Réttur - 01.02.1927, Side 27
Rjettur]
FRÁ ÓBYGÐUM
2!)
um ferðina. Við fórurn frá Kalmanstungu í Borgarfirði 17.
júlí og komum að Þorljótsstöðum í Skagafirði þann 24.
Veðrátta var stirð og hamlaði rannsóknum allstaðar,
nerna á Kili.
Markmið ferðarinnar var rannsókn á landslagi, jarð-
sköpun, gróðri og dýrum á svæði því, sem farið var um. í
eftirfarandi grein verður sagt frá ferðinni og lýst landi og
gerð jarðar. Rannsóknir mínar um gróður og dýr mun ég
birta á öðrum stað. í lýsingu Kjalar og Eyvindarstaðaheið-
ar er mikið farið eftir athugunum þeim, sem ég gerði 1922
og áður.
Uppdráttur sá, sem fylgir ritgerð þessari, er saminn eftir
athugunum þeim og uppdráttum, sem ég gerði 1922, 1923
og 1924, er ég ferðaðist með Dr. phil. Niels Nielsen um
sunnanverðan Kjöl og meðfram Hofsjökli að sunnan. Sumt
er mælt á einfalt mæliborð, og firðmælir hafður til hlið-
sjónar. Annað er mælt eftir ljósmyndum og teikningum.
Margt er dregið eftir minni. Um Arnarvatnsheiði er mjög
farið eftir uppdrætti Þorvalds Thoroddsens.
Tæki til öruggra mælinga hefi ég eigi getað veitt mér,
og geldur uppdrátturinn þess. Er honum ábótavant um
margt, en þó er ég þess vís, að hann muni reynast miklu
nær sanni en uppdrættir Björns Gunnlaugssonar og Þor-
valds, enda munu þeir að mestu vera gerðir eftir minni og
jafnvel sögusögn annara.
Ég hefi dregið öll aðalatriði svo skýrt sem mér var unt,
en hirt minna um aukaatriðin. Vona ég því, að ferðamönn-
um geti orðið gagn af uppdrættinum.
Stærstu nýmælin á uppdrætti mínum eru þau, að Kjölur
er þar rúmum þriðjungi breiðari en á uppdráttum Björns
og Þorvalds og Hofsjökull hér um bil fjórðungi minni. Vera
má, að einhverjir efist um réttmæti þessara breytinga. Get
ég eigi gefið þeim betra ráð en það, að fara til sjálfir og
mæla og sjá svo, hvað sannast reynist. Það er alkunnugt,
að jöklar sýnast ætíð vera nær en þeir eru í raun og veru,