Réttur - 01.02.1927, Síða 26
Frá óbygðum
eftir
Pálma Hannesson.
I. Arnarvatnsheiði, Kjölur og
Eyvindarstaðaheiði.
A. INNGANGUR.
Öræfin norður frá Hofsjökli og Kili eru sá hluti af há-
lendi íslands, sem ég kyntist fyrst. Bar það svo til, að á
uppvaxtarárum mínum í Skagafirði rak ég oft fé og stóð á
fjöll og fór nokkrum sinnum í göngur fram að Hofsjökli
og suður með Blöndukvíslum. Setti eg vandlega á mig
landslag og örnefni á þessu svæði og varð allvel kunn-
ugur því.
Sumarið 1922 fór eg norður Kjöl. Veður voru góð og
skygni sem best má verða. Sá eg þá, að lýsingar af Kili og
uppdrættir af honum voru ónákvæmir og víða stórlega
rangir, t. d. um Hvítárvatn, Þjófadali, Kjalhraun, Strýtur
og upptök Blöndu. Bg hafði allgott tóm til athugana og
gerði lauslegan uppdrátt af þessum slóðum.
Næsta ár, 1923, fékk eg styrk úr Danmerkurdeild Sátt-
málasjóðsins til rannsókna á hálendinu. Réð eg þá að ferð-
ast um Arnarvatnsheiði, Kjöl og Eyvindarstaðaheiði. Þetta
sama ár, fengu tveir jarðfræðinemar danskir, Th. Biering-
Pedersen og S. A. Andersen, styrk til ferðalaga á fslandi.
Fýsti þá injög að fara um óbygðir. Gerðum við því félag