Fréttablaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 45
verður hann oft fyrir valinu þegar ég vel undirstöðuna í fataskápinn. Ég er samt sem áður óhrædd við að blanda sterkum litum saman við og þá dregst ég oft að fushia bleikum og rauðum.“ Uppáhaldshönnuður? „Miucchia Prada.“ Hvar kaupir þú fötin þín? „Hjá Sæv- ari Karli.“ Ef þú værir á leið í verslunarferð, hvert myndir þú fara? „Til Mílanó.“ Hvernig er heimadressið þitt? „Stella McCartney íþróttagalli sem ég held að sé hugsaður fyrir hlaup- ara, hann nýtist mér þó aðallega uppi í sófa fyrir framan sjónvarp- ið.“ Bestu kaupin? „Miu Miu armband sem ég keypti í London fyrir tveim árum. Vekur alltaf athygli þó að klæðnaðurinn sé einfaldur.“ Verstu kaupin? „Útvíðar gallabuxur með skuggalega háu mitti. Þær eru eitt heitasta sniðið á buxum í dag en einhverra hluta vegna þá hef ég klætt mig í þær nokkrum sinnum en enda alltaf á því að finna eitthvað annað sem virkar miklu betur.“ Eru einhver tískuslys í fataskápn- um þínum? „Ætli þar sé ekki víg- völlur ýmissa átaka en ég vil meina að þetta séu bara nauðsynlegar til- raunir til að finna sinn stíl.“ Tískufyrirmyndir? „Mæja frænka. Hún blandar saman eigin stíl við stór nöfn í tískuheiminum og það finnst mér einkenna karakter.“ Hver eru helstu tískumistök sem konur gera? „Það er að klæðast vitlausum sniðum. Konur verða að velja sér snið sem henta þeirra vaxtarlagi. Það geta allir klætt sig vel ef þeir fá réttar ráðleggingar. Konur eiga oft erfitt með að finna buxur á sig og þá er mikilvægt að vita hvaða snið hentar manni í stað þess að elta tískubólur.“ martamaria@365.is Vintage kjóll sem er í miklu uppáhaldi. „Þetta eru flottustu skór í heimi, þeir fara vel á fæti og eru bæði rokkaðir og kvenlegir,“ segir Lára Ósk um GUCCI skóna sína. Guðrún Ásmundsdóttir leikkona 72 ára „Mín ráðlegging er að fara nú að nota hausinn og spurja sig hvað við getum gert því það eru svo margir möguleik- ar í dag. Það liggur stundum við að mér finnist kreppan vera send til okkar til að við vöknum upp, förum aðeins að hugsa og vinna svolítið meira. Ég hef nú þann aldur að ég hef farið í gegnum nokkr- ar kreppur og man eftir því að í einni kreppunni, þegar allt var svart, þá settust konur við saumavélina og fóru að framleiða borðtuskur. Ég er ekki að segja að konur eigi endilega að gera það í dag, en fólk er orðið svo þreytt á þessum fjöldafram- leiddu vörum. Fólk vill frekar eitthvað sérstakt svo það er um að gera að stilla því bara í hóf frekar en að fara að kaupa eitthvert drasl. Ég þoli ekki þetta væl í fólki. Hingað til hafa Íslendingar ekki sett það fyrir sig að vinna og ég held að við höfum bara gott af þessu. Ef við höfum ekki vinnu er um að gera að búa hana til og þá fara ævintýri að gerast,“ segir Guðrún. Ragnar Arnalds rithöfundur 70 ára „Ég held að það sé höfuðatriði að taka ekki bankalán nema í ýtrustu neyð og sjá til þess að vera aldrei með yfir- dráttarlán. Þá þurfa menn auðvitað að gæta þess að fara ekki yfir á reikningnum því það eru svo gífurlega háir vext- ir á yfirdráttarlánunum. Í öðru lagi á fólk alls ekki að taka bankalán til að kaupa hlutabréf eða þess háttar. Fólk getur ekki treyst því að kreppan hafi náð botni. Hlutirnir geta enn átt eftir að falla mikið, við vitum ekkert um það. Svo er um að gera að skipta við lágvöruverðsverslanir og ef fólk þarf á bíl að halda, skiptir líka máli að vera ekki að kaupa dýra bíla. Það eru ekki bara vextirnir af skuldum vegna bílalána sem skipta máli, heldur líka af- skriftirnar. Bílar eru afskrifaðir svo hratt. Það skiptir auðvitað máli hvort fólk á mikið afgangs eða ekki, en þegar fólk er í fjárhagsvandræðum er mjög þýðingarmikið að lista upp í hvað maður eyðir í hverjum mánuði og reyna að skipuleggja fjármál sín,“ segir Ragnar. Neyðin kennir naktri konu að spinna Fáðu ferskar íþróttafréttir á hverjum morgni Fréttablaðið stendur vaktina á hverju kvöldi – líka á laugardögum. Þannig færum við þér nýjustu úrslitin og staðgóða umfjöllun á morgunverðarborðið hvern einasta morgun.* *Sunnudagsútgáfa Morgunblaðsins er prentuð á laugardegi áður en íþróttaúrslit dagsins liggja fyrir og 24 stundir koma hvorki út á sunnudögum né mánudögum. Auk þess fara 24 stundir í prentun aðra daga áður en íþróttaleikjum kvöldsins er lokið. Fréttablaðið er eina dagblaðið sem færir þér ferskar íþróttafréttir alla morgna vikunnar, líka á sunnudögum. Allt sem þú þarft – alla daga F í t o n / S Í A 29. ÁGÚST 2008 FÖSTUDAGUR • 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.