKA SELFOSS
AKUREYRI
KEFLAVÍK
KRINGLUNNI
TROPIC THUNDER kl. 3:40 - 5:40 - 8 - 10:20 16
TROPIC THUNDER kl. 5:40 - 8 - 10:20 VIP
SVEITA BRÚÐKAUP kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 L
GET SMART kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 L
DARK KNIGHT kl. 5:40 - 8:30 - 10:20 12
STAR WARS kl. 3:40 - 5:50 L
THE MUMMY 3 kl. 8 12
WALL-E m/ísl. tali kl. 3:40D L
DARK KNIGHT kl. 6:20 - 8 - 10 12
STAR WARS kl. 3:40D - 5:50D L
GET SMART kl. 10:10 L
WALL-E m/ísl. tali kl. 4:10D L
WALL-E m/ensku tali kl. 5:50 - 8 L
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 3:40 L
SVEITA BRÚÐKAUP kl. 8 - 10:10 L
MAMMA MÍA Síð. sýn. kl. 5:50 L
WALL-E m/ísl. tal kl. 5:50 L
SKRAPP ÚT kl. 8 12
X-FILES 2 kl. 10:10 16
TROPIC THUNDER kl. 8 - 10:20 16
SVEITABRÚÐKAUP kl. 8 - 10 L
STAR WARS kl. 5:45 L
WALL-E m/ísl. tali kl. 5:45 L
SVEITA BRÚÐKAUP kl. 6 - 8 - 10 L
WALL-E. m/ísl. tali kl. 6 L
GET SMART kl. 8 - 10 L
- bara lúxus
Sími: 553 2075
TROPIC THUNDER kl. 5.40, 8 og 10.15 16
GET SMART kl. 5.40, 8 og 10.15 L
MAMMA MIA kl. 6 og 9 L
L.I.B Topp5.is/FBL
DV
2 VIKUR Á TOPPNUM Í USA
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
16
16
L
7
L
TROPIC THUNDER kl. 6 - 8 - 10.10
THE ROCKER kl. 10.10
MAMMA MIA kl. 6 - 8
16
7
L
TROPIC THUNDER kl. 5.30 - 8 - 10.30
TROPIC THUNDER LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
MAKE IT HAPPEN kl. 4 - 6 - 8 - 10.10
THE ROCKER kl. 5.40 - 8 - 10.20
MAMMA MIA kl. 5.30D - 8D - 10.30D
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
L
7
12
L
L
SVEITABRÚÐKAUP kl. 6 - 8 - 10
THE ROCKER kl. 5.30 - 8 - 10.30
SKRAPP ÚT kl. 6 - 8 - 10
MAMMA MIA kl. 5.30 - 8 - 10.30
MAMMA MIA SING A LONG SÝNING kl. 8
5%
5%
SÍMI 551 9000
L
16
16
L
MAKE IT HAPPEN kl. 5.40 - 8 - 10.20
X - FILES kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE STRANGERS kl. 6 - 8 - 10
MAMMA MIA kl. 5.30 - 8 - 10.30
SÍMI 530 1919
“DUCHOVNY OG
ANDERSON SÝNA
GAMLA TAKTA”
-Þ.Þ., DV
FRÁ BEN STILLER KEMUR EIN KLIKKAÐASTA
GRÍNMYND ÁRSINS!
-L.I.B.TOPP5.IS/FBL -DV
KUNG FU PANDA ísl. tali
kl. 3:40 í Kringlunni
MAMMA MIA
kl. 5:50 á Selfossi
WALL-E með íslensku tali
kl. 3.40 í Álfabakka
kl. 4.10 í Kringlunni
kl. 6 Akureyri, kl. 5:45 í Keflavík og kl. 5:50 á Selfossi
Föstudag
SparBíó 550kr
TROPIC THUNDER
kl. 3.40 í Álfabakka
STAR WARS
kl. 3:40 í Álfabakka
kl. 3.40 í Kringlunni
kl. 5:45 í kefl
Í stað þess að styðjast við fullmót-
að og frágengið handrit grípa nú
sífellt fleiri íslenskir kvikmynda-
gerðarmenn til þeirrar aðferðar
að vinna handrit í hópefli með
leikurunum, í samvinnu við leik-
stjóra móta þeir persónur, aðstæð-
ur og framvindu sögunnar. Fyrir
kvikmyndagerðarmenn hefur
þetta þann ókost að erfiðara er að
sækja um styrki vegna ágalla í
lögum, sem gera ekki ráð fyrir
slíkum efnistökum.
Fyrir áhorfendur hefur ávinn-
ingurinn aftur á móti verið nokk-
ur, hvort sem um er að ræða
drama eða gaman, eins og tvíleik-
ur Vesturports og Ragnars Braga-
sonar, Börn og Foreldrar, og sjón-
varpsþættirnir Næturvaktin bera
glöggt vitni um.
Á þessi mið rær Sveitabrúð-
kaup, fyrsta leikstjórnarverkefni
Valdísar Óskarsdóttur, sem er að
góðu kunn fyrir kvikmyndaklipp-
ingu. Valdís sá leikhópnum fyrir
hugmynd um persónur, söguþráð
og umgjörð, leikararnir sáu um
þróun persónanna, sem allar luma
á leyndarmáli sem ekki mátti
ljóstra upp fyrr en í tökum.
Myndin segir frá Ingu og Barða,
sem ætla að ganga í það heilaga í
gamalli sveitakirkju, að viðstödd-
um nánustu ættingjum. Tvær
rútur leggja því í hann, hvor með
sína fjölskylduna innanborðs, þar
á meðal brúði á barmi taugaáfalls,
brúðguma með innilokunarkennd,
blautan pabba, móður í afneitun,
fráskilda foreldra brúðgumans og
ófáa misvelkomna gallagripi til
viðbótar ásamt nokkrum fortíðar-
draugum. Semsagt tvær fimmtán
tonna púðurtunnur í talstöðvar-
sambandi á leiðinni út á land – illu
heilli veit enginn nákvæmlega
hvert.
Sveitabrúðkaupi má lýsa sem
„fílgúdd“ vegafarsa, þar sem
leyndarmálin spinna af sér mis-
skilning sem magnast smám
saman upp í allsherjar katastróf-
íu. Hugmyndin er prýðisgóð og
úrvinnslan fyndin. Þótt sögusvið-
ið sé einsleitt og að mestu bundið
við rúturnar tvær leiðist áhorf-
anda aldrei; rennslið er öruggt og
stígandin þétt. Persónugalleríið
er hversdagslega litskrúðugt,
breyskar manneskjur og bognar.
Samspil milli karaktera er vel
heppnað, þökk sé sannfærandi og
góðum leikhóp, sem sýnir hvað er
hægt að gera mikið úr litlu með
því að nostra við smáatriðin. Það
er augljóst að hópurinn hefur
skemmt sér vel við tökur.
Myndatakan er að hætti dogma-
stílsins, sem raunveruleikasjón-
varpið tók síðan upp, sem skapar
tilfinningu eins og maður sé að
fylgjast með atburðarásinni í
gegnum myndbandsupptökuvél
einhvers veislugestsins; stundum
er eins og maður sé að horfa á
eitthvað sem öðrum var ekki
ætlað að sjá. Þá setur polkaskotin
tónlist hljómsveitarinnar Tiger
Lillies skemmtilegan blæ á mynd-
ina.
Efniviðurinn býður óneitanlega
upp á ærsl og læti, en Valdís held-
ur sér réttum megin við strikið
nánast út alla myndina – þó í blá-
lokin sleppi farsinn af sér beislinu
í reyndar bráðfyndnu atriði. Það
er helst persóna prestsins, sem
Ingvar E. Sigurðsson leikur, sem
stígur, að minnsta kosti með annan
fótinn, út fyrir mörk hins trúan-
lega; Herdís Þorvaldsdóttir er
vissulega dásamleg sem hvefsin
stútungskerling – en hvað ætli
þessi persóna hafi komið oft fyrir
í íslenskum kvikmyndum, þótt
hún þjáist nú af elliglöpum?
En allt um það. Sveitabrúðkaup
er snotur mynd og skemmtileg,
tekur sig ekki hátíðlega og er auð-
velt að njóta.
Bergsteinn Sigurðsson
Brúðkaupsbíllinn
KVIKMYNDIR
Sveitabrúðkaup
Leikstjóri: Valdís Óskarsdóttur
Aðalhlutverk: Nanna Kristín Magn-
úsdóttir, Björn Hlynur Haraldsson,
Kristbjörg Kjeld, Theódór Júlíusson
og fleiri.
★★★
Skemmtileg persónusköpun, smitandi
leikgleði og fyndin framvinda. Snotur
mynd og hlý sem auðvelt er að njóta.
Samkvæmt tímaritinu OK Magaz-
ine ætlar kvennabósinn Hugh
Hefner að ganga í það heilaga. Sú
heppna er engin önnur en „fyrsta“
kærasta Hefners, Holly Madison.
Tímaritið hefur þessar heimildir
sínar frá manni sem sagðist hafa
heyrt „aðra“ kærustu Hefners,
Bridget Marquardt, tala um að í
lok fimmtu seríu þáttanna The
Girls Next Door, verði haldið stórt
brúðkaup og að hún og „þriðja“
kærastan, Kendra Wilkinson,
muni flytja út úr setrinu að þátta-
röðinni lokinni.
Hefner, sem er 82 ára gamall, er
þó enn kvæntur seinni eiginkonu
sinni, fyrrum playboykanínunni
Kimberley Conrad. Hefner og
Kimberley giftust árið 1989 og
skildu að borði og sæng tíu árum
seinna, en eru samkvæmt lögum
enn hjón. Það þykir því ekki lík-
legt að Hefner gamli sé að fara að
ganga í hnapphelduna.
Hugh Hefner
í hnapphelduna?
EINNAR KONU MAÐUR Samkvæmt tíma-
ritinu OK ætla Hugh og kærasta hans að
ganga í það heilaga.
Nýlega sást til Kelly Osbourne
þar sem hún gekk um götur
Lúndúnarborgar og skartaði
myndarlegu
glóðarauga og
með plástur á
enni. Í fyrstu
vildi Kelly
ekkert segja
um meiðsli sín
en að lokum
tjáði talsmaður
hennar
fjölmiðlum að
Kelly hefði
verið svo
óheppin að fá
heila eldhús-
hillu ofan á sig
þegar hún teygði sig eftir glasi.
Kelly er að sögn hress þrátt fyrir
þetta óhapp..
Fékk hillu
ofan á sig
ÓHEPPIN Kelly
meiddist á andliti
þegar eldhúshilla
féll ofan á hana.