Réttur - 01.02.1927, Síða 40
42
FRÁ ÓBYGÐUM
[Rjettur
Óðu þau þokuna í úlfgráum feldi. Nefndi ég fellin Hcið-
ingja. Gamalt hraun virtist vera kringum syðri fellin, og
kallaði ég það Heiðingjahraun, en skarðið austur þaðan,
milli Langjökuls og Kráks, nefndi ég Hciðingjaskarð.
Heiðingjarnir eru auðsjáanlega gamlir gígir. Austur frá
Heiðingjum sá í langt fell, en lágt og er það hæst að sunn-
an, en lækkar norður. Riðum við nú sem mest við máttum
austur að fellinu, en stefndum þó nokkuð til norðurs. Und-
ir fellinu er mikil aurbleyta. Áðum við þar, en ég gekk upp
á fellið. Sá ég þá, að það var Iangur hryggur, er ég nefndi
Kroppinbak. Skamt austur þaðan grilti í bratta fjallshlíð,
en hvergi sást fyrir brúnum hennar né endum. Austur að
fjallinu lágu flatir sandar og á þeim lítill ás. Suður með
honum sá í hraun. Nú syrti að aftur, og hélt eg til félaga
nrinna. Nokkur ágreiningur varð nú um það, hvernig halda
skyldi. Á Ieiðinni frá Arnarvatni höfðum við aldrei séð
Krák. Héldu félagar mínir, að við hefðum stefnt of sunn-
arlega og fjallið framundan væri stalli Langjökuls, en ég
hélt, að það væri Krákur. Tókum við nú eftir því, að komp-
ásinn kvikaði í sífellu og var engin leið að fara eftir hon-
um. Varð það úr, að halda suður með fjallinu. Héldum við
nú austur yfir Kroppinbak og gekk seint fyrir klakahlaup-
um. Var nú komin á norðan stórhríð og herti frostið furðu
fljótt. Við vorum blautir og gerði kalt, en hestarnir rákust
illa. Sóttu þeir ýmist upp í veðrið eða slógu undan því. Tók
ég þá það ráð, að teyma hest minn á undan, en félagar
mínir ráku hina á eftir. Stefndi ég nú austur á fjallshlíð-
ina og út á hraunið við ás þann, sem áður er nefndur.
Hraunið var marflatt helluhraun, vindgnúið mjög og frost-
sprengt. í hraunröndinni voru tjarnir, og á þeim hestís.
Sveigði nú fjallshliðin til austurs, og héldum við meðfram
henni á hrauninu. Nokkru austar beygði hún til norðurs.
Var ég þá viss um, að fjallið væri Krákur, en við værum
á Heiðingjaskarði. Héldum við nú í austur frá fellinu og sá
þá ekkert nema hraunhólana. Þá er við höfðum farið svo
um hríð, bar okkur að ás, og endaði hraunið við hann.