Réttur - 01.02.1927, Síða 38
40
FRÁ ÓBYGÐUM
[Rjettur
er mjó flá, og rennur Skammá í djúpuni stokkum gegn um
hana. f stokkum þessum var furðu mikil veiði. Fyrra kvöld-
ið veiddum við á tæpum hálftíma 6 fallega silunga, 4
bleikjur og 2 urriða, og eftir það eins og við vildum. Veið-
arfærið var lítil stöng, en beita örsmáir ánamaðkar. í mög-
um silunganna voru vatnasníglar, flugnalirfur og skötu-
ormar. f öllum þeim silungum, sem ég skoðaði, var fjöldi
bandorma, eins og oft er í vatnasilungi.
Næsta dag, þann 20. júlí, var norðankuldi, þoka og rign-
ing. Hugðum við nú til ferðar, en þótti ekki árennilegt. Bið-
um við því fram yfir hádegi. Létti þá þokunni um hríð.
Bjuggumst við þá til ferðar og héldum af stað til Hvera-
valla kl. 2. Áður en ég segi frá ferðinni þangað, þykir mér
hlýða að lýsa Arnarvatni nokkru nánar.
Arnarvatn er 565 metra yfir sjó. (Th.). Það er miklu
minna en uppdrættir sýná. Á uppdrætti Þorvaldar er
Sesseljuvík einkum of stór og nær miklu lengra vestur en
rétt er. Atlavík er þar einnig of stór. Eins og áður er sagt,
liggur vatnið í kvos, og er bratt að því, nema að vestan og
norðvestan. Einkum er bratt af Svartarhæð niður að
Sesseljuvík. f Grettisvík eru nokkrir hólmar nær syðra
landinu, og einn út af Atlavík. Nokkru innan við Grettis-
höfða gengur fram mjór og langur tangi, er sumir kalla
Grettistanga. Annar langur tangi gengur út af Svartarhæð.
Búðará hefir myndað nes fram í botninn á Grettisvík. Er
þar nokkur gróður, en blautt og rótilt.
f Arnarvatni er allmikið um smádýr, og veiðisæld mikil.
Veiðina stunda nú einkum Miðfirðingar. Fuglar voru fáir
á vatninu og kringum það. Á vatninu sá ég 6 álftahjón og
4 á Réttarvatni. Allmarga himbrima og nokkra lóma sá ég
einnig, en enga önd, nema 1 háveliu. Læt ég þessa getið
vegna þess, að margir halda, að mikill fjöldi fugla, einkum
anda, búi á heiðum uppi.