Réttur - 01.02.1927, Síða 42
44
FRÁ ÓBYGÐUM
[Rjettur
felli einu. Fórum við austur fyrir það og komum þá aftur
að vatninu, norðar en fyr. Gekk þar vík inn á milli fells
þessa og annars fjalls, sem liggur litlu austar. Fórum við
utan í feliunum. Var þar ilt að fara og ekki hættulaust. Að
vatninu voru öldusorfnar strendur og mun það vera djúpt.
Var það æði ófrýnt og niðaði þungt fyrir storminum. Uetta
vatn lieitir Neðra-Hundavatn.
Héldum við nú austur fyrir eystra fetlið og komum þá
brátt á bratta brún. Var þar enn að sjá mikinn myrkva fyrir.
Héldum við í myrkvann, og var nú niður Iangar brekkur að
fara. Reyndust þær að vera hlíðar Búrfjalla niður á Kjöl
Neðan við hlíðina var snjólaust að kalla. Var þar dágóð-
ur hagi. Tókum við því ofan af hestunum og áðum lengi.
Vorum við komnir efst í Beljandatungur, vestast. Sást
Sandkúlufell skaint frá í norðaustri. Þegar við komum
þangað, var kl. ll/2. Höfðum við því verið 9y2 kl.tíma
frá Arnarvatni. Allan þann tíma höfðu hestarnir svelt.
Dimmudrungi lá yfir Kili og huldi fjallasýn. Hríðarkólg-
an þaut í hlíðunum og sleit úr henni krapa, en þó þótti
okkur sem kæmum við í sól og sumar. Vorum vel kátir og
grófum til nestisins.
Þar sem við komum niður, falla nokkrir sinálækir fram
úr hlíðinni. Sameinast þeir og gera litla kvísl, sem rennur
austur í Seyðisá.
Frá Búrfjöllum stefndum við til suðausturs, í áttina til
Hveravalla. Land er hér mishæðalaust að kalla og hallar
liægt til austurs. Riðum við um heiðainóa, mela og lækja-
drög og fórum greitt, því að nú rákust hestarnir vel. Eftir
tæpan klukkutíma fórum við yfir Beljanda. Héldum við enn
sömu stefnu uns við komum að Þegjanda, og var örskamt
þaðan á Hveravelli. Höfðum við stefnt rétt og komum á
völluna kl. 2]/2. Sleptum við hestunum haftlausum og sett-
umst að í stóru sæluhúsi, sem vegamálastjóri lét reisa 1922.
Hvíldin var góð.