Réttur - 01.02.1927, Síða 29
Rjettur]
FRÁ ÓBYGÐUM
31
Norðan til í þessari lægð er fjallið Strútur (921 m. Th.*).
Suðvestur frá honum gengur lágur háls, sem endar í felli,
er Tiingufell heitir. Strútur og þessi háls skifta lægðinni í
tvo samhliða dali. Sunnan í hálsinum stendur Kalmans-
tunga. öll er lægðin hraunum hulin. Um sunnanverða lægð-
ina og dalinn syðri hefir runnið mikið hraunflóð, sem á
upptök í gígaröð sunnan við Hafrafell. Þetta hraun er gam-
alt og gróið. Neðantil á því er allmikill skógur, Húsafells-
skpgur. Um hraunið renna Hvítá og Geitá. Milli þeirra er
Geitland. Þess skal getið hér, að Geitá kemur ekki upp við
rætur Hafrafells, eins og uppdrættir sýna, heldur sunnan
við Hádegisfell á Kaldadal eða jafnvel inni í Þórisdal.
Rennur hún norður Kaldadal og niður af dalnum í gljúfrum
og út á hraunið. Sveigir þá til vesturs og rennur í Hvitá
neðantiil við Tungufell. Hún er vatnsmeiri en Hvitá og
meira jökullituð.
Nyrðri dalurinn er mjórri en sá syðri. Hefir kvísl úr Hall-
mundarhrauni lagst fram um dalinn og sameinast syðra
hrauninu neðan við Tungufell. Eftir þessum dal rennur
Norðlingafljót.
2. U p p að Arnarvatni.
Nú er að segja frá því, er við héldum frá Kalmanstungu
þann 17. júlí. Framan af degi var norðanstormur og þoka á
fjöllum. Biðum við því og litum eftir farangri og hestum.
Með kvöldi gekk veðrið til batnaðar, héldum við því af stað
kl. 9.
Við fórum sem leið liggur, yfir hálsinn norður af bænum,
niður í dalinn nyrðri og með suðurhlíðum hans austur á
móts viö Strút. Sveigir þá vegurinn yfir hraunið þvert á
Neðri-Fugleyrar. Þá er Surtsliellir á hægri hönd, litlu aust-
ar. Liggur gata þangað, en heldur óglögg. Af Neðri-Fugl-
eyrum liggur vegurinn austur hraunið norðanvert á Efri-
* Th. merkir að Þorvaldur Thoroddsen hafi mælt. Aftan við
staðanöfn þýðir það, að Þorvaldur hafi gefið nafnið.