Réttur - 01.02.1927, Blaðsíða 37
Rjettur]
FRÁ ÓBYGÐUM
39
Sand eða syðst á honum. Ekki sé ég, að það líkist hrafni
um neitt.
Eg hefi spurt kunnuga menn í Borgarfirði urn þessi ör-
nefni. Kannast þeir lítið við Krák, en fellið, sem Þorvaldur
nefnir Krák, kalla þeir Bláfell. Enn fremur hefi ég borið
þetta undir nokkra Húnvetninga t. d. Pál Hannesson, bónda
á Quðlaugsstöðum, sem er mjög athugull maður og hverj-
um manni kunnugri á Auðkúluheiði og austanverðum
Sandi. Kannaðist hann vel við Krák og sagði það vera fellið
við norðurendann é Langjökli, en Lyklafell segir hann, að
sé lítið fell suðaustur af því, milli þess og Búrfjalla.
Af Svartarhæð hélt ég inn með Grettisvík, athugaði
gróður og safnaði smádýrum í vatninu. Seinna um daginn
fór ég ríðandi út á Grettishöfða og þaðan að Atlavík. Læk-
ur rennur í víkina og heitir Atlalækur. Hann kemur norðan
af heiði og fellur vestan við lánga og snarbratta brekku.
Alhnikill gróður er meðfram læknum neðantil og hagar góð-
ir. Hélt ég nú upp með læknum, þangað sem Grímstungu-
heiðarvegur liggur yfir hann, en sló mjer þá austur að Búð-
ará og fór með henni upp að Sandi. Meðfram ánni eru mikl-
ar flár og ililur vegur. Flárnar eru algengar á hálendinu og
næsta merkilegar. Mun þeirra síðar getið. Þorv. Thorodd-
sen segir, að Búðará komi úr Valdavatni, en Atlalækur úr
Atlavatni. Mun hann hafa það eftir fylgdarmanm sínum,
því að ekki kom hann þangað. Ekki hygg ég, að þetta sé
rétt. Eg fylgdi Búðará upp að Sandi og virtist hún koma
þar undan sandöldum, en sá hvergi tjörn né vatn. Þó þori
ég ekki að fullyrða neitt um þetta, því að tekið var að
kvölda, er ég kom að Sandi og þoku dreif yfir. En síðan
hefi ég borið það undir Jósep bónda á Signýjarstöðum í
Hálsasveit. Er hann vel kunnugur á Arnarvatnsheiði og
sagði hann, að Búðará sprytti upp syðst á Sandi, en Atla-
lækur kæmi úr Valdavatni.
Um kvöldið gerði níðaþoku. Urðum við því enn að vaka
yfir hestunum. Báðar næturnar veiddum við silung í ósum
Skammár. Svo hagar til, að fyrir botni Grettisvíkur