Réttur - 01.02.1927, Side 14
16
GEORGE BERNHARD SHAW
[Rjettur
höfundur hefir nokkuru sinni verið. En eins og Wells
vitnar til þeirra ummæla Ratzels í upphafi »Outline og
History« að öll saga mannkynsins hefjist í stjörnunum
uppi, eins ileiðir náttúrufræði Shaws hann að þeim al-
heimjsöfhiim., sem birtast í lífinu og fyrst og fremst
mannlífinu. Af því stafar það, að í þeirri heiðríkju
veruleikans og skýrleikans, sem hvílir yfir öllu máli
Shaws í leikritum hans, þá leikur einhver straumur,
sem er stórfeldari og dýpri, heldur en alt, sem á yfir-
borði atvikanna sést. Mennirnir eru fálmandi, fullir af
hjátrú og vitleysu urn sjálfa sig og alt annað, en fálm
þeirra er sjálf viðleitni hins eilífa afls, — Lífsaflsins,
sem Shaw er svo tíðrætt um — til þess að skilja sjálft
sig og leita þess forms, er það fái birst í að fullu.
Shaw sækir yrkisefni sín í margar áttir — í nútíð
og fortíð og framtíð. Hann skrifar um Cæsar og Kleó-
pötru á Egyptalandi, um nútíma Englendinga og fra,
um; henmenn á Balkanskaganum, um Napoleon, um
pútnahús, um húsaleigu í London og um England eftir
þrjátíuþúsund ár. En þrátt fyrir margbreytnina, þá
má þó segja, að þau yrkisefni, sem framar öðru heilli
Shaw, séu þetta þrent: stjórnspeki, samband manns
og konu og trú. Vitaskuld má segja, að öllum rithöfund'-
um, sem mjerkir eru, sé tíðræddara um þessi efni en
önnur, en Shaw tekur á þeim fastari tökum en aðrir,
vegna þess að hann er meiri heimspekingur heldur en
flestir aðrir, er skáldrit semja. Skal leitast við að gera
lítillega grein fyrir þessum þremur höfuðhliðum' hugs-
unar hans.
Stjórnspeki á ekkert skylt við þá starfsemi, sem
stjómmálamenn að jafnaði fást við, í augum Shaw.
Þeirra starf er tafl ujn það, hverjir eigi að fara mteð
völdin í löndunum og hvaða lönd eigi að bera ægishjálm
yfir öðrum. Auk þess er það missýning, að stjórnmála-
menn hafi völd. Þeir eru vikadrengir fyrir þau fjár-
hagsöfl, sem á hverjum tímá eru magumest í löndiun-