Réttur - 01.02.1927, Side 16
18 GEORGE BERNHARD SHAW [Rjettur
hengt, þá yrði þjóðfélagið eins og leiksvið, fult af vilt-
um dýrum, er rifi hvert annað á hol.
Cæsar: (hæglátur en með beiskju). Það virðist þá
svo, sem dómurinn gangi á móti mér.
Kleópatra: (með ofsa). Hlustaðu á mig, Cæsar. Ef
hægt er að finna einn mann í allri Alexandríu, sem
segir að eg hafi gert rangt, þá sver eg, að eg skal láta
mína eigin þræla krossfesta mig á dyrastaf hallarinnar.
Cæsar. Ef hægt er að finna einn mann, nú eða nokk-
uru sinni, sem veit, að þú gerðir rangt, þá verður sá
maður annaðhvort að sigra heiminn, eins og eg hefi
gert, eða verða krossfestur af honurn. (Hávaðinn frá
strætinu heyrist inn). Heyrið þið? Þessir, sem berja
hlið þín, trúa líka á hefnd og dráp. Þú hefir drepið for-
ingja þeirra; það er réttlátt að þeir drepi þig. Ef þú ef-
ast um það, þá spurðu þessa fjóra ráðunauta þína hér.
Og á eg þá ekki í nafni þessa sama réttlætis (hann
leggur mikla fyrirlitningaráherzlu á orðið) að drepa
þá, fyrir að hafa myrt drotningu sína, og verða svo aft-
ur drepinn, þegar að mér kemur, af landsmönnum
þeirra, fyrir að hafa ráðist inn í föðurland þeirra? Get-
ur Róm minna gert en að drepa svo þessa drápsmenn,
til þess að sýna heiminum hvernig Róm hefnir sona
sinna og heiðurs síns? Og þannig mun morð, til sögunn-
ar enda, fæða af sér morð, sífeldlega í nafni réttlætis
og heiðurs og friðar, þar til guðirnir eru orðnir þreyttir
á blóði og skapa kyn, sem getur skilið ...«
Á sama hátt og þennan eru helztu vígorð vor tekin
fyrir og sýnd í ljósi þeirra vitsmuna, sem ekki spyr um
annað, en hvort stefnt sé að því að skapa fullkomnara
mannkyn eða ekki. Shaw fyrirlítur Napoleon vegna
þess, að hann var hégómlegur og blindúr kraftur. Cæs-
ar er mikilmenni vegna þess, að hann er vaxinn upp úr
hégóma, metur ekki siðferðishugmjyndir eftir því, hve
mikið fylgi þær hafa, heldur eftir samræmi þeirra við
hans eigið eðli. Siðferðileikinn er ekki að sveigja lund