Réttur - 01.02.1927, Page 34
36
FRÁ ÓBYGÐUM
[Rjettui'
sundur fé í göngum. Af réttinni dregur vatnið nafn.
Ilt er að fara meðfram Réttarvatni efra fyrir ótræðisflám,
sem að því liggja. Neðra vatniö er litið. Tvö nes ganga
fram í það, sitt hvorum megin. í það rennur vatnsmikill
lækur úr efra vatninu, en úr því Skammá, eins og áður er
sagt.
í Réttarvatni er þó nokkur silungsveiði. Er mér sagt, að
silungur sé þar vænni en í Arnarvatni og er það trúlegt,
því að mikið er um smádýr í vatninu.
Þegar ég kom til baka, gerði versta veður, stórrigningu
og storm af jöklum. Urðum við því að vaka til skiftis yfir
hestunum.
Næsta dag var gott veður framan af degi, en loftið
drungað. Vorum við snemma á ferli og gengum vestur á
Svartarhæð. Þar er mjög víðsýnt. í norðri sjást Vatnsdatr,-
fjall og Víðidalsfjall, í vestri Tröllakirkja, Snjófjöll og
Baula, í suðri Strútur og Eiríksjökull, en í suðaustri Lang-
jökull.
Eiríksjökull nær 1798 metra yfir sæ, eftir mælingu
Björns Gunnlaugssonar, en er hafin um 1300 metra yfir
Hallmundarhraun. Hann er hæsta fjall fyrir vestan Vonar-
skarð og allra fjalla fríðstur. Jökullinn hvilir á hárri bungu.
Undir henni er hár stalli og fylgir bungan brúnum hans,
nema að vestan, þar stendur hann langt út undan henni.
í stallanum er að niestu móberg, en grágrýtisbelti eru þó
í honum ofanvert. Hlíðarnar eru snarbrattar og í þeim
lausagrjót. Bungan sjálf virðist öll vera gerð úr grágrýti
eða blágrýti. Helgi Péturs heldur, að hún sé hraundyngja,
sem skapast hafi milli ísalda. Alt bendir á, að það sé rétt.
(H. Pjetursson, 1904).
Fimm skriðjöklar ganga niður frá jökulfaldinum að
norðan og norðaustan. Miðjökullinn er mestur og nær nið-
ur að hrauni. Hann heitir Klofajökull (Th.) Vestan viö
hann eru tveir skriðjöklar sem heita Vestri og Eystri-Bræk-
ur (Th.). Eru þeir báðir klofnir að neðan. Suðaustan við
Klofajökul eru tveir skriðjöklar minni. Ná þeir niður í miðj-