Réttur - 01.02.1927, Qupperneq 31
Rjettur]
FRÁ ÓBYGÐUM
33
sparkað fljótinu norður fyrir hálsinn. Rennur það niður með
honum að norðan, en neðan við hann hefir það brotið sér
farveg suður að hrauninu og fellur norðan við það niður á
móts við Kalmanstungu. Þar slær það sér suður á hraunið
og niður eftir því sunnanverðu. Norðlingafljót er ekki
vatnsmikið og venjulega með litluin jökullit.
Áður fyr var oft farið af Þorvaldshálsi suður yfir Hall-
mundarhraun, um Torfabæli vestan við Eiríksjökul, þaðan
yfir Geitland og á Kaldadal. Þessi leið er sýnd á uppdrætti
Björns Gunnlaugssonar. Nú er hún aldrei farin.
Þegar komið er yfir Norðlingafljót, tekur við Hæða-
sporður, suðurendinn á Arnarvatnshæðum. Svo nefnast
hæðir margar og hryggir úr grágrýti, er ganga suður og
vestur frá Arnarvatni. Vestan við Hæðasporð er lægð. Eft-
ir henni rennur á sú, er Refsvena heitir. Kemur hún norðan
af heiði og fellur í fljótið.
Arnarvatnshæðum hallar niður að Hallmundarhrauni.
Rennur Norðlingafljót milli þeirra og hraunsins. Vegurinn
liggur norðaustur hæðirnar nokkuð frá fljótinu og sést það
óvíða. Hæðirnar eru gróðurlausar að ofan, en milli þeirra
er allmikill gróður. Alllangt austur frá Hæðasporði er bug-
ur á fljótinu til norðurs. Heitir þar Álftakrókur. Upp frá
bugnurn til norðurs er lægð og í henni vatn, er Álftakróks-
vatn nefnist. Veginn ber að þessum bug, en sveigir þaðan
norður lægðina. Norðaustur af vatninu er sæluhús, en vest-
ur af því, við veginn, girðing fyrir hesta leitarmanna, sem
gista í Álftakrók. Sunnanfljóts, á móti Álftakrók, eru Iág
grágrýtisfell, er Sauðafjöll heita. Þessir staðir eru í norður
frá Eiríksjökli miðjum.
Kl. 3 um nóttina komum við í Álftakrók. Létum við hest-
ana í girðinguna, en tjölduðum þar nærri. Höfðum við far-
ið hægt og áð oft og lengi. Venjulega er talin 4 tíma reið
frá Kalmanstungu í Álftakrók, þó mun það vera fremur
hart riðið. Er þá talin 1/2 tíma reið í Vopnalág, og jafn-
langt þaðan í Hæðasporð, en þaðan röskan klukkutíma í
3