Fréttablaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 20
20 29. ágúst 2008 FÖSTUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 156 4.233 -0,24% Velta: 854 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 6,68 -0,15% ... Atorka 5,04 +0,00% ... Bakkavör 26,45 -1,31% ... Eimskipafélagið 14,20 -1,73% ... Exista 7,80 +1,43% ... Glitnir 15,35 +0,33% ... Icelandair Group 20,10 +1,26% ... Kaupþing 710,00 -0,42% ... Landsbankinn 24,00 +0,00% ... Marel 85,80 -0,46% ... SPRON 3,50 -2,78% ... Straumur- Burðarás 9,27 -1,07% ... Össur 90,80 +0,00% MESTA HÆKKUN FØROYA BANKI +4,61% EXISTA +1,43% ICELANDAIR +1,26% MESTA LÆKKUN SPRON -2,78% EIMSKIPAF. -1,73% BAKKAVÖR -1,31% „Reksturinn er í gangi og verður það áfram,“ segir Arnþór Jón Egilsson, sem hefur haft rekstur veitingastaðarins og blómastöðv- arinnar Eden í Hveragerði með höndum. Eden ehf., sem áður sá um rekst- urinn, hefur verið tekið til gjald- þrotaskipta. Sparisjóður Suður- lands leysti fasteignir félagsins til sín á nauðungaruppboði í sumar. Ólafur Elíasson sparisjóðsstjóri segir að eignin sé í leigu hjá nýjum aðilum en sparisjóðurinn hafi fengið tilboð um að selja eignina. „Þetta er menningarstofnun,“ segir hann, „og við höfum heyrt í bæjaryfirvöldum um að varðveita ímynd þessarar starfsemi.“ Arnþór Jón segir að vel hafi gengið í sumar og hann sé bjart- sýnn á framhaldið. - ikh Eden enn í rekstri Niðurgreiðslur á olíu dýrar Samkvæmt skýrslu sem Sameinuðu þjóðirnar birtu á þriðjudag eyða þjóðir heimsins 300 milljörðum dollara á ári í að niðurgreiða verð á olíu, kolum og jarðgasi. Mörg fátækari lönd Asíu og Afríku eyða meiru í að niðurgreiða orkuverð en þau leggja til heilbrigð- ismála eða menntunar. Mestar eru niðurgreiðslurnar í Rússlandi, 40 milljarðar á ári, en fast á hæla Rússa koma Íranir, Kínverjar og Sádi-Arabar. Duldar niðurgreiðslur eru þó enn meiri, en í fyrra áætlaði Cato-stofn- unin að óbeinn kostnaður banda- rískra skattgreiðenda af ýmsum nið- urgreiðslum til olíufyrirtækja hefðu verið á bilinu 78 til 158 milljarða dollarar á ári. Er þá talið með hern- aðarstuðningur við olíuframleiðend- ur í Mið-Austurlöndum og Afríku. Gróðurhúsaáhrif og niðurgreiðslur Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna er staðhæft að niðurgreiðslurnar, sem eru réttlættar sem stuðningur við fátæka neytendur, gagnist yfirleitt hinum efnameiri sem nota meira af orku og hafa efni á að kaupa bíla. Það sem verra er, þær ýti undir olíunotkun, tefji þróun umhverfisvænni orkugjafa og séu alvarlegur dragbítur á hagvöxt. Sameinuðu þjóðirnar telja að niðurgreiðslur á olíu, gas- og kolanotkun kosti um 0,7 prósent af landsframleiðslu heimsins. Til samanburðar má nefna að Sameinuðu þjóðirnar telja að það myndi kosta 1 prósent af landsframleiðslu heimsins að ná yfirlýstum markmiðum um samdrátt í útblæstri gróðurhúsa- lofttegundna fyrir árið 2050. Peningaskápurinn … „Verðbólgan ein og sér eykur skuldirnar þótt ekki væri annað. Svo hefur gengið lækkað líka,“ segir Ásgeir Jónsson, forstöðu- maður Greiningardeildar Kaupþings. Samkvæmt tölum Seðla- bankans jukust heildar- skuldir íslenskra heimila við bankana um fjórtán milljarða króna í síðasta mánuði. Heildarskuldin nemur nú 963 milljörðum króna. Stór hluti skuld- anna er gengisbundinn, tæpur fjórðungur. Hlutfall þeirra af heild- arskuldum hefur farið hækkandi frá áramótum. Það skýrist af gengisfalli krónunnar, segir Grein- ingardeildin. Heildarskuldir fyrir- tækja lækkuðu um ellefu milljarða í júlí. Þær hafa hins vegar aukist um ríflega þriðj- ung á árinu. - ikh ÁSGEIR JÓNSSON Verðbólga og gengi hækka skuldirnar Talsverð uppstokkun varð á stjórn bresku herrafataverslunarinnar Moss Bros í kjölfar þess að Row- land Gee, afkomandi stofnenda verslunarinnar, seldi meirihluta- eign sína í vikunni. Tveir stjórn- endur hverfa á braut í hræringun- um og koma aðrir í þeirra stað. Á sama tíma skipti Moss Bros um viðskiptabanka, fór ásamt David Stoddart frá Teather & Greenwood, sem er í eigu Lands- bankans, til Altium Capital, að sögn Financial Times. Baugur, sem á um 29 prósenta hlut í Moss Bros, lagði fram tilboð í verslunina upp á 42 pens á hlut, jafnvirði um fimm milljarða króna á þávirði í enda febrúar. Afkomendur stofnenda verslun- arinnar, Moss- og Gee-fjölskyld- urnar, voru andvígar tilboðinu frá upphafi. Töldu þær tilboðið alltof lágt og endurspegla ekki það verð- mæti sem leyndist í félaginu. Um tíma leituðu þeir að meðfjárfesti til að bjóða með þeim í meirihluta Baugs í versluninni. Eignarhalds- félag Lauru Ashley jók verulega við hlut sinn í versluninni á sama tíma. Andstaðan gegn tilboðinu og hræringar í hluthafahópnum urðu til þess að ekkert varð úr form- legu ferli. Gengi hlutabréfa í versluninni tók dýfu í kjölfarið. Það stóð í 27,75 pensum á hlut í gær, sem er rúmlega 30 prósent- um lægra en þegar Baugur lét til skarar skríða. - jab Moss Bros breytir til Danska fyrirtækið A.P. Möller- Mærsk, eitt stærsta skipaflutn- ingafyrirtæki í heimi, hagnaðist um 11,6 milljarða danskra króna, jafnvirði 190 milljarða íslenskra, á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er 58 prósenta aukning frá í fyrra. Mestu munar um verðhækkanir á olíu síðastliðið árið en eitt félaga A.P. Möller-Mærsk stundar olíuleit í norðanverðri Afríku, í Kasakstan og Túrkmenistan auk þess sem það á rétt á olíuleit í Norðursjó. Fyrir- tækið hefur aukið olíuvinnslu upp á síðkastið. Tekjur skipaflutningafélagsins námu rúmum 153 milljörðum danskra króna á tímabilinu sem er sjö milljörðum meira en í fyrra. Fyrirtækið segir horfurnar góðar það sem eftir lifir árs og þær muni nema 65 milljörðum danskra króna. Það er fimm milljörðum meira en fyrri spár hljóðuðu upp á. Skipa- flutningarisinn situr á digrum sjóð- um og hefur gert tilboð í sænska skipaflutningafyrirtækið Brost- rom upp á 2,8 milljarða danskra króna. Stefnt er á að greiða fyrir með lausafé. - jab SKIP FULLT AF FARMI Skipaflutningaris- inn A.P. Möller-Mærsk sér fram á gott ár í flutningum og olíuvinnslu. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Danir telja árið gott MARKAÐSPUNKTAR Hrávöruverð á heimsmarkaði var í byrjun þessarar viku hið lægsta frá áramótum, að því er fram kemur í Hagvísum Seðla- bankans. Fyrstu fjórar vikur ágúst var olíuverð 15 prósent lægra að meðaltali en í júlí. Álverð var um 8 prósent lægra á sama tíma. Endurskoðaðar hagvaxtartölur frá við- skiptaráðuneyti Bandaríkjanna sýna nú 3,3 prósenta hagvöxt á öðrum ársfjórð- ungi, í stað 1,9 prósenta áður. Breytingin skýrist af meiri útflutningi en fyrstu tölur gáfu til kynna, auk meiri ríkisútgjalda. Landsvaki hagnaðist um 70,5 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins samkvæmt uppgjöri sem birt var í gær. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaðurinn 50,7 milljónum króna. Aukningin nemur 39 prósentum. Eiginfjárhlutfall félagsins er 60,54 prósent. Ístak ætlar að segja upp 300 starfsmönnum frá þess- um mánaðamótum og fram í nóvember. Starfsfólki hef- ur ekki verið tilkynnt um uppsagnirnar. Óvíst hverjir fara og hvort þeir fara allir, segir framkvæmdastjóri. Þá verða á næstu þremur mánuðum fækkað um 40 stöðugildi meðal blaðbera Fréttablaðsins. „Við erum með um þúsund starfs- menn. Stórum verkefnum er að ljúka og sá samdráttur kallar á að við fækkum hjá okkur,“ segir Loftur Árnason, framkvæmda- stjóri Ístaks. Fyrirtækið hefur tilkynnt Vinnumálastofnun um hópupp- sagnir. Þrjú hundruð manns verði sagt upp frá þessum mánaðamót- um og fram í nóvember. Loftur segir óákveðið hverjum verði sagt upp. Verklokin kalli á uppsagnir og reglur krefjist þess að greint sé frá þeim með miklum fyrirvara. Yfir þrjú hundruð manns starfa við Hraunaveitu, sem tengist framkvæmdum við Kárahnjúka, á vegum Ístaks. Því verki lýkur að mestu nú í haust. Þá hefur félagið unnið við breikkun Reykjanes- brautar, við Nýbýlaveg í Kópa- vogi, húsnæði Bauhaus við Vest- urlandsveg og víðar. Stór hluti starfsmanna Ístaks er erlendur. Loftur vill ekkert um það segja hvort uppsagnirnar bitni á erlend- um starfsmönnum sérstaklega, eða þeim sem starfað hafa við Hraunaveitu. „Við höfum ekki ákveðið hverjum verður sagt upp og við höfum ekki greint starfs- mönnum frá þessu,“ segir hann og bætir því við að ekki sé ljóst hvort ný verkefni komi til þegar líður á haustið. „Það er ekki útilokað að þessi tala eigi eftir að breytast.“ Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðn- aðarins, segir þetta merki um að nú dragi úr umsvifum í bygginga- starfsemi. „Það er nú eðli þessara fyrirtækja að þau stækka og minnka. Jafnframt skyldi maður þá ætla að þeir sjái ekki fram á verkefni fyrir þetta fólk svona í bráðina og ákveði því að fara þessa leið.“ Jón Steindór segir að þegar hafi dregið verulega úr umsvifum á byggingamarkaði og býst við frek- ari samdrætti. Pósthúsið, sem er dótturfélag 365 miðla, hefur einnig tilkynnt um niðurskurð sem svarar 40 stöðugildum, en þar er um að ræða uppsagnir 129 blaðbera. Hannes Hannesson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að lunginn af þeim sé fólk á aldrinum 13 til 16 ára. Uppsagnirnar komi til fram- kvæmda á næstu þremur mánuð- um. Ari Edwald, forstjóri 365, segir þetta lið í hagræðingu og endur- skipulagningu á dreifingu Frétta- blaðsins. Hætt verði að bera blað- ið í hús í Reykjanesbæ, Akranesi, Borgarnesi, Hveragerði og Sel- fossi. Á móti verði unnið að því að bæta dreifinguna um allt land með því að koma upp sérstökum blaða- kössum í íbúðahverfum og víðar, í samstarfi við sveitarfélög. ingimar@markadurinn.is Þriðjungur missir vinnuna hjá Ístaki UNNIÐ VIÐ REYKJANESBRAUT Ístak hyggst segja um 300 manns upp störfum á næst- unni. Félagið hefur unnið við Hraunaveitu, Reykjanesbraut og fleiri verk. Sumum þeirra er að ljúka og óvíst hvað tekur við. MYND/E.ÓL. „Það væri nær fyrir Byr að horfa á samruna sem styrkir sparisjóð- inn en hitt,“ segir Ragnar Z. Guð- jónsson, sparisjóðsstjóri Byrs. Leitað sé leiða til að styrkja spari- sjóðinn með samruna inn í hann. Samþykkt var á fundi spari- sjóðsins síðdegis í fyrradag að breyta Byr í hlutafélag. Ragnar segir mætinguna hafa verið mjög góða eins og ávallt á fundum Byrs en fjögur hundruð stofn- fjáreigendur mættu til að kjósa um það eina mál sem var á dag- skrá. Mikill meirihluti stofnfjár- eigenda var fylgjandi breyttu rekstrarformi. Beiðni um breytinguna verður nú send til Fjármálaeftirlitsins. Ragnar veit ekki hversu langan tíma eftirlitið gefur sér en vísar til þess að mánuð hafi tekið að samþykkja háeff-breytingu Spron í fyrra. Þrálátur orðrómur hefur verið á lofti að Byr sameinist öðru fjár- málafyrirtæki í kjölfar breyting- anna. Nokkrir bankar eru sagðir standa við þröskuldinn. Glitnir er oftast nefndur á nafn enda hlut- hafar tengdir bankanum, Stoðum (áður FL Group) og Baugi umsvifamiklir hluthafar Byrs. Ragnar segir erfitt að ráða í framtíðina. Enn sé beðið sam- þykkis Samkeppniseftirlitsins fyrir sameiningu Kaupþings og Spron frá í júlí og þeirra skilyrða sem þar verði sett fram. „Ég held reyndar að það væri mjög gott fyrir sparisjóðina að sameinast frekar,“ segir Ragnar. - jab ÍBYGGNIR STJÓRNENDUR Sparisjóðs- stjóri Byrs (hér til hægri) er hæstánægð- ur með stofnfjáreigendafund í fyrradag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Byr á heima með sparisjóðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.