Fréttablaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 28
Soffía Sveinsdóttir, IB stallari við
Menntaskólann við Hamrahlíð og
veðurfréttakona á Stöð 2, er mikill
matgæðingur. Hún leggur áherslu
á hollustu og eldar reglulega góm-
sætan kjúklingarétt með rófum,
kartöflum og gulrótum. „Ég reyni
að hafa matinn sem ég elda ein-
faldan, hollan og góðan og þessi
réttur sameinar þetta þrennt.
Soffía stundar mikla heilsurækt
og leggur áherslu á að borða hollan
mat sem inniheldur rétta samsetn-
ingu af orkugjöfum og næringar-
efnum, en hún er efnafræðingur að
mennt og hefur mikinn áhuga á
næringarfræði. „Þegar ég elda vil
ég blanda saman gæðapróteini og
trefjaríkum kolvetnagjöfum og ég
reyni að hafa sem minnst af sterkju
og einföldum kolvetnum,“ útskýrir
hún. klara@frettabladid.is
Einfaldur, hollur og góður
Nýuppteknar karöflur, rófur og gulrætur eru einstaklega gómsætar og hægt er að nota þær í margvíslega
rétti en nú er akkúrat rétti árstíminn til þess að prófa sig áfram með rótargrænmeti.
Soffía Sveinsdóttir hefur mikinn áhuga á
næringarfræði og eldar oft rétt úr rófum,
kartöflum og gulrótum. FRETTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
KÍVÍ ER HITAEININGASNAUTT og inniheldur tvö-
falt meira af C-vítamíni en appelsína. Í kívíi er einnig mikið
af A-vítamíni sem er meðal annars gott fyrir sjónina.
150-200 g kartöflur
150-200 g gulrætur
150-200 g rófur
6-8 kjúklingavængir
1-2 matskeiðar Moroccan krydd frá
Nomu
1-2 teskeiðar ólífuolía
Grænmetið er brytjað niður og skinn-
ið tekið af kjúklingnum. Þetta er allt
sett saman í poka ásamt kryddinu og
olíunni blandað saman við. Öllu hellt
í eldfast mót og sett inn í ofn. Eldað í
um 45 mínútur á 200 gráðu hita.
Köld sósa
2-3 dl létt AB mjólk, síuð í kaffifilter
(þá þykknar mjólkin og verður sætari)
1 teskeið Creole krydd frá Pottagöldr-
um
1/2-1 teskeið hunang
salt
Gott að láta sósuna standa í hálftíma
áður en hún er notuð.
KJÚKLINGARÉTTUR
með rótargrænmeti FYRIR 2
Soffía
tekur alltaf
skinnið af kjúkl-
ingnum til að
minnka fituna.
F
A
B
R
I
K
A
N
Múffur að hætti Jóa Fel
Skógarberjamúffur
EL
B
A
BAÐINNRÉTTINGARNAR
Heilsteyptu vaskborðin eru vinsæl!30% afsláttur
af ELBA og Snaigé raftækjum
þegar þau eru keypt með
innréttingu
FATASKÁPAR MEÐ
HEFÐBUNDNUM HURÐUM
Innréttingatilboð sem þú
mátt ekki missa af!
ALLT AÐ
20-25% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM NETTOLINE INNRÉTTINGUM
VIÐ BJÓÐUM ENN BETUR OG VEITUM 5% AUKA AFSLÁTT SÉ GREITT Í EINU LAGI VIÐ PÖNTUN
Val um 30 hurðagerðir:
Komdu með málin
Allt á sama stað:
MARKMIÐ OKKAR ER
AÐ VEITA ÚRVALSÞJÓNUSTU
OPIÐ