Réttur - 01.02.1927, Page 39
Rjettur]
FRÁ ÓBYGÐUM
41
4. U m Heiðingjaskarð.
Nú er að segja frá förinni til Hveravalla. Við höfðum
ráðið, að fara við norðurenda Langjökuls um skarð það,
sem verður milli jökulsins og Kráks. Liggur það í þver-
austur frá Arnarvatni. Stefndum við fyrst í norðaustur, á
suðurenda Bláfells. Á þeirri leið eru grágrýtisurðir og illur
vegur. Austur frá Bláfelli hallar af Sandi suður að Norð-
lingafIjóti. I hallanum eru jökulmelar miklir. Frá fellinu
gengur gil suður á sandana. Var það þurt, en mikið vatn
mun renna þar í leysinguin. Gil þetta nefndi ég Bláfellsgil.
Austur frá því eru víðimóar á jökulöldunum, en örfoka mel-
ar á milli. Nefndi ég Víðiteiga hallann frá Bláfellsgili að
Áfangahæð.
Þegar við komum austur fyrir Bláfellsgil, syrti að með
fjúki og kulda. Héldum við riú austur teigana, og er þar
greiðfær leið. Hér um bil miðja vegu milli Bláfells og
Kráks varð fyrir okkur flöt melbunga. Hverfa þar víðimó-
arnir með öllu, og er eftir það aðeins hlauphagi fyrir fé eða
auðn. Var nú snjó tekið að festa, og loftið var ísgrátt.
Skiftum við hestum á hæðinni og nefndi ég hana Áfanga-
hæð. í suðri glórði í stalla Balljökuls. Vatnsmikill lækur
féll niður stallann, og mun það vera upptök Norðlinga-
fljóts, en nokkurf aðrensli mun það þó hafa austan lægð-
ina, sem heldur áfram nokkuð austur eftir. Mætti kalla hana
Fljótsbotn. Norðlingafljót fellur síðan til vesturs. Suður af
Bláfelli eru dálitlir hagar, sunnan við fljótið. Heita þar
Efri- Fljötsdrög, og eru þar efstu hestahagar með fljótinu.
Nokkru vestar, við norðurbrún Hallmundarhrauns, eru
Neðri-Fljótsdrög. Þar er góður hagi.
Af Áfangahæð hvötuðum við sem mest við máttum. Lá
leiðin um vindgnúðar jökulöldur. Gil gengu upp í þær frá
Fljótsbotnum. Neðst í þeim er móberg, ofan á því grágrýti,
en efst jökulmelur. Herti nú veðrið og syrti fyrir sýn.
Nokkru síðar rofaði til. Vorum við þá komnir að felli einu
strýtulöguöu. Suður af því sá í önnur fell, lík að lögun.