Réttur - 01.02.1927, Side 33
Rjettur]
FRÁ ÓBYGÐUM
35
voru sendlingar með unga sína. Verpa þeir í heiðamóum,
eirikum á sunnanverðu hálendinu.
Norðan við Svartarhæð er Arnarvatn. Liggur það í kvos,
sem gengur suðaustur í grágrýtishæðirnar. Norðvestan að
vatninu liggja lágar öldur, hæst þeirra er Hnúfubakur eða
Hnúfabák. Að norðan gengur Grettishöfði út í vatnið, en
að sunnan hár og brattur höfði frá Svartarhæð. Höfðar
þessir greina vatnið í þrjár víkur: Milli Hnúfubaks og
Grettishöfða gengur Atlavik til norðurs, milli Grettishöfða
og Svartarhæðar Grettisvík til suðausturs, en vestan við
Svartarhæð Sesseljuvik til suðvesturs. Er hún langstærst,
en Atlavík minst. Grettisvík er hæðum lukt. í botn hennar
fellur Búðará, sem kemur norðan frá Stórasandi og
Skammá. Kemur hún úr Réttarvatni og er aðeins um 300
metrar á lengd. Fellur hún í fossum niður af hæðunum við
víkina. Kollóttur melhóll er norðan við fossinn og varða á.
Heitir hann Tjaldhóll. Austan við hann er sæluhús á bakka
Skammár.
3. V i ð Arnarvatn.
Þegar við komum að Arnarvatni, var dregið fyrir sól og
himininn blikubólginn. Héldum við því rakleitt að sæluhús-
inu og bjuggumst þar urn. Sæluhúsið er fremur rúmgott og
vel um gengið. Prímus er þar og steinolía á brúsa. Hesta-
hagar eru litlir við Grettisvík og una hestar þar illa. Skást-
ir eru hagar norðan við víkina, í hvömmunum út frá Búð-
ará.
Um kvöldið gekk ég upp að Réttarvatni. Það liggur uppi
á hæðunum suðaustan við Grettisvík og er miklu stærra
en uppdrættir sýna, langt og mjótt og stefnir nærri því í
norður og suður, lítið eitt í suðaustur. Raunar eru Réttar-
vötnin tvö, og er það syðra miklu stærra. Þrjú nes ganga
fram í það: eitt að austan, en tvö að vestan. Syðra nesið
að vestan er langt, mjótt og lágt. Heitir það Réttartangi
og er þar rétt. Þar draga Húnvetningar og Borgfirðingar
3*