Fréttablaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 48
díana mist
bland
í gær og á morgun ...
FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST:
ÞARF AÐ LÁTA LOKA SÍMANUM...
Það besta við það að vera í sumar-
fríi er að geta drukkið ótæpilega og
þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að
mæta alltaf timbraður í vinnuna. Í gær-
kvöldi ákvað ég að prófa að blanda
saman nokkrum tegundum í von um
að ég gæti búið til einhvern ódauð-
legan drykk sem yrði heimsfrægur á
mettíma líkt og Fajito. Þetta endaði
ekki betur en það að sjálf var ég orðin
hauslaus yfir sportinu þegar mér datt
í hug að senda eldgömlum kærasta
sms eftir að hafa rekist á hann á face-
book nokkrum klukkutímum áður. Ætli
það hafi ekki verið „single“ statusinn á
honum sem kveikti í mér. Á meðan ég
var blindfull heima hjá mér voru vin-
konur mínar á Boston að tjútta með
Andreu Gylfa söngkonu og Birni Jör-
undi.
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST:
LÍÐUR EINS OG LALLA LÚSER...
Þótt það sé stundum svolítið gott að
skvetta í sig í sínum heimahögum var
upplitið á mér ekkert sérlega glæsi-
legt þegar ég vaknaði upp við sím-
hringingu frá brjálaðri kærustu eld-
gamla kærastans. Hún lét mig alger-
lega heyra að maður ætti að láta eigur
annarra í friði og sagðist myndu vilja
hitta mig í skuggasundi ef ég héldi
uppteknum hætti. Ég reyndi að malda
í móinn með því að segja að gæinn
hefði verið skráður einhleypur á Face-
book en hún hlustaði ekki á það heldur
gargaði á mig.
LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST:
LENGI LIFI HAVANA CLUB
Menningarnótt var svolítið eins og
gamall Benz, lengi í gang en þegar leið
á kvöldið fór allt í blúss-
andi gang. Rakst
á Hönnu Birnu
borgarstjóra hjá
Pétri Gauti lista-
manni. Hún var
þar í góðum fíl-
ing ásamt Ósk-
ari Bergssyni og
mökum þeirra.
Á leið minni frá
Njálsgötu
niður í
bæ rakst ég á Stefán Jónsson leik-
stjóra og DJ Margeir. Þegar líða tók á
kvöldið tékkaði ég á stemningunni á
Prikinu. Þar var Erpur og allt Rottweil-
erliðið, Yvan Rodic Facehunter í fylgd
með Elísabetu Ölmu Reykjavik Looks
píu. Erpur og félagar voru hressir,
drukku Rottweil-
er-drykkinn sem
inniheldur Hav-
ana Club, grænt
epla Mickey Finns
og fyllt upp með
engiferöli. Þrátt
fyrir góða lyst á
áfengi sagði ég
nei takk þegar
mér var boðið
þetta og tók nokkur Havana Club
staup í staðinn! Þegar leiðin lá á b5 var
ég orðin megahress. Þar var ekki þver-
fótað fyrir maraþonhlaupnum Glitnis-
starfsmönnum. Þar var líka Guðjón
Már, Helgi Björns, Jón Ólafsson Vatns-
son, Hulda Pjetursdóttir verðbréfamiðl-
ari í Kaupþingi og Þorsteinn Joð sýndi
góða takta. Lét samt vera að reyna
við hann þar sem ég er í tímabundnu
karlabindindi eftir sms-rugl vikunnar.
Silja sæta Magg var líka á b5 ásamt
kærastanum Sigurði Pálma og svo sá
ég glitta í Aðalbjörgu Ósk Gunnars-
dóttur Ungfrú Reykjavík (fyrir þá sem
ennþá þekkja fegurðardrottningar).
Felix Bergsson
leikari
Gamall draumur rættist þegar ég við fengum
snúrustaurana við húsið okkar í sumar. Það eiga
bara að vera snúrustaurar við svona hús eins og
við búum í, en það var byggt árið 1925.
Dóttir mín var
miður sín þegar
við breyttum
stofunni, því
henni fannst
hún svo kósí.
Við bjuggum
því til stofu á
öðrum stað með
gula kósísóf-
anum okkar og
þar eyði ég um
tuttugu prósent
af mínum degi
í vinnu við skrif
og undirbúning
verkefna.
Ég er brjál-
aður KR-ingur
og held með
mínum mönn-
um. Ég held að
margir haldi á
móti KR frek-
ar en með
sínum liðum,
svo ég mæti
stoltur hverj-
um þeim sem
er á móti liðinu
í KR peysunni
minni.
Ég vinn mjög mikið á tölv-
una, bæði við að skrifa
barnaefni og annað. Ég berst
á móti því að skipta oft um
tölvur og reyni frekar að vinna
með þá vél sem ég hef.
Við erum hinsegin fjölskylda og erum
stolt af því. Við Baldur keyptum fánann
fyrir tíu árum í Bandaríkjunum og hann
hefur lent í ýmsum ævintýrum. Hann
hefur meðal annars farið í nokkrar
Gay-pride göngur, verið rænt og sem
betur fer var hann endurheimtur.
Hjólið er samgöngutæki 21. ald-
arinnar og ég legg til að fólk sýni
gott fordæmi og noti hjálm. Það
er hægt að hjóla tíu mánuði á ári
og það er æðislegt.
I-podinn er ekki bara skemmtitæki
heldur líka atvinnutæki í augnablik-
inu. Ég nota hann mikið í vinnunni með
Gunna Helga og þar sem ég er að vinna
á Rás 2 hlusta ég mikið á tónlist.
Kaffivélina fékk ég í fertugsafmælis-
gjöf frá foreldrum mínum og systkinum.
Þetta er algjör mega maskína og maður
skrönglast að henni á morgnana til að
byrja daginn. Hún er svona álíka og
öndunarvél fyrir mann í andnauð.
Ég er búinn að
reka leikhóp-
inn Á Sen-
unni um ára-
bil og við eigum
tíu ára starfsaf-
mæli þriðja jan-
úar næstkom-
andi. Ég er gríð-
arlega stoltur af
þeim árangri sem
við höfum náð
og þeim viður-
kenningum sem
við höfum hlot-
ið frá starfsfélög-
um okkar á Grím-
unni.
Það er búið að vera mjög gott sumar í
rifsberjunum. Mér finnst best að sulta
berin heima og nú er til ógrynni af sultu
á heimilinu, bæði rifs - og sólberja.
TOPP
10
FÖSTUDAGUR
Ef þú ert ekki nú þegar búin að fara á Jazz-
hátíð Reykjavíkur er um að gera að drífa
sig í Fríkirkjuna í kvöld klukkan átta. Þar
mun belgísk-íslenska bandið Mógil spila
með Heiðu Árnadóttur í fararbroddi
auk þýska gestaleikarans Theo
Belckmann. Ekki missa af notalegri
kvöldstund í Fríkirkjunni.
LAUGARDAGUR
Árlegur útimarkaður í Álafosskvosinni verður haldinn á
morgun milli klukkan 12 og 16. Hægt verður að kaupa
allt frá lífrænt ræktuðum kryddjurtum, sultum og brauði
yfir í kompudót, fatnað og skartgripi. Auk þess
mun Elísabet Brekkan, útvarpskona hjá RÚV, stýra
prinsessukjólauppboði svo ef þú vilt finna prins-
essuna í þér skaltu ekki láta
þetta tækifæri framhjá þér fara!
fiú fær› tvennt í einu í sömu vöru
„Ég hef teki› Angelicu
jurtaveig í fjögur ár.
Mér finnst Angelica gefa
mér orku sem ég flarf á a›
halda bæ›i í vinnu og
langhlaupum. Auk fless er
hún kví›astillandi og ég fæ
sjaldnar kvef.“
www.sagamedica.isFæst í lyfja- og heilsuvöruverslunum
Aukin orka og sjaldnar kvef
Br
yn
dí
s
M
ag
nú
sd
ót
tir
, R
ey
kj
av
ík
Sæktu styrk í íslenskt náttúruafl!
Me› Angelicu fær› flú tvenns
konar virkni í sömu vöru.
Rannsóknir sty›ja gó›a reynslu af
notkun ætihvannar í 1100 ár.
10 • FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008