Réttur - 01.02.1927, Page 45
Rjettur] FRÁ ÓBYGÐUM 47
henni gangi bergsúla, sem staðið hafi föstum fótum í djúp-
unum og hvergi haggast. En ef þessu er þannig liáttað,
hlýtur dyngjan að vera eldri en landssigið.
Þá er næst að athuga, hvenær þetta mikla sig hafi átt
sér stað. Þess er áður getið, að skipun jarðlaganna á svæði
þessu sé sú, að undir sé móberg, en ofan á því jökulnúið
grágrýti. Ekki verður með vissu sagt, hvernig móbergið
hafi myndast, en alt bendir á, að það hafi orðið til af jarð-
eldum og jökulruðningi á fyrri ísöldum. Hitt má telja víst,
að þegar grágrýtisþökin lögðust yfir landið, hafi það verið
örísa, en jöklar siðar lagst yfir það og gengið alt á sæinn
út. Grágrýtið er því til orðið milli síðustu og næst síðustu
ísaldar.
Nú virðist landssigið hafa orðið eftir að grágrýtishraun-
in runnu, og meira að segja eftir að hraundyngjan undir
hjarni Eiríksjökuls varð til, því að annars er ótrúlegt, að
hraunstraumar hefðu ekki runnið niður hlíðar stallans, en
svo er ekki, auk þess sem bergsúla dyngjunnar virðist hafa
boriö stallann uppi, er landið seig. Þá er eftir að vita, hvort
landssigið hafi orðið fyrir eða eftir siðustu ísöld. Jökul-
rispurnar á Arnarvatnsheiði snúa ýmist til suðvesturs eða
til vesturs. Þetta bendir á, að jökull sá, sem gekk yfir hæð-.
irnar, hafi átt upptök sín uppi á Stórasandi, en þá hljóta
staðhætti'r að hafa verið líkir því, sem nú er, og lægðin
að hafa myndast fyrir eða snemma á síðustu ísöld.
Aftur á móti virðist ýmislegt benda á það, að sigið hafi
orðið eftir ísöld. Þannig hafa hraun þau, sem frá sprung-
unni runnu, bæði runnið eftir ísöld, en gos verða oft á sig-
sprungum, þegar landið er að síga, eða mjög um líkt leyti.
I öðru lagi eru hraunhjallar þeir, sem Þorv. Thoroddsen sá
í norðanverðum stalla Balljökuls, auðsjáanlega myndaðir
við sig eftir ísöldu, því að hraunið á þeim er ekki jökulnú-
ið. Loks eru hlíðarnar á stöllum jöklanna, sigbarmarnir,
svo skýrir, að ótrúlegt er, að jökull hafi gengið yfir þá.
Vegna þessa hygg ég, að landið hafi sigið tvisvar um sömu
sprungurnar. í fyrra skifti, fyrir síðustu ísöld, og hafi