Réttur - 01.02.1927, Side 8
10
GEORGE BERNHARD SHAW
[Rjettur
ins í hennar þremur myndum: fjárhagslegri, siðferðis-
legri og stjórnmálaafstöðu.
Hættir þessa félags eru með afbrigðum frumlegir og
einkennilegir. Eg veit ekki hvort nokkuð annað félag,
sem fæst við þjóðmál, er þessu líkt. Engin áhersla er
lögð á félagafjölda, en mikil áherzla á gáfnafar og al-
vöru. Félagið miðar að því að Iýðræða stjórnmálin en
þjóðræða fjárhagslegar stofnanir. Með þetta fyrir aug-
um reynir það að koma áhrifum sínum við innan hvaða
stjórnmálaflokks sem.er. Það styður hvaða menn sem
er til kosninga, hverjar skoðanir sem hann játar, ef
hann er fús til að vinna að ákveðnum umbótum, sem
miða að auknu lýðræði og jafnaðarmensku. Aðferðin
er ávalt miðuð við ákveðnar umbætur, því að félagið
lítur á sérhverjar umbætur þó lítilfjörlegar virðist, sem
skref áleiðis á hinni óákveðnu braut framfaranna. Það
er skylda Fabíansmanna að útbreiða látlaust skoðanir
sínar, og það gera þeir í ræðu og riti, þeir leita færis að
gagnsýra alt með jafnaðarmanna dómum og hugmjynd-
um í blöðunum, skáldsögum,, ljóðum, leikritum, bók-
mentalegum og vísindalegum ritgjörðum, í öllum sam-
kundum, sem kosið er til (þingi, sveitastjórnum og
bæjarstjórnum), í einu orði, alstaðar. Það er trú félags-
ins, að þessi aðferð venji menn smátt og smátt á að
hugsa eftir hugsanaferli jafnaðarmanna — bæði æðri
stéttirnar og öreigana. Árangurinn er sá, að umbótum
er hægfara komið á í rétta átt, og þessar umbætur auk-
ast og verða því tíðari, sem lengra líður. Alt, sem lag-
fært er, er ákveðið skref í áttina til mlarkmiðs jafnað-
arstefnunnar.
Hugmyndir Fabiansmanna umi umbætur eru í mörgu
ólíkar því, sem yfirleitt tíðkast á meginlandi Evrópu.
Hér er ekki kostur að gera þess grein, en það nægir að
segja, að Fabiansmenn stefna að auknu sjálfstæði
þeirra einda, sem þjóðfélagið er reist úr — einstak-
linga, bæjarfélaga og sveitafélaga, en á meginlandinu